Hvað skal segja? Ef það má hengja Saddam Hussein svo snarlega, í kjallaraholu, í gallabuxum með einhverja lopahettu yfir andlitinu, hvers vegna þarf ég þá að finna mér nýjar buxur fyrir brúðkaup frænku minnar? Og hvers vegna þurfti hún að bjóða mér með margra mánaða fyrirvara?
Nei, þetta er ekki mergurinn málsins. Mergurinn er þessi: hvernig í fjandanum varð valdið svona heimskt? Síðkapítalismi dugir ekki til skýringar, öll þessi heimska er ekki sjálfgefin þó að vélar heimsins gangi fyrir græðgi. Kapítalismi er ekki uppáhaldsvélin mín, en stríðið í Írak er samt ekki sjálfgefin virkni hennar … þar sem hengingin í morgun hafði ekkert með réttlæti að gera og rústar, ásamt aðdragandanum, öllum vestrænum hugmyndum um réttarfar, hvar liggja þá pólitísku klókindin í henni? Eða hverjir leggja niður vopnin nú þegar búið er að hengja vonda manninn í miðjum réttarhöldum?
Ég vildi að textinn hér að ofan lyktaði meira af lögfræði eða einhverju.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli