30.8.07

The bottom line

„Fréttaskýrendur segja að stríð Írana og Bandaríkjamanna myndi valda gríðarlegri olíuverðshækkun, og sennilega heimskreppu.“

Rúv.is.

Jæja, Sumar ástarinnar 2007 gekk svona líka vel, þó að það hafi misskilist í þýðingu. Ekkert gjálífi og léttúð eins og þarna á meginlandinu, þar sem bylgjan hófst 1967 – á leiðinni yfir hafið varð hún að heitbindingum og giftingum. Eiríkur giftist Nödju. Örvar giftist Birgittu. Ýmsir aðrir hafa lagt í vana sinn að elda kvöldmat saman og sofna svo í sama rúmi. Á 40 árum verður allt að íhaldi og er það vel, sjálfur er ég íhaldsmaður í ástum, eins og spænskur anarkisti.

Gott og vel, haust, húm, he-hemm: þetta blogg verður áreiðanlega sérviskulegra héðan í frá en hingað til. Þema dagsins: miðaldir. Þessi tækni hér (sjá vídeó) er kannski stærsta yfirvofandi skrefið frá perspektífi endurreisnarinnar aftur að táknflatarlist miðalda – ég mæli eindregið með því að áhugasamir horfi:


Þetta er dásamlegt skref í augum uppveðraðra hegelista – raunveruleg syntesa. Ljósmyndin var fullkomnun perspektífs og raunsæis, en þegar vélræn framleiðsla og fjölföldun mynda fær að þróast áfram í friði endar hún á að neita grunnforsendu sinni, hinu vélræna raunsæi, og snýr aftur á upphafsreit – sem er hins vegar ekki alveg samur við sig.

Og jújú, vissulega var Photoshop þarna fyrir. En þetta sjálfvirka ferli er eitthvað annað – ef það verður jafn útbreitt og virðist trúlegt er eðli mynda orðið annað: ljósmynd er þá sarpur stærðfræðigreinanlegra táknmynda sem standa í lógískum venslum hvert við annað, frekar en afritaður raunveruleiki. Þetta hafa svosem margir lengi sagt, en upprunalega ljósmyndatæknin togaði þó flesta fastar í átt að raunsæistúlkuninni.

Helstu rannsóknarniðurstöður síðustu vikna: Finnland er allt í lagi en strangt til tekið óþarft. Sem verður seint sagt um Bandaríkin eða hvar væri þetta blogg án uppfinningagleði bandarískra háskóla og herja? Kvikmyndin dó ekki með Bergman, því síður með Antonioni, heldur er nú loks á lífi – það er lífið sjálft sem er, þegar fram í sækir, endurtekning, úrvinnsla, bið … en nú er þetta ekki hinn nýrakaði ég sem tala heldur einhver fúlskeggjaðri fauskur. Ég sjálfur hlakka til að sjá The Silence endurgerða sem Flash teiknimynd.

16.8.07

Riddarinn sem var ekki til

„Riddarinn sem var ekki til“ er ekki til. Á lager. Hjá neinum. Hún virðist vera alveg uppseld. Forlagið gæti lumað á eintökum, en það er ekki víst að ég nái að kría þau út, mig bráðvantar eiginlega bókina, að eign frekar en láni – ef einhver þarna úti skyldi luma á eintaki falast ég nú eftir því, heitt og innilega. Bókin er eftir Italo Calvino og kom út á svartri kilju frá forlaginu Máli og menningu. Hún lumar á nógu ríkum orðaforða yfir klæðaburð riddara til að gera fyrstu fjórar síðurnar ókræsilegar á ensku.

3.8.07

Skamm skamm skamm

Á ferðum mínum um Vesturlönd nær rakst ég á póststrúktúralíska stúlkukind, rammvillta uppi á heiði. Ég tók nokkrar myndir af henni, þær eru hér. Svo hélt ég bara áfram að guða hið smáa.
Ísafjörður er býsna góður bær, þar má guða bæði stórt og smátt. Þetta er allt annað líf eftir að ég hætti að lesa. Í alvörunni, drepið í bókunum og allt fær á sig nýjan blæ.