29.10.07

Móses 21:6 í nýju Biblíunni

Getur nokkur sent mér línuna, úr glænýju þýðingunni, hér í athugasemdir? Með þökk, H.

27.10.07

Karlmenn, þið eruð niðurlægjandi fyrir karlmenn



Endurútgáfa þessarar bókar þarna … ég veit ekki í hvaða hlutföllum illska og heimska réðu ákvörðuninni. Eða umræðunni í kjölfarið. En ég vil biðja þorra álitsgefandi karlmanna að loka á sér trantinum eða skipta um skoðun … nei, þessi bók felur ekki í sér „sjónarhorn“ sem börn þurfa að heyra til að taka síðan sjálfstæða afstöðu til … til hvers eiginlega? Svertingja?

Hellingur af karlmönnum verja nú töluverðri orku í að þyrla upp sóti og ryki í augum á sjálfum sér, slá sig blindu í von um að þá sjái aðrir ekki heldur. Ef þeir gera það allir í einu mun það áreiðanlega ganga prýðilega. Einn þekktur karlmaður stekkur fótskriðu niður lyklaborðið og endar með hausinn í því díki að leggja að jöfnu fordóma gegn svörtum og fordóma gegn dýrum. Ég nenni ekki einu sinni að vísa á þessa færslu hans, nógu hátt stillt er gjallarhornið hans samt.

Staðalviðbragð karlmanna með fyrsta eða annars stigs próf á lyklaborð virðist vera orðið þetta: að skamma sig sjálfir og fá í kjölfarið afsakanaræpu. „Nú mun aldeilis heyrast í …“ femínistunum/vinstrapakkinu/pólitískt rétthugsandi … liðinu … skrifa þeir þá og bæta við, áður en nokkurt okkar hefur þurft að segja múkk: „En ég gerði það ekki og það gerðist ekkert og það var heldur ekkert að því og það eru allir að gera það hvort eð er eða má kannski enginn aldrei gera neitt!? Banna banna banna!?“

!?

Þið vitið upp á ykkur skömmina og nú skal ég koma orðum að henni fyrir ykkur svo þið getið farið inn á bað, rassskellt ykkur, sest síðan aftur við tölvuna og beðist afsökunar:

Hversu geðþekkur kall og vinalegur sem Muggur var – og það var hann áreiðanlega fyrst hann var kallaður þessu indæla nafni – þá er bókin hans til vitnis um heimóttarskap liðinna kynslóða sem þekktu útlendinga fyrst og fremst af afspurn, bábiljum og flökkusögnum. Þessi bók er hrein andstyggð. Hún á vissulega heima á safni og þar mega fullorðnir dásama hversu vel Muggi tekst að gera alla strákana í bókinni nákvæmlega eins, alla jafn ómennska og skepnulega. Að setja hana í almenna dreifingu til barna er hins vegar of fáránlegt til að ég finni tæka líkingu … kannski skylt því að dreifa tölvuleiknum Rapelay til unglinga. Tilvalin fermingargjöf, þar er áreiðanlega vandað til verks líka og trúlega eru þeir vænstu skinn sem hanna brjóstin á fórnarlömbunum.

Myndina sem fylgir færslunni teiknaði Muggur við ævintýrið um Dimmalimm.

10.10.07

Þetta er grafalvarlegt, ungi maður

1. Ég fann þessa kápu handa honum Eiríki vini mínum. Hann er að fara að gefa út tvær bækur, sem samanlagt gætu verið hátt í eina Snorra-Eddu. Uppfærða. 2. útgáfa. XP. Myndin er af Eiríki þegar hann var lítill smaladrengur í erlendri stórborg. Hann tók hana sjálfur á afar vandaða ljósmyndavél á þess tíma mælikvarða, ekki stafræna en með tímastilli sem gekk nógu lengi til að maður gæti gleymt því sjálfur að maður hefði stillt vélinni upp til að taka mynd af sér. Sem er einmitt það sem heppnaðist svona vel í þessu tilfelli.



2. Kalifornja. Kann að djamma. En í íbúðahverfum bæjarins sem kýs bara demókrata er tiltölulega rólegt, enda þekkja menn og skilja lífsgæði. Þeir sem brjóta gegn lífsgæðum eru handteknir fyrir quality-of-life crimes, eða lífsgæðaglæpi. Til dæmis þeir sem eru fyrir. Ef menn eru fyrir tvisvar sinnum í röð á innan við 8 klukkustundum er þeim hent í fangelsi, svo þeir hætti því. Blessunarlega var Eiríkur lítill smaladrengur með dreymin augu löngu áður en þessi lög voru sett, annars hefði honum og klettinum hans verið hent í steininn.
3. Þýðir ekki að gráta Björn bónda dæsir þjóðfræðingur. Töff stöff.
4. Peningar óskast.
5. Ég var að vona, enn og aftur, að landið færi á annan endann yfir þýðingu og grein frá mér í Sjónauka, nýja listatímaritinu. Greinin heitir Hallamál. En heimur sem heldur ró sinni gegnum heilu stríðin og hækkar bara í ipodinum þegar hækkar í sprengjunum kallar ekki allt ömmu sína, allra síst enhverjar tímaritsgreinar. Hvað sem því líður er þarna grein sem var mér á tímabili einhvers lags fermingargrein, einhvers lags prívat manifestó, svo mér líðist ekki annað en bretta upp ermar og henda ósóma út í sjó. Mæli með henni. Og mæli með Pasolini, mín grein er viðhengi á hans.
6. Lengi tekur hafið við, dæsir þjóðfræðingurinn.
7. Latíta, latína.
8. Eru ekki örugglega allir að taka þátt í Facebook ævintýrinu? Nýjasta útspil Myspace held ég að verði allri samkeppni rothögg: Myspace er nú eina félagsmiðstöðin á Netinu þar sem gera má óafturkræfan sáttmála við menn og vefstjóra um að tolla saman til dauðadags, þannig að valblaðið „relationship status“ eða radíóhnapparnir einfaldlega hverfi og maður geti aldrei stillt á single aftur. (Kirkjunnar menn skiptast í tvær fylkingar: þá sem fagna innkomu einkvænis í Netheima, og hina sem bölva þeirri upphefð sem þannig hlotnast heimasíðum og kerfisstjórum. Þeir segja: Gjaldið Netinu það sem Netsins er og Guði það sem Guðs er – hjónabandið er fyrir líkama, Netið er einhleypra.
9. Offramleiðsla vensla, dating till I die – það rímar við plötuna hans Brian … Ryan … Adams, þarna frá Kanada: Eighteen till I die, hét hún. Svo hef ég séð íslenskan strætóbílstjóra með „smoking till I die“ á upphandleggnum.
10. Jæja, ég bý í koti, þjóðlegu koti með þráðlausu neti. Það heitir þjóðlegt ef það er gert úr tré.
11. Í dag fer þetta blogg upp í ellefu. Svo kíkir það kannski til Kanada, að kynna sér síróp. Síróp er gert úr tré.

4.10.07

The Plumber of Love

Hvað er nú þetta? Hvurslags … ha!? Jæja, hérna, mamma og pabbi, ekki horfa. Aðrir, bara, gjörsovel. Straight from Berkeley, California, we bring you The Plumber of Louvre, nei Love.