Ég er á Akureyri. Akureyri er fallegur bær. Svo undrum sætir jafnvel. Þessi fjörður. Þetta er eins og best gerist í Svíþjóð. Og hér talar fólk – í það minnsta leigubílstjórinn og konan sem á fornbókabúðina – eitthvað annað tilbrigði við skandinavísku en ég þekki fyrir sunnan. Ég talaði illa um Reykjavík við leigubílstjórann og við hlógum. Þetta er yndislegt. Jólin eru á Akureyri.
Amtsbókasafnið kl. 14:00 laugardaginn 16. desember: Upplestur: Haukur Már & Eiríkur Örn: Svavar Pétur & 20. öldin & Eitur fyrir byrjendur: gaman: mætið, þið Norðmenn.
Uppfærsla: Eiríkur fastur á: flugvellinum í: Reykjavík á meðan: ljósmyndasýningin okkar opnar í: 2 km fjarlægð eða: svo.
Áfram Norðmenn Au-austmenn! Og fljúgið nú, í guðanna bænum. Hvað gerir maður annars af sér einn á Akureyri ef: konan manns festist annars staðar vegna: þoku?
Hefði ég uppgötvað þetta með tvípunktinn fyrr hefði ég: kannski sent ljóð í: Ljóðstaf Jóns úr: Vör. Gott: trix.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli