23.12.06

Skyldur dansa

Níunda paragraf:

Hannes, nóttin er blá mamma, eru ekki einu bókmenntatíðindi ársins, ekki einu skilaboðin um að formbreytingar séu aðkallandi, yfirvofandi jafnvel, því það er margfalda metsölubókin Draumalandið líka. Hún er ekki bara óvenjuleg bók miðað við aðra íslenska útgáfu síðustu missera, heldur er útgáfa hennar öll óvenjuleg: útgáfutími, útgáfuhátíðin í Borgarleikhúsinu, þar sem höfundur fer með kynningu að hætti forstjóra Apple computers inc. Formeinkenni verksins ná langt út fyrir bókina sjálfa – allt verkið miðast við að beita framsetningarhætti sem er kunnuglegur úr öðru samhengi en því sem kallast „bókmenntanna“ til að koma efni á framfæri. Einmitt þannig er í báðum tilfellum um bókmenntir að ræða. Grundvallarforsenda þeirra er ekki værukær virðing fyrir ramma fyrri verka, heldur áflog við heim. Að því leyti, semsagt hvað varðar anda, ásetning og virkni, stöðu verksins í heiminum, má setja Hannes og Draumalandið í sama flokk og bókmenntaverk Dantes og Galileós Galílei. Allt í einu man ég líka eftir barnaplötu með Halla og Ladda þar sem einhver fígúra hrópar undan nálinni: Á! Á! Hættu að rispa mig, snúðu plötunni við, snúðu henni við! Eitthvað í þá veruna. Hér verður ekki reynt að stigraða þessum verkum innan flokksins, en þau eru öll bókmenntir í þeirri merkingu að vera meðvituð um sjálf sig sem texta með ásetning í heiminum – og sveigja miðilinn og formið undir þennan ásetning. Í svipinn man ég hins vegar ekki eftir íslenskri skáldsögu sem fengi að fylla þennan flokk, nema ef vera skyldi Tómas Jónsson, metsölubók.

Og athugasemdir: Ég á ekki við að allar íslenskar skáldsögur séu annars lélegar. Margar eru einmitt góðar, sumar þrusugóðar, einhverjar hafa jafnvel hlutverki að gegna, skipta máli. Áhyggjudúkkur Steinars Braga gerðist jafnvel. Ég á ekki einu sinni við að höfundarnir séu að gera neitt vitlaust, ættu að vera öðruvísi höfundar eða öðruvísi fólk. En einhvers staðar, frá forleggjara, höfundi eða öðrum aðila að íslenskum bókmenntum er aðkallandi þörf á viljanum til átaka eða núnings til að steypa hreinlega skáldsögunni, eins og við þekkjum hana, af stóli. Til að höfuðatriði verði ekki hversu góður einhver er í einhverju, einmitt nákvæmlega því að skrifa sögu, heldur hvað textinn gerir fyrir hugsunina, tungumálið – lesandann sem þátttakanda í samfélagi. Ef til vill er þetta ekki eina hlutverk skáldskapar, áreiðanlega ekki. Á vondum degi má jafnvel halda því fram að í heimi vellandifáránleika gegni hann einkum því hlutverki að varðveita eitthvað sem við getum kallað mennsku þar til rofar til, þannig að þegar rofar til og almennur áhugi myndast fyrir tilvist verði þarna sjóður að leita í. Á góðum degi sýnist manni hins vegar að þetta sé alls ekki nóg – og uppákoma eins og Hannes er einmitt vísbending um það, sem ber að taka býsna alvarlega. Geti texti á annað borð gerst, eins og virðist nú vera tilfellið, á eigin vegum, þá er einhvers konar skylda að láta hann gerast.

Einhvers konar skylda, því þetta orð er til vandræða og ég vildi gjarna líka halda því fram að skáldskapur sé staður til að hlýða engum skyldum.

Engin ummæli: