– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
31.5.07
Frelsi, elskan
Náttúra, menning, framtíð
Lækjareiningar fást hér. Flúðir, starteiningar, smágil hægri og smágil til vinstri, yfirhangandi syllur, djúp gil til hægri og vinstri eða þá djúp gil með flúðum. Og ætti þá enginn að þurfa að gráta Kárahnjúka. Hver eining virðist ekki kosta nema 20-30 þúsund krónur. Á sama stað má fá glæsilega gervisteina í mörgum litum, stærðum og gerðum.
Ég er annars að undirbúa eigin fermingu. Það er tímabært að komast í fullorðinna manna tölu, sumar ástarinnar í þann mund að hefjast og allt hvaðeina. Ef Brissó getur krýnt sjálfa sig fegurðardrottningu get ég í það minnsta fermt mig. Athöfnin mun fara fram í kyrrþey. Lækjareiningar afþakkaðar.
Veit annars einhver hvað tekur við þegar búið er að gera upp og hækka leiguna á síðasta íbúðarhúsinu í Berlín? Fyrir þremur árum heyrði ég að panevrópska ræflasenan væri öll á leiðinni til Azerba(ídsj)zan – en mér sýnist lítið hafa þokast í þá átt. Endilega látið mig vita, ég er svo illa inni í málum hérna í Vesturbænum, en þarf að huga að framtíðinni.
30.5.07
Blautir kartesískir draumar
Bollywoodstjörnur sameina það á undraverðan hátt að vera fallegir og brosmildir framandi íbúar þriðja heims lands OG fallegt, brosmilt, ríkt, frægt fólk. Maður fær þannig 2 fyrir 1, súperextradíl, ef maður segir: Innst inni er Vijayeta bara eins og ég og þú. Nei, ég veit reyndar ekki hvort hún er stjarna. Eða indversk. En ég gúglaði „imp of perversity“ sem er torþýddur frasi, og rakst á bloggið hennar. Fílana. Fíla hugsanlega alla bloggara sem bregða fyrir sig frasanum „imp of perversity“ eins og aðrir tala um veðrið.
Hér hefur einhvern tíma verið minnst á hana Lou Andreas-Salomé sem er fræg fyrir að hafa átt vingott við Nietzsche, Rainer-Maria Rilke og Freud, meðal annarra, en er ekki fræg fyrir skáldsögurnar sínar fimmtán, rannsóknarverkefni eða leikrit. Að hún hafi verið klár fylgir vitaskuld yfirleitt sögunni, ásamt hinu að Nietzsche heillaðist af ljóði eftir hana þegar hún var 19 ára gömul – en gáfur hennar birtast einkum sem kynþokki, gefa henni viðbótar edge sem femme fatale (vá, 15 skáldsögur! eins og vá 40D!) Helst virðist vera að bækur hennar um karlkyns félaga sína hafi notið hylli og verið þýddar … þó er einhver hreyfing að komast á málið enda erum við öll Andri Snær Magnason, inn við beinið, og fyrst ég er að velta þessu fyrir mér má ætla að hann og þúsundir annarra séu að gera það líka.
En Lou Salomé er semsagt snúin aftur á þetta blogg því að kunningjakona mín sýndi mér nokkrar bækur á dögunum, eftir íslenska skáldkonu sem ég hafði aldrei heyrt um. Sú hét Eva Hjálmarsdóttir og lifði frá 1905 til 1962. Hún var óskrifandi, en aðrir sátu við rúmið hennar á Kleppi, þar sem hún bjó trúlega ekki vegna geðveiki, að heita myndi í dag, heldur hugsanlega fyrir að vera „andans kona“ … sátu þar og skrifuðu niður ljóð og sögur sem hún þuldi. Ljóðin sem ég las voru góð.
Huggun
Þótt æfibrautin sé brött og hál
og blóðrisa af þyrnum sértu,
þá mundu, að áttu samt eilífa sál,
og örugg og þolinmóð vertu.
Sú kemur stund, er kallast þú átt
á kærleikans landið hið fríða;
og englar þá hugga, sem áttu hér bágt,
og öllum veitt samúð og blíða.
Ljóðin voru, með nokkrum undantekningum, for-módern að gerð en ort í ótal ólíkum bragarháttum, einhvers staðar á milli Jónasar og Megasar. Ég hef því miður ekkert við höndina nema þetta hér að ofan, úr minningargrein sem Yahoo fann, eina af 6 færslum. – Google skilar 20 færslum á nafn hennar – þar af einni á síðu Andra Snæs Magnasonar. Fjöldi bókanna sem eftir hana standa, og finnast í Gegni, er einhvers staðar þarna mitt á milli, eitthvað um tíu. Þær virðast frekar finnast á Borgarbókasafninu en Þjóðarbókhlöðu, og allar hafa verið í útláni frá 6. nóvember 2006.
Ljóðið að ofan er úr Hvítum vængjum, frá 1946.
Þetta á sennilega ekki að koma neinum á óvart, en þó var mér brugðið: að hafa aldrei heyrt af konu sem virðist, við fyrstu sýn, nokkuð augljóslega standa hið minnsta jafnfætis öllum Skólaljóðaskáldunum. Hún dró trúlega ekki nógu mörg karlskáld á tálar.
Vinkona mín býr á Stykkishólmi og var að ljúka við librettó fyrir óperu um þessa konu, þegar mig bar að garði með enska auðmanninum Barnaby. Ég geri ráð fyrir að gera megi ráð fyrir endurútgáfu einhverra verka hennar þegar kemur að flutningi óperunnar.
Ég er annars haldinn frekar klénum ótta um að konurnar í heiminum séu klárari en karlarnir, ekki bara þrátt fyrir heldur líka vegna þess, að karlarnir berast meira á. Sjálfum er mér borgað fyrir að hegða mér eins og ég sé með doktorsgráðu … mynstrið er ekki jafn ýkt hér, ekki jafn augljóst, og á Ítalíu, þar sem strákarnir búa hjá mömmu sinni fram yfir þrítugt, ljúka ekki námi en fara heldur aldrei úr landi, á meðan stelpurnar ferðast óþreyjufullar heimsálfanna á milli og sanka að sér gráðum en þurfa samt að birta greinar undir nöfnum bræðra sinna. Alls ekki jafn ýkt, en ég sé samt ekki betur en það séu stelpurnar sem flytji út fyrir Evrópu og læri þar, á meðan strákarnir sem áður gerðust heimakærir í Kaupmannahöfn fara nú í mesta lagi til Berlínar, rétt nógu langt til að geta besservisserast þegar þeir koma aftur heim.
Móðir, kona, meyja – en gyðjan er suðrænt fyrirbæri, rökkurdrottningin verður til þarna á mörkunum. Nýkomið í nýlenduvöruverslanir hér í norðri. Það er ekkert því til fyrirstöðu að hlutgerva á sviði hins huglæga, ég geri það á hverjum degi, hugsun er ekkert smá sjarmerandi, femínísk hugsun öðru fremur (en kommón, samt, ef þú ættir að velja á milli langra fótleggja og þekkingar á Irigaray …?)
Í þessu bloggi var ferkvennt, tvímennt, einbreskt, indverskt og andrískt. Úti er háskýjað og lágstemmt. Internetið er blautur kartesískur draumur. Allavega bloggið. Og ég? Einn ég sit og þýði. Hvað sem þú vilt. Mig þyrstir. Trix.
Segjum að netið sé líka Babelsturn, eitthvað ógnvænlegt hlýtur þá að vera í vændum. Til er fólk sem dreymir um að komast á Netið eftir dauðann. Til er transhumanism. Framfarir. Engin takmörk.
23.5.07
22.5.07
Fátækt
Ég vissi ekki að tungumálið bi-y-ði upp á þetta.
Um leið og íbúar í miðbænum vilja að heimilislausir menn hafi heimili annars staðar, spyr sonur Egils Helgasonar pabba sinn: Voru rónar einu sinni menn?
Bilið á milli okkar. Jidúddamía.
1. Það vantar mælistiku og index. Því hér á sér raunveruleg breyting stað, sem enginn mun þó taka mark á fyrr en hún verður færð í tölur: fólk líður minni mun á sér og öðrum í dag en fyrir tíu árum. Óþol gagnvart öðrum virðist fara vaxandi. Aðrir eru samkvæmt skilgreiningu þeir sem sést að eru með undir 200 þúsund í mánaðartekjur. Fátækt líðst þó fari hún samferða sýnilegum listrænum hæfileikum.
2. Það vantar orð yfir fordóma í garð tekna og tilheyrandi lífsmynstra. Nú þegar Kaupmannahöfn ætlar að ryðja Kristjaníu úr vegi, sígaunar átta sig unnvörpum á að Ísland er of kalt fyrir þá og íbúar Njálsgötu vilja ekki að heimilislausir geri sig heimilislega í kringum sig – þegar Frjálslyndi flokkurinn heimtar skorður á innflutning vinnuafls – er rasismi ekki lengur rétta orðið. Stóra breytan er stétt, ekki kynþáttur.
Síðasti South Park þáttur fjallaði annars um frumspeki heimilisleysis.1. júní er á leiðinni
18.5.07
Nýhil kynnir: Snjóvarp!
Nýhil hefur hafið útsendingar á snjó á öllum lausum bylgjulengdum sjónvarpsútsendinga. Óreiðukenndir, iðandi svartir og hvítir flekkir ásamt stanslausu suði á hljóðrás eru sameiginlegt andvarp skáldsystkinanna, eilítið yfirgengileg en réttlætanleg athugasemd þeirra um samtímann, bæði liðinn, yfirstandandi og væntanlegan samtíma. Snjóvarpinu hefur verið svo fyrir komið að það mun vara þó himinn og jörð farist, til hinsta dags og gott betur. Enginn messar við óreiðuna.
Prófessor við Listaháskóla Íslands segir verkið ekki bara frábært, heldur sé um hið hinsta listaverk að ræða, og fer hann fram á að lóð Listaháskólans í Vatnsmýri standi héðan af auð, til minningar um listasöguna „sem er nú loksins, loksins, lokið“.
Út í sjoppu og aftur heim!
17.5.07
Ertekkiaðfökkingdjókímér II
Þrír Pólverjar sem lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af í gær vegna ólöglegrar farandsölu hafa nú greitt sekt og eru farnir frá bænum. Mennirnir voru á sendiferðabíl með erlendum númerum og gengu í heimahús í bænum og reyndu að selja blýantsteikningar og eftirprentanir.
Mennirnir höfðu ekki verslunarleyfi og hafði lögreglan þá í haldi þar til rétt undir kvöld. Þeim var sleppt að undangenginni lögreglustjórasátt. Um 145 myndir voru gerðar upptækar og var einkum um að ræða teikningar af köttum, fuglum, mannvirkjum og blómum. Gangverð mun hafa verið um 2500 krónur á mynd. Mennirnir tengjast ekki pólskum fjölskyldum á Ísafirði. Líklegt þykir að þeir tengist tveimur öðrum pólskum mönnum sem lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af fyrir nokkrum dögum fyrir sömu sakir.
– bloggar Eiríkur upp úr Bæjarins besta. Var þessi stefna mótuð í Lögregluskólanum? Hvaða vald heimtar útrýmingu þess sem heitir á ensku 'civil society'?
11.5.07
Harmónikkumafían hefnir sín og fleiri æsispennandi fréttir frá miðöldum, ásamt fréttaskýringum Ljónasar
Já. He. Ætli Jón H. B. Snorrason svari greininni minni? Á barnum í gær hitti ég konu sem var að ljúka við doktorsritgerð í sagnfræði og sagði „ekki það að ég líti á sjálfa mig sem rasista, en ég fann, þegar ég gekk fram hjá þessu fólki á Laugaveginum, að …“. Og ég hitti lögfræðimenntaða stúlku með býsna falleg augu sem vinnur hjá löggunni og neitaði kæruleysislega að hafa nokkurt álit á lögmæti harmónikkuaðgerðarinnar. Ég sá fólk hverfa inn á klósett til að fá sér í nefið eins og ekkert hefði í skorist. Ég varð ekki var við að mörgum þætti þeir staddir í myndinni Cabaret.
Ég fór annars út í sveit í fyrradag og las gestabók í húsi þar sem allir fyrri gestir virðast hafa verið smalar og fjallkóngurinn á leiðinni. „Hér eru 18 manns, ein Toyota og 15 hestar, við leit í 3. safni. 1 tvílemba fannst ofan við Heiðargil undir Markarlóni, frá Böðvari á Neðra. Önnur frá Einari Kalda á Húsavöllum náðist undir Kvísl. Undir Kletti segjast drengirnir hafa séð lamb, eitt á ferð, en náðist ekki í þetta sinn. Ef til vill eru þeir að stríða okkur.“ Ekki að ég muni örnefni, en ég hafði enga grein gert mér fyrir vinnunni á bakvið þetta kjöt. Frá sjónarmiði markaðar (og ég meina Markaðar) getur ekki verið að þetta borgi sig, frekar en að selja ljóðabækur á börum – bændur fengju áreiðanlega langtum hærra tímakaup við, til dæmis, að spila póker á Netinu.
Kindur eru hannaðar til slátrunar og virðist fyrsta kindin hafa verið alin í Írak um 9000 fyrir Krist. Þannig var það trúlega uppfinningasemi í Mið-Austurlöndum sem gerði Ísland byggilegt, til að byrja með – síðar tók kartaflan við, indíanísk hönnun. Flatkaka með reyktum laxi, osti, pestó og tómatsneið er helsta framlag Íslendinga til matarmenningar heimsins, enn sem komið er. Og croissant-samloka með súkkulaðimjúkís, white-trash eftirréttur sumars ástarinnar 2007 – sem raunar, vel að merkja, hófst eiginlega í gær. Þetta eru allt síðari tíma uppfinningar og enn hefur ekki reynt á hvort þær haldi lífinu í þjóðflokkum eða heimsálfum þegar kreppir í álinn. Til dæmis þegar Kínverjarnir koma:
„Ef þið komist til valda þá neyðist ég til að fresta! Frekari barneignum, húsnæðiskaupum, bílakaupum, ferðalögum, leggja fyrir fé, og hugsanlega verður þetta svo erfitt að ég og frúin neyðumst til að fresta giftingu. Ykkar stefna er niðurrifstefna, hvernig er það hægt að boða stöðvun í atvinnuuppbyggingarmálum ? og koma ekki upp með neitt í staðinn??? hvernig er hægt að styðja slíkt? Þið boðið enga uppbyggingu í landinu heldur vaxandi atvinnuleysi, fólksflótta og fer sem fer, gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja sem blasir við!! Já eymd er valkostur ! ef þú merkir x við vg. ertu búinn að kjósa yfir þig eymd.. Hvernig getið þið verið örugg um að friðurinn haldist í heiminum? Höfum við efni á því að að ganga út frá því vísu? Efnahagur Bandaríkjanna er í molum, Kínverjar styrkjast með degi hverjum og við má bæta að kínverjar eru stæðsti framleiðandi amfetamíns og methadons sem er að eyðileggja æsku vestranna landa, í kína liggur við dauðarefsing gerist kínverji sekur um neyslu eða sölu efnanna, en þeir leyfa framleiðslu og útfluttning á efnunum til þess að skaða vestrænar þjóðir. Hvernig höfum við efni á því að segja stopp við uppbyggingu, meiri atvinnu og betri kjörum? VG er ekki góður kostur...“
bendir Ljónas okkur á, í athugasemdakerfi Vísis. Takk, Ljónas.
Að síðustu: skv. Wikipediu, miðlinum eina, risu deilur árið 2004, þegar rannsóknahópur í Oregon virtist ásetja sér að útrýma samkynhneigð meðal hrúta, með genafikti. Rannsóknahópurinn bar þessar ásakanir af sér, sagðist aðeins hafa verið forvitinn um að finna genið, en ekki ásett sér að „lækna“ hrútana.
Boðskapurinn? Harmonikkumafían, Kínverjarnir, Múslimarnir, Sígaunarnir, Vinstri grænir, dópsalar, samkynhneigðir hrútar og ég erum saman í liði, og ætlum okkur ekki bara að grafa undan efnahag og stöðugleika, heldur öllum þeim gildum sem þetta samfélag hvílir á. Passið ykkur!
Nú er ljóst að þeir sem hafa raunveruleg völd þurfa ekki að tala. Stjórnmálamenn eru með á Moggablogginu, bankastjórar ekki. Ljónas á síðasta orð þessarar morgunhugvekju, í boði frestunaráráttu minnar:
„Helvítis hundasúrusmjattandi hippar með blóm í hárinu og botox í andlitinu, hangandi inná á maður lifandi með alla yfirdrætti í hámarki og búið að hirða aleiguna af vinum og vandamönnum með því að fá undirskriftir á allskyns skuldarbréf og víxla.“
Og hann á líka allra síðasta orðið, en hér hittir hann naglann á höfuðið, sér einmitt sömu staðreyndir blasa við og Hegelistarnir sem eiga erfitt með að kjósa nokkuð af ástríðu um þessar mundir:
„Viljið þið drepa niður allt sem heitir frumkvæði og nýsköpun í okkar góða þjóðfélagi?? Þú skalt nú ath. það þú grunnhyggni Rómverji að peningar eru mjög kvikir, þeir sem eiga peninganna og eru að velta miklu fé flytja þá bara út finni þeir að öryggi þeirra sé ógnað. Ég hef talað við mjög marga peningamenn uppá síðkastið sem segja að ef við fáum hér vinstri stjórn þá munu fletir koma fé sínu úr landi sem fyrst og hefja starfsemi annarstaðar í heiminum, enda blasa ótal tækifæri við mönnum mjög víða í evrópu. Bæði Samfylkingin og VG eru ekki betur að sér en þetta að þau halda að þau hafi þessa hópa í hendi sér, hlutabréf munu svo sannarlega hrapa + Krónan . Gerið ykkur enga grein fyrir því að hér liggja hundurðir miljarða krónubréf sem tikka hér á vaxtamismun, ég þekki menn sem eru að búa sig undir það versta og eru farnir að undirbúa lokun samninga, gætið að því að það þarf ekki að loka öllum samningum til að okkar litla hagkerfi brenni bókstaflega yfir og þetta er mjög sorgleg staðreynd að hér eru hugsanlega flokkar að komast til valda sem hafa það á sinni stefnuskrá að slökkva bara ljósin, gefa allt almannafé og það fé sem þau hafa ekki tök á að gefa þau hafa einfaldlega hótað að hræða það af landi brott! (Ögmundur Jónasson) Þetta liggur bara í augum uppi! Verktakar sem hafa fjárfest fyrir milljarða í lóðum munu jafnvel tapa öllu sínu! Finnst þér það fyndið kanski? Mér og fjölmörgum sem ég þekki finnst þið ekki hafa neina hugmynd um hvað er í húfi og þarna kemur máltækið góða "engin veit hvað hann hefur átt fyrr en misst hefur"“
9.5.07
Annars telst þetta fólk ferðamenn
„Í gær var 10 ára rúmensk stúlka handtekin í Ósló með móður sinni vegna þess að sýnt þótti að stúlkan væri gerð út sem vasaþjófur í verslanamiðstöðvum. Þeim mæðgum verður vísað úr landi vegna þjófnaðar. Annars telst þetta fólk ferðamenn, sem má dvelja í landinu í þrjá mánuði í senn án landvistarleyfis, en er þá sent heim.“
– segir RÚV en Norðmönnum finnst undarlegt að rúmenskir götutónlistarmenn séu sendir frá Reykjavík til Osló. Þetta fólk, þetta fólk – annars telst þetta fólk ferðamenn. Af hverju er ekkert íslenskt orð fyrir ethnicity? Í gær var 13 ára íslenskur piltur tekinn í Reykjavík fyrir veggjakrot. Foreldrar hans voru áminntir. Annars telst þetta fólk manneskjur.
Sennilega er rasismi strangt til tekið rangt orð yfir það sem hér er á ferðinni, því væri þetta fólk með meira fé á milli handanna og smekk fyrir hárgreiðslustofum frekar en harmónikkum væri engin athugasemd gerð við dvöl þess á landinu. Þessir römmu fordómar snúa nefnilega ekki einfaldlega að kynþætti, heldur og efnahag og lífsmáta. Smekkur nýríkra þolir ekki að annað sé til – í öllu falli ekki að það sjáist – þess vegna þarf að rýma Kristjaníu, þess vegna anda allir léttar þegar kebabbúllur brenna og þess vegna líðst ekki að hingað komi lággjaldalistamenn.
„Ég tel að þessi uppákoma með sígaunana sem voru sendir hingar af rúmönsku mafíunni til að betla fyrir skuldum réttlæti kenningar Frjálslynda flokksins um eftirlit á útlendingum, og að þar sé enginn rasismi í kenningum þeirra, heldur heilbrigð skynsemi.“
segir einn ummælandi á vísi.is.
En eins og Rafaugað benti á hefur lögreglan nú dregið til baka fullyrðingar um tengsl við „glæpagengi“ og þar með gerst sek um rógburð, ofan á allt annað. Eða svo væri í öllu falli litið á væri um manneskjur að ræða. Lögreglan telur sig sennilega sleppa með skrekkinn því þetta fólk hnuplar í norskum verslunarmiðstöðvum.
7.5.07
Ertekkaðfökkíngdjókímér?
„Tveir hópar rúmenskra ríkisborgara, átta og ellefu manna, sem dvalið hafa í miðborg Reykjavíkur að undanförnu fara úr landi í dag. Þetta munu vera 17 karlmenn og 2 konur, en engin börn.
Fólkið kom frá Ósló og Kaupmannahöfn. Jón H B Snorrason, varalögreglustjóri í Reykjavík, segir að kvartanir hafi borist frá verslunareigendum vegna fólksins sem betlað hafi við verslanir.
Fólkið hefur verið hér um skamma hríð, nokkrir áttu farmiða heim, aðrir eru algjörlega peningalausir. Undir þá var borgað en engum var vísað úr landi þótt lagaskilyrði hafi verið til þess, m.a. þar sem annar hópurinn viðurkenndi að hafa ætlað að vinna hér svart, það er á tilskilinna leyfa, segir Jón H B Snorrason.“
Þeim var ekki vísað úr landi. Þeim var bara sagt að fara. Og borgað undir þá flug. Hver þarf Frjálslynda flokkinn þegar hann á efnahagsafbrotadeild lögreglunnar?
Nýríkum Íslendingum finnst efnalitlir óþolandi, fátækir til ónæðis og skammar. Skiljanlega, þeir hafa engan smekk fyrir rakspíra. Skiljanlega fögnuðu menn þegar Kebabbúllan brann og það er líka ósköp skiljanlegt að menn vilji ekki hafa betlandi harmóníkkuleikara á götunum þegar Elton John ætlar að taka lagið yfir kvöldkaffinu þeirra.
Hvað er að ykkur, hálfvitarnir ykkar!? Og hvern ávarpa ég? Hvaða andlit hefur þetta afl? Jón H B Snorrason? Hringir maður í hann til að hvæsa? Sennilega var „engum vísað úr landi“ einmitt til að sneiða fram hjá mannréttindabroti, sennilega þyrfti dáldið gott lögfræðingateymi til að skjalfesta að nokkuð hafi einu sinni gerst.
Nei, þetta er ekki fyndið, þetta er ógeðslegt. Og það sem kosningaumræða síðustu vikna hefði átt að snúast um er einmitt þetta ógeð. Það er eitthvað langtum djúpstæðara en tannvernd – djúpstæðara og raunverulegra. Framtíðarhorfur samfélags ráðast af gildunum sem það ræktar. Okkar dagar vita einfaldlega ekki á gott. Allt í einu finnst mér að ég hefði átt að vera að segja eitthvað síðustu vikur – hvers vegna er svona erfitt að finna snertiflöt við kosningar? Hvers vegna er ekki pólitík í stjórnmálum, þegar öll önnur svið mannlífsins eru gegnsósa af henni?
Ha … jæja, við getum fundið Rúmenana, beðið þá afsökunar og boðið þá velkomna aftur eftir fjögur ár. Það verður áreiðanlega forgangsverkefni vinstri flokkanna eftir jafn áreiðanlega glæstan kosningasigur.
---
Kl. 14:23 var bætt aftan við texta fréttarinnar: „Þetta fólk hafi ekki haft möguleika á að framfleyta sér í Reykjavík og hafi sofið í almenningsgörðum.“ Nú er fyrri hluti málsgreinarinnar augljós lygi, því ég horfði á tónlistarmennina framfleyta sér. Síðari hlutanum er sjálfsagt ætlað útskýringar- ef ekki réttlætingarvægi: annars vegar er ekki prýði að því að fólk sofi í görðunum í borginni, við vitum öll að þeir eiga helst að vera tómir, hins vegar hlýtur það að vera fólkinu fyrir bestu að við sendum það burt, svo það geti þá sofið í hlýrri görðum annars staðar.
---
Þá hermir mbl.is: „Sagt var að lögreglu gruni að fólkið hafi verið undanfarar glæpahópa.“ Og að auki: „Ábendingar hafi borist frá Norðurlöndunum, að sambærilegir flokkar fari þar um og séu undanfarar stærri hópa, sem hyggist stunda óleyfilega starfsemi.“ Umorðað: Á Norðurlöndunum eru menn með fordóma fyrir sígaunum. Við ákváðum að rétt væri að taka þá upp líka.
---
Kl. 16:14 bætir mbl.is við sínar fréttir: „Lögreglan segir, að fólkið haldi af landi brott í dag og fari héðan sjálfviljugt en hópurinn telur alls 21 einstakling, bæði karla og konur og eitt barn.“ Hvernig var vilji fólksins leiddur í ljós? „Tæplega helmingur hóps Rúmena, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft afskipti af, kom til landsins í gær en hinir hafa dvalið hér á landi í nokkra daga,“ segir líka í fréttinni – hvað var það sem fólkið skildi ekki um eigin langanir í gær en lærðist í dag?
---
6.5.07
M, tími!
Tvítugur Íslendingur flaug til Frakklands með það í huga að ganga sveitaveginn milli tveggja borga, staðnæmast á vínbúgörðum, beiðast gistingar, „já, þakka þér kærlega, ég myndi þiggja kvöldverð,“ daðra við heimasætur og stela eplum af trjám þegar svo bæri við. Leita skjóls í helli ef brysti á þrumuveður. Lesa bók við kertaljós. Kannski einhver myndi kenna honum að skjóta fugla sér til matar. Akurhænsn. Frakkar framleiða svo margar búningamyndir.
Á leiðinni út úr borginni á fyrsta degi, með bakpoka á bakinu og annan bakpoka á maganum og rauðflekkótta höfuðkúpu undir grimmri sól í hostúðlegri náttúru (Já! Nú má segja hostúðleg, í fyrsta sinn á Íslandi!) því í interrail bæklingum birtist hin búningamyndin af Frakklandi, þar sem ungir menn snoða sig og setja upp sólgleraugu fyrir ferðalög, rétti ungi maðurinn (les: þessi galgopalegi uxbuxi) svo út þumal til að komast að næstu bensínstöð og kaupa meira vatn að drekka. Fyrsti maður sem stoppar sagði: „Ég er einmitt á leiðinni til Toulouse, hoppaðu upp í, ég á nefnilega tvær konur, guð minn góður hvað það er erfitt, eina eiginkonu í Bordeaux og eina hjákonu í Toulouse, ég fæ engan frið, annars er ég antíksali, nú er ég að ferja þessar mubblur hérna í skottinu, lífið er bara þjáning“ en bíllinn var spánnýr og fór ekki langt niður fyrir 200 leiðina á enda, sem tók þá rúma klukkustund undir tuði í stað tveggja vikna við fuglasöng. Út á gangstétt við kaffihús í miðbænum, farvel!
Lunganum af þeim tveimur vikum sem eftir voru varði strákurinn í borginni Perpignan, sem hefur lagt sig fram um að verða ekta með því að leggja á um miðbæinn, þar sem sama vatnið lekur fram og til baka – aðra áttina fyrir hádegi, hina síðdegis.
Þetta var kennslustund um liðinn samtíma. Nú er samtíminn ekki lengur antíksali á nýjum bíl heldur fjölmiðlafulltrúi á gömlu reiðhjóli. En áin í Perpignan rennur enn fram og til baka.
1.5.07
Í kvöld: Bein útsending frá flettiskiltinu við Hafnarfjarðarveg
Þetta heita sjónhverfingar. Og frekar prímítífar sjónhverfingar. Sjónhverfingamaður Impregilo eða „fjölmiðlafulltrúi“rekur líka fyrirtækið Íslensk almannatengsl. Á heimasíðu þess segir:
„Krísustjórnun snýst fyrst og fremst um að koma í veg fyrir að fyrirtæki verði fyrir ímyndaráföllum. Komi hins vegar til þess að ímynd fyrirtækis verði fyrir skakkaföllum er hægt að takmarka skaðann með vel skipulagðri áætlun. Röng viðbrögð við ímyndaráfalli er góð leið til þess að bæta gráu ofan á svart.“
Á síðu fyrirtækisins segir líka, um þrýstihópavinnu:
„Fjölmargir aðilar geta verið flokkaðir sem þrýstihópar á Íslandi. Sem einfalt dæmi má nefna Kvennaathvarfið, Rauða kross Íslands, Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd og íslensk stéttarfélög. Allir þessir hópar leggja sig fram við að hafa áhrif á lagaumhverfi sitt og tryggja að þeirra rödd fáist heyrð, séu breytingar fyrirhugaðar á því.
Það sama á við um íslensk fyrirtæki. Þegar breytingar voru fyrirhugaðar á olíugjaldi á Íslandi leitaði fjármálaráðuneytið til olíufélaganna eftir umsögnum um áhrif fyrirhugaðara breytinga. Olíufélögin lögðust gegn breytingunni og það að ráðist var í breytinguna engu að síður sýnir einfaldlega að þrýstihópavinna (e. lobbyism) þeirra skilaði ekki árangri sem erfiði (sem var þónokkuð, skv. upplýsingum Íslenskra almannatengsla).“
Maðurinn sem vinnur við að láta Impregilo líta út eins og Kvennaathvarfið er sómakær borgari, það hét einu sinni „vandur að virðingu sinni“, og hótaði á dögunum að kæra Gauk Úlfarsson fyrir að kalla sig rasista. Um svipað leyti bloggar hann um áhyggjur sínar af því að Íslendingar láti glepjast af falinni og óheiðarlegri álagningu sjoppueigenda.
Ég veit ekki hver orðabókarskilgreiningin á sýkópata er og nenni ekki að lenda í kærumáli. En fjölmiðlar ættu ekki að ræða við fjölmiðlafulltrúa, ekki frekar en blaðaljósmyndarar taka myndir af auglýsingaskiltum.
---
„Þau tíðindi gerðust aðfaranótt 20. jan. 1932, að hópur manna ruddist inn í hús eitt í Keflavík, þar sem Axel björnsson, formaður Verkalýðsfélags Keflavíkur, var næturgestur. Var þar kominn flokkur útgerðarmanna, 20-30 alls, undir forustu Elíasar Þorsteinssonar. Létu þeir ófriðlega. Eftir nokkur orðaskipti og hótanir um meiðingar, tóku þeir Axel með valdi, fluttu hann út í mótorbát og héldu til Reykjavíkur. Hótuðu þeir honum öllu illu, ef hann kæmi aftur til Keflavíkur. … „Ástæðan til ofbeldisins getur verið sú ein, að ég er form. Verkalýðsfélags Keflavíkur, sem á í launadeilu við útgerðarmenn í Keflavík, friðsamlega af félagsins hálfu. …““
Ár og dagar, 1875–1934, bls. 150-151.
Þetta var annar langafa minna í móðurætt, en langafi minn í föðurætt, Helgi Hannesson, hefði orðið hundrað ára á dögunum. Um hann birtist aldarminning í Morgunblaðinu í dag. Annar var kommi, hinn krati, báðir hugrakkir.

