30.10.06

Greinin i Ekstrablaðinu þyðir varla neitt neitt!

Stærsti fyrirsjáanlegi kostur þess að ganga í Evrópusambandið og taka upp Evru sem gjaldmiðil er að ef til vill lærði fólk á nýjan leik að tala um e i t t h v a ð a n n a ð en gengi íslensku krónunnar sem virðist vera orðinn mælikvarði á alla hluti. Raunar hefur þessi fjarstæða náð svo miklu flugi að setja má fram nýja kenningu um merkingu: merkingarbært er það sem hefur áhrif á gengi íslensku krónunnar stöðugu. Og jafnvel: satt er það sem hækkar gengið eða heldur því stöðugu. Þetta auðveldar vitaskuld alla rökgreiningu til muna, en eins og Wittgenstein áttaði sig á er hætt við að í svo sléttu og felldu greiningarlandslagi missi maður og heimur allt viðnám.

Héðan:

Grein danska blaðsins Ekstra-Bladet um íslenska fjármálaheiminn hefur haft lítil áhrif á gengi íslensku krónunnar, samkvæmt því sem fram kemur í Morgunkorni Glitnis. Gengi krónunnar lækkaði umtalsvert á föstudaginn í kjölfar orðróms um að neikvæðrar umfjöllunar væri að vænta í danska blaðinu. Gengi krónunnar hefur hins vegar hækkað talsvert í dag sem gefur til kynna að söluhliðin á gjaldeyrismarkaði sé áfram sterk. Þó telja sérfræðingar Glitnis líklegt að gengi krónunnar muni halda áfram að sveiflast á tiltölulega þröngu bili.

Tvær kynsloðir

Tilgáta: hér var engin borgaraleg millistétt þegar stúdentar í Bandaríkjunum og Evrópu hófu að mótmæla tupperwaretempói lífsins. Hér var þó mikil löngun til að vera með. Í gegnum sýndarþátttöku í uppreisninni uppgötvaði íslenska '68 kynslóðin allt það sem mótmælt var og hóf að halda tupperwarepartí í kjölfarið – hugsanlega sérstaklega harðsvíruð tupperware-partí, því sá sem kynnist lífsmáta aðeins í gegnum mótmæli sem beinast að honum kynnist bara stærstu og grófgerðustu löstum hans. Þessa lesti tók Kynslóðin upp sem dyggðir og því eiga bæði vinstri- og hægrimenn sína eftirlætisauðjöfra.

Nú, nálægt því hálfri öld síðar, eða öllu heldur þeim 30-40 árum síðar sem sagan hermir að taki hugmyndir að skola á Íslands strendur, ef til vill vegna þýðingarvanda, er vaxin úr grasi umhverfisverndarsinnuð og fjölkynhneigð íslensk kynslóð listaháskóla-grænmetisætna sem gerir Reykjavík að þorpi, ráfar þess á milli um Evrópu, finnur sér föt úr ruslagámum, þykir vænt um gömul hús, gerir ástúðlega tónlist í hverju fótmáli, flytur að lokum út á land og ræktar sitt eigið kannabis í svo ríkum mæli að heyrst hefur af útflutningi til Evrópu. En þetta gerist yfirlýsingalaust eða -lítið, foreldrar okkar höfðu þegar notað öll orðin, eða hver vill kalla sig hippa?

Og hvers vegna vottar fyrir guðbersku um leið og maður skrifar um '68 kynslóðina?

29.10.06

Fjarstæður

Ekki að þetta skuli sjá sem viðbragð við gagnrýni Ekstrablaðsins á viðskiptahætti íslenskra auðjöfra, en það er merkilegt að glugga í ný dagblöð … meðal frétta í Ekstrablaðinu í dag er „fyrsta nasistahljómsveit“ Dana, sem segist flytja hvíta tónlist fyrir hvíta unglinga. Í umfjölluninni birtist vænt textabrot, gott ef ekki heilt sönglag, hljómsveitarinnar, og loks eru lesendur látnir vita hvar má kaupa plötuna, ef ég les dönskuna rétt.

Hvis der mod forventning skulle findes interesserede købere blandt ekstrabladet.dk's læsere, så kan den bizarre udgivelse bestilles på DNSB's hjemmeside.

Hver einasti dagur eilítið trámatískur, hver einasti dagur eins og annar heimur, á hverjum einasta degi: hið ómögulega.

Ekstrabladet segir:

503 Service Unavailable

Too many incoming HTTP requests

Íslendingar eru nefnilega ekki bara nýríkir brjálæðingar heldur og hysterískir netfíklar. Spurning: Gúgla Íslendingar sjálfa sig oftar, miðað við höfðatölu, en fólk af öðru þjóðerni?

28.10.06

X 2

Ein möguleg útlegging er að lýðræðið sé horfið. Að hið „lýðræðislega afl“ internetið sé í það minnsta skref í þróun þangað að almenningur geti í raun og sanni sagt og gert það sem hann vill, svo lengi sem það hefur engin áhrif á „alvöru heiminn“ – þar sem einhverjir aðrir / eitthvað annað ræður / ráða. Hugtakið „orðin tóm“ sé að vinna fullnaðarsigur.

Bestu dæmin eru ef til vill umræður um vöntun á umræðu, sbr. lungann af því sem sagt var um aðild Íslands að Evrópusambandinu á meðan Davíð Oddsson var forsætisráðherra: „Ég bara skil ekki hvers vegna engin umræða fer fram / má fara fram um X“.

Og þar er freistandi að draga Baudrillard til sögunnar: að sefasjúkt hafi fólk keppst eftir að ætla valdsfígúru, í þessu tilfelli Davíð, meira vald en hún annars hefur til að bera, því það vill ekki geta – valdið / getan er þá kvöð sem manneskjur keppast við að losna undan, varpa á einhvern hinn, tiltölulega stóran Hinn, sé þess kostur. Enda virðist viðbragðið við hvarfi Davíðs úr forsætisráðuneytinu líka nokkuð hysterískt: í fyrsta lagi beinist nú öll athygli fjölmiðla látlaust að gengi krónunnar og aðgerðum Seðlabankastjóra, í von um að persónan haldi okkur í ógnargreipum, þó hún hafi horfið úr stöðunni sem kvað gera henni það mögulegt áður. Í öðru lagi er ríkisstjórnin sökuð um að stjórna ekki nóg, Helgi Hjörvar kallar eftir sterkum leiðtoga. Í þriðja lagi hópast tugþúsundir á eftir Ómari Ragnarssyni niður Laugaveginn, um leið og þess verður vart að hann hafi sannfæringu. Ég held að hér megi telja áfram og mig grunar að staðreyndin / plágan sé þessi: að við (opið mengi, þið megið velja hvort þið tilheyrið því eða ekki, en ef til vill skarast það allrækilega á við vinstri menn, kannski nær alla Íslendinga, og það gæti hæglega verið enn víðfeðmara, jafnvel almennt) viljum hvorki ráða né vita, heldur kvarta yfir því að aðrir geri það.

Í ljósi þessa er hlerunarmálið, sem enn er ekki kallað „stóra hlerunarmálið“ því eftir er að kjarna það, sérstaklega vandræðalegt: það lítur út fyrir að „þeir“ hafi ráðið einhverju og vitað eitthvað í raun og veru, að þeir hafi ekki bara verið að kóa með hysteríu okkar, ekki bara tekið á sig kvöðina.

Er ég að segja eitthvað? Heldur þetta vatni?

X gonna give it to ya

Eru bloggheimar í eðli sínu léttúðugir og orð þeirra pistlæg – og þá hvers vegna – eða er hægt að vera blátt áfram fúlasta alvara í bloggi?

Offramboð pistla í fjölmiðlum hefur komið til samfara fæðingu og uppvexti bloggsins, þar sem allir eru hugsanlegir álitsgjafar um allt. Burtséð frá nokkrum andans mönnum og konum sem hefja formin á hærra plan, sumir með nokkurs lags barrokki, skrauti, flúri og skemmtilegheitum, sem er ekki endilega yfirborðskennt, aðrir með skarpri hugsun, þekkingu og greiningu, sumir jafnvel hvoru tveggja í senn, virðist algengasta formið, staðalform, pistla og blogga ef svo má segja vera: Ég skil ekki x! – þar sem upphrópunarmerkið leikur aðalatriði, en x getur verið hvaða dægurmál, uppákoma eða afstaða sem er. Eftir að reifa nokkra þætti þess sem höfundur skilur ekki með nokkrum, yfirleitt súblímeruðum, upphrópunarmerkjum (það er, földum í talsmáta og orðræðuhætti, frekar en bókstaflegum upphrópunarmerkjum enda þykja þau banal), er botninn yfirleitt sleginn í pistilinn á léttu nótunum, oft með fjarstæðukenndri tillögu eða dómi, til að undirstrika hversu fáránlegt allt þetta x sé en hleypa lesandanum burt í góðu skapi.

Nú er ljóst að engin ytri ritskoðun á sér stað á bloggsíðum, þó ljóst sé að sumir pistlahöfundar dagblaðanna endast lengur í starfi en aðrir. Strúktúrinn virðist liggja í loftinu, tilheyra okkur öllum, ef til vill nennir enginn að lesa annað, eða kannski geta fáir skrifað annað af heilum hug: kannski er þessi strúktúr eini sannleikurinn um okkar tíma.

Er heimurinn fjarstæðukenndur í augum þátttakenda hans og eina heiðarlega viðbragð flestra furða? Hefur það alltaf verið þannig? Ef ekki, hvenær gerðist það – og hvað gerðist? Er þetta lokastig marxískrar firringar? Eða erum við ennþá bara á grunnmmiðum? Erum við öll einfaldlega fegin þessu – er allsherjarástand furðunnar eitt skrefið enn í að losna við völd, eins og Baudrillard heldur því fram að sé æðsta takmark og raunverulegur drifkraftur fulltrúalýðræðis, því það séu forrréttindi að vera án þeirra? Eða er þetta tímabundin vitleysa, rétt á meðan við (Íslendingar, Vesturlandabúar, mannfólk?) áttum okkur á afleiðingum iðnvæðingarinnar/kjarnorkusprengjunnar/símans/aldamótanna/lýðræðisins/alþjóðavæðingarinnar/falls Sovétríkjanna/getnaðarvarnapillunnar?

Ég hef gerst sekur um þetta sjálfur og mér líkar það ekki. Þar sem ég er, eins og aðrir, sjúkdómseinkenni á veröldinni má ætla að eitthvað sé þá að breytast, að fleiri þyrsti í nýja gerð af áliti – jafnvel eitthvað allt annað en álit. Sannfæringu?

27.10.06

Fjórði hvalur Hvals 9

Skýrist ekki grundvallarmunurinn á afstöðu Íslendinga og alþjóðasamfélagsins á því að hér nam Kant aldrei land? Íslendingar hafa um nokkra hríð verið hrifnir af nytjastefnu Mills, og vísa bæði vinstri- og hægrimenn í rit hans jöfnum höndum, enda hefur hann verið þýddur og aðgengilegur um áratugabil. Algildishugmyndir Kants rista hins vegar ekki djúpt í landinu, að maður eigi að gera ráð fyrir að útfrá sérhverri athöfn manns megi setja fram allsherjarlögmál. Ef til vill er hreinlega 'hið almenna' ekki til á Íslandi. „Kommón, níu hvalir!“

Að vanda sig og að raska

Ég fékk þessa réttmætu gagnrýni í tölvupósti frá hreinskiptum vini mínum:
„Ég heyrði pistilinn þinn á rás 2 á mánudaginn og mér brá. Það var dálítið einsog að hlusta á táning með tyggjó sem er spurður um álit sitt á einhverju máli líðandi stundar þegar hann er að borða franskar á Kvíkk í kringlunni: "..... ég veit það ekki.... frænka mín sagði einu sinni að það ætti frekar að drepa Íraka en hvali og þess vegna skil ég ekki fólk sem er á móti hvalveiðum.“

Pistilinn krotaði ég einmitt niður í stikkorðum hálftíma fyrir lestur, án þess að vita hver niðurstaða hans myndi verða eða hvernig hann yrði í laginu – því eftir að klára skáldsöguna sem má kaupa hér ofar á síðunni hef ég einmitt eiginlega ekki haft neitt að segja. Ég beitti nokkrum vel þekktum brögðum til að fylla sirka upp í orðakvótann sem Nýhil hafði verið úthlutað, því ekki viljum við missa kvóta. Þetta var svona „ég skil ekki“-pistill, og já, það má skamma mig fyrir að hafa flutt hann, en það má líka verja það með aðstæðum. Pistillinn var það sem má kalla á máli tónlistarmanna lélegt gigg. Hins vegar barst mér það orð á götu að tiltekinn frétta- eða rit- eða framkvæmdastjóri Fréttablaðsins sem hreifst aldrei af ágætum textum sem ég raunverulega skrifaði fyrir það blað, hefði sérstaklega hrósað þessum gufusoðna lestri mínum.

Ef ég er maður 1, vinur minn maður 2, rit- eða eitthvaðstjórinn maður 3, þá sat maður 4 hjá mér og sötraði te áðan og sagði mér í óspurðum fréttum hvernig hann fengi alltaf mest hrós og víðast að fyrir þau blogg og þær greinar sem hann skrifaði með minnstri hugsun og flestum klisjum. Þó úrtakið sé ekki stórt slagar það áreiðanlega hátt í úrtak rannsóknar Stefáns Snævarr á skilnuðum þar sem karlinn er franskur en konan íslensk, svo stætt er á að tala um ástand. En hvaða ástand er þetta og er það ástand okkar, manna 1 og 4, ástand Íslands, ástand Vesturlanda eða ástand heimsins?

Í samhengi, og án þess að hér þurfi að klára pússlið: öll dagblöð og allir fréttaþættir hafa sama snið og kvikmyndir frá Hollywood: hversu mikið sem gengur á, hversu mörgum konum sem er nauðgað, börn myrt, hvaða styrjaldir sem hefjast og lýkur eða lýkur ekki, lýkur fréttamiðlinum alltaf á léttu nótunum. (Og ekki að það sé ekki ljótt að myrða, limlesta eða einfaldlega meiða karlmenn líka).

Mér er sagt að merkasti kostur íslenskra heimspekinga í Noregi sé alhæfingagleði.

„Mér er sagt að ein helsta skilnaðarorsök í hjónaböndum þar sem karlinn er Frakki, konan Íslendingur, sé að Frakkarnir fái nóg af hæfnileysi kvennanna til að ala börn upp.“ Stefán Snævarr í Fréttablaðinu. Greinin öll er tilvitnanahæf.

Mér finnst annars, ég hef sterklega á tilfinningunni, eftir eitt dægurviðtal og einn draslpistil, þetta liggur í maganum á mér, að öll orð sem ég og aðrir láta út úr okkur um annað en Írak séu lygi. Ekki að það sé hægt að segja neitt viturlegt um Írak, ekki einu sinni bretta upp ermar og taka til hendinni – en spurning dagsins er þessi: Þarf í alvörunni, samkvæmt einhverju freudísku/hegelísku/lacanísku/foucaultísku lögmáli allt að fara til fjandans einhvers staðar til að annars staðar svigni öll borð undan lífrænt ræktuðu grænmeti? Ef svarið er já, ef þetta er einhver óyfirstíganleg formgerð, þá er skynsamlegast að slökkva á samviskubitinu og segja bara „tough luck, krakkar“ við þriðja heiminn etc. „Bara óheppilegt að það skuluð vera þið, skiljiði?“

Önnur útlegging á sömu spurningu væri þá: hversu alhæfingaglaður er heimurinn?

Í Blaðinu má vænt ágætrar myndar af mér við viðtal um sjónvarpsfýsn liðinnar viku. Já, ég er ennþá kvefaður, alveg hellaður, og mannfælinn og óhugsandi, með hor í staðinn fyrir heila lungann af deginum, en ég er búinn með allt sjónvarpsefni sem ég hef nokkra trú á. Ábendingar vel þegnar.

P.S. Ekki það, að Stefánn Snævarr hefur trúlega rétt fyrir sér um alla hluti. Hann er skarpskyggn. Kannski að sefasjúkur stíllinn komi til af því að í raun veit hann að einmitt með því að hafa rétt fyrir sér er heimurinn sem hann talar frá, sjónarhóllinn sem hann sleppur ekki undan, þegar liðinn undir lok. Greinarnar eiga við það að stríða, svo að segja, að vera ekki mögulegar og þar með varla til.

24.10.06

Lausnin fundin!

Strætó & ofnalykil!

Drykkjumannavisur fyrir börn?

Off … úff … sit og læt frá mér búkhljóð, er búkhljóð, mér finnst nefið vera einhvers staðar yfir þriðja auganu, þetta heitir kvef eða flensa og ofnarnir í fallegustu íbúð Reykjavíkur virka ekki enn. Þarf að velja og hafna: taka leigubíl í vinnuna á eftir eða kaupa ofnalykil í Brynju.

Flutti óskrifaðan bráðapistil á Rás 2 í gær. Aldrei aftur, skrifa næst. En vandi minn er þó einkum sá að ég hef ekkert að segja eftir að ljúka við þessa blessuðu bók. Ég nenni ekki að tala við fólk, mig langar að rétta þeim sem nálgast mig miða sem á stæði: „lestu bókina“ – taka svo upp frekari samræður í febrúar. Jæja, ó jæja, látum hann hlæja … og önnur vísa sem rifjaðist upp fyrir mér rétt í þessu:

Maðurinn með hattinn
stendur upp við staur
hann borgar ekki skattinn
því hann á engan aur.
Hattinn oní maga
og maginn oní skó,
reima svo fyrir
og hendonum út í sjó!

Hver gerir annars ekki ráð fyrir að síminn hans sé hleraður? Og hver þorir að vera róttæklingur um þessar mundir, annar en Hreinn Hjartahlýr sem mun áreiðanlega aldrei fá vegabréfsáritun til Þingvalla? Ef Helgi Hjörvar óskar þessari þjóð sterks leiðtoga, óska ég þess að það verði Hreinn Hjartahlýr. Skrifa ég og sýg upp í nefið. Er veröldin óðamála og brotakennd, eða eru það bara blogg kvefaðra?

23.10.06

Hun er komin!

Og hefst þá uppboðið á sjálfum mér – allir sem vettlingi geta valdið mega gjarna birta svona „sticker“ á blogginu sínu. Ég móðgast ekki þó einhver kjósi heldur þann minni og látlausari …

svavarkrypurplus.gif

svavarlitill.gif

þið hin: kaupið bókina áður en það verður of seint.

18.10.06

Visindi

„En þessar mannfjöldaspár eru þörf áminning um að ekkert samfélag á sér bjarta framtíð nema það viðhaldi heilbrigðri frjósemi.“ Auðunn Arnórsson hér. Ég get mér þess til að hann sé andsnúinn aðild Akureyrar að ESB.

9.10.06

Brauð og njosnaleikir

Það teljast trúlega nokkuð vel heppnuð klókindi að tilkynna um lækkun matarskattarins, sem á að ganga eftir næsta mars eða kortéri fyrir kosningar eins og Egill Helgason orðaði það, um leið og ríkisstjórnarflokkarnir standa frammi fyrir, að því er virðist, raunverulegum pólitískum skandal – jafnvel skandal á heimsmælikvarða.

Hvort tveggja kemur svo upp um leið og tappað er á stífluna þarna upp frá … á næsta ári vil ég að eitt gerist í einu, kæri Jóli, eitt í einu.

Annars, forsíða Fréttablaðsins í dag: Marel stærst í heimi, og Yoko helgar stað súlunnar sem á að standa að eilífu. Eitthvað stærst í heimi og eitthvað eilíft á sömu forsíðu – ég held að við höfum flutt í heim frummyndanna, ég held að hinn heimurinn sé horfinn, ég held að Baudrillard hafi alltaf haft rétt fyrir sér um alla hluti.

Malsvörn a þingi, samantekt

Hér var ekki rekin leyniþjónusta, hér var ekki hægt að reka leyniþjónustu, hér þurfti að reka leyniþjónustu, hún var ekki leyniþjónusta Sjálfstæðisflokksins, þið köstuðuð grjóti í Alþingi, það þarf að upplýsa margt annað, þið eruð að fela eitthvað, þið voruð líka með leyniþjónustu og þið voruð meira að segja með í þessari leyniþjónustu.

Var einhver að tala um brotna katla?