18.12.06

Frændgarður

Það er bara vegna þess að hann hefur ekki áhuga segir kona fyrir utan gluggann minn og samferðamaður svarar hana í kaf: Nei! Það er ekki … og svo fara þau burt og þannig líður dagurinn – djöfulsins regn og slabb og slydda og slor! Ekki að maður haldi ekki höfðinu upp úr ræsinu, ekki að maður drukkni í þessu en ó!

Jæja. Ég ætla að mæla með fleiru. Ég mæli með því að sem flestir leggi leið sína í það sem héðan í frá má heita Höll hégómans: Borgarbókasafn Reykjavíkur, aðalsafn, niðri í bæ, heitir „í Grófinni“ held ég. Þar hanga nú myndir af mér og vinum mínum undir titlinum „Skrásetning kynslóðar“. Og ljósmyndarinn, hann Björn, er góður. Fá skref niður í Borgarbókasafn, eitt lítið skref inn í eilífðina. Eilífðin er náttúrulega hégómi eins og annað.

Muna: Tala meira eins og Kierkegaard. Guð mun dæma – hégómi. Sagan mun dæma – hégómi. Dagarnir líða – hégómi.

Samræða í jólaboði
Ég: Hvað segirðu, hvað ert þú að gera þessa dagana?
Litli frændi: Ég er á leiðinni í trúboð til Pakistan.

Engin ummæli: