Til er einhver óljós saga af óljósum gagnrýnanda sem varð fyrir því einhvern veginn að einhver nýumfjallaður höfundur hrækti á hann á götu. Óljóst er fyrir hversu mörgum árum þetta gerðist en því er ekki að neita að ég fann fyrir löngun til að gera gagnrýnanda eitthvað ljótt, sem ég gekk framhjá í dag, í Bankastrætinu … ég stillti mig ekki beinlínis um það heldur ólgaði blóðið svo í æðum mér að ég varð ófær um að svo mikið sem kinka kolli til kunnugra næsta hálftímann. Lamaður af beiskju. Ekki gott, vinna úr þessu, jóga eða afró-dansar … einhvers er þörf. Boxpúða í eldhúsið.
Einhver eitthvað alltaf. Sumir stundum. Alls ekki, alls ekki! Svo ég stílvitni í kunningjakonu mína. Kannski alltaf héðan af. Hispurs. Gott. Eitthvað hrrr …
Engin ummæli:
Skrifa ummæli