Tíunda paragraf:
Ásetningur hefur alltaf eitthvað með kynlíf að gera. Sá íslenski samtímatexti sem helst hefur sorðið sjálfan mig og sáð er: Víðsjárpistlar Eiríks Guðmundssonar, bloggfærslur Ingólfs Rafauga – á dögunum gerði væntanleg kennslubók hans í stærðfræði líka eitthvað fyrir mig – ljóðaupplestrar Eiríks Arnar og sjálfs mín þegar Íraksstríðið var að hefjast, bókin Af stríði, og nú Hannes. Texti sem þarf svo mikið að verða að hann megnar ekki að bíða eftir að verða bók. Hvað þá skáldsaga.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli