Eftirmáli við jólauppgjör:
Sú hugmynd kom upp innan Nýhil að veita gagnrýnendaverðlaunin, en þetta árið held ég að megi fullyrða að enginn gagnrýnandi sé þeirra verðugur. Gagnrýnirýni væri hugsanleg, og jafnvel stjörnudómar, en ég er ekki viss um að nokkur gagnrýnandi hafi áunnið sér fullt hús. En það var ekki þetta sem ég ætlaði að segja, nú dríf ég mig að efninu því ég finn alla vöðva líkamans spennast upp eftir því sem klukkan nálgast eitthvað og allt sem ég á eftir að kaupa! (Afsakaðu, ég gleymdi víst að vinna mér inn tekjur, geturðu lánað mér fyrir kaffibollanum?) Ég ætlaði að segja:
Viðbrögð þeirra aðila íslenskra bókmennta sem standa nú hinu megin við fertugt, við fyrirbærinu Nýhil og útgáfu þess, bera vott um einhvern sjúkleika. Að því leyti, hið minnsta, sem drjúgur hópur fólks grettir sig þegar hópurinn er nefndur á nafn hefur Nýhil, til góðs eða ills, gerst.
Gleðileg jól kæru vinir til sjávar og sveita,
Haukur Már.
1 ummæli:
Gleðileg jól!
Heiða
Skrifa ummæli