23.12.06

Hannes dansar

Ég held ég birti greinina hér og reyni að halda henni svo til haga: eina hugsun per paragraf, eitt paragraf per færslu.

Á eftir tilvitnuninni í Calvino þetta hér:

Hvað er bók – eða öllu heldur: hvað í fjandanum er bók? Það er, árið 2007. Spurningin endurlífgast í kringum útgáfu og vinsældir Hannesar - nóttin er blá mamma, en þó ekki í þeim skilningi sem ætla má í fyrstu. Spurningin snýst ekki um ISBN númer, blaðsíðufjölda og skilgreiningar, heldur hvaða hlutverki þessir tilteknu hlutir, bækur, blaðsíður með texta, bundnar í kjöl, gegna í lífum fólks, þegar langtum hagkvæmari leiðir eru til staðar til að koma merkingarbærum texta til viðtakenda. Hannes kemur málinu við vegna þess að einblöðungurinn rokselst, á 99 krónur stykkið, hefur meira að segja velt Arnaldi Indriðasyni úr sessi og situr í fyrsta sæti á sölulista Eymundsson yfir allar bækur. Og ætla má að nær allir sem kaupa einblöðinginn lesi hann allan og að hann hafi áhrif á þessa viðtakendur, áhrif sem í það minnsta að einhverju leyti eru beinlínis ljóðræn. Það er ekki fyrir vinsældir höfundar eða forlags, ekki fyrir ytri umbúnað, heldur eiginleika verksins sjálfs, sem það slær í gegn (þó ekki sé vandræðalaust hægt að skilja milli umbúnaðar og innihalds í þessu tilfelli). Þannig naglfestir samanbrotna ljósritið spurningamerki aftan við „stöðu bókarinnar“, en ég leyfi mér að fullyrða að almennt sé ekki litið svo á að seldar bækur í desember séu allar lesnar, og ekki heldur að þær seljist fyrst og fremst vegna eiginleika eða verðleika verkanna sjálfra, heldur hafi orðspor höfundar, kynningaherferðir og fleira utan verksins sjálfs í það minnsta jafn mikið að segja. Hannes er spurning um stöðu bókarinnar vegna þess að einmitt í þessum skilningi er hún ídeal bók, sjálf frummyndin stigin niður á búðarborðið: hún skiptir máli.

Engin ummæli: