28.2.07

„Ég er frjálsasta manneskja sem hefur verið til að því leyti sem málið varðar það að segja hvað sem er“

Rannsóknarniðurstöður kvöldsins:
google2.jpg

Google. Ekki fyrirbærið, ekki 'the Googleplex', þar sem ungir menn borða jógúrt og safna hári á hjólabrettum, heldur hluturinn sjálfur. Eða hluti hlutarins. Þetta er stærsta netþjónabækistöð fyrirtækisins enn sem komið er, ein af 12 alls, nýreist, í The Dalles í Oregon fylki Bandaríkjanna. The Dalles er 12 þúsund manna bær, það er á stærð við Akureyri, sem hingað til hefur unnið sér það eitt til frægðar að fyrsta sýklavopnaárás innan Bandaríkjanna átti sér stað þar árið 1984, þegar hryðjuverkahópur úr kommúnu í bænum, fylgismenn jógans Bhagwan Shree Rajneesh (fæddur Rajneesh Chandra Mohan Jain, en kallaði sig síðar Osho) eitruðu fyrir bæjarbúum með því að dreifa salmónellu í salatbari … til að hafa áhrif á kosningar.


Og víst lendi ég afvega. Eftirfarandi er haft eftir Osho á Wikipediu:

I am the most free person who has ever existed as far as saying anything is concerned. I can contradict myself in the same evening a hundred times. Because it is not a speech, it has not to be consistent. It is a totally different thing, and it will take time for the world to recognize that a tremendously different experiment was going on. … You are not making any effort; neither am I making any effort. I enjoy talking; it is not an effort.

Ekki spurðist aftur til sýklavopna í Bandaríkjunum fyrr en einhverjir sendu einhverjum anþrax þarna um daginn. Jógaleiðtoginn Osho dó árið 1990. Að hans sögn eitraði Reagan stjórnin fyrir honum. Til ljóðmælandans Osho spurðist ekki aftur fyrr en meðal svonefndra Nýhilskálda, upp úr aldamótum.

Jæja, aftur að Google. Nýreista netþjónabækistöðin í The Dalles þekur um tvo fótboltaleikvanga. Ástæða staðarvalsins er vatnsaflsvirkjunin sem heldur bænum gangandi. Umhverfisvernd.

google.jpg

  1. Osho hlýtur að vera sameiginlegur spámaður Nýhil, bloggheimsins, netsins og jafnvel fyrsta áratugar 21. aldar. „I am the most free person as far as saying anything is concerned.“
  2. Upphaflega fyrirætlun mín var að komast að því hvar tölvupósturinn minn er geymdur, annars vegar, og Google Earth hins vegar. Því að:
  3. Það er þessi saga frá Borges um kortið af ríki kóngsins í hlutföllunum 1:1. Og mig langaði að sjá hvað það tæki í raun mikið pláss. Og ekkja Borgesar er á leið til landsins. Núna virðist hins vegar miklu meira vera í húfi. Mig grunar að samtíminn sé allur í The Dalles. Ef
  4. einhver er fús að greiða mér fyrir ferðalag til The Dalles í leit að samtímanum má sá hinn sami skilja eftir athugasemd hér á síðunni og ég hef samband. Ef sáúhinnsamia er bókaforlag og finnst að blæjubíll í eyðimörk ætti að koma við sögu er það engin fyrirstaða, ég tek þá með mér skáld og kvikmyndagerðarmann.

Annars: Í komandi kosningum er ekki nóg að frelsa ástina. Við verðum líka að elska friðinn, hjarta lýðræðið, sigra vonina: Fögnum framtíðinni – dýpkum mennskuna!

Hér má sjá Osho segja tímabært að móðir Teresa stökkvi út í vatn.

27.2.07

Bljúgur á böðlanna fund

Forhúðarflex og sumar ástarinnar, jú. Frétt dagsins er hins vegar á baksíðu Morgunblaðsins – í ljósi sjöhundruð billjónfaldrar metafkomu bankastofnana verður nú skorin upp herör gegn skuldurum. Sýslumaður er búinn að fá nóg, hann hefur margreynt að ná á þetta fólk, það „beitir öllum brögðum,“ svarar til dæmis ekki í símann, bregst ekki við bréfum frá tölvukerfum, gleymir jafnvel að vinna sér inn tekjur í dagsins önn, sumir eru áreiðanlega drykkfelldir, aðrir beinlínis latir, margir er ég viss um að eru klámfíklar, þetta eru svörtustu sauðirnir, segja þeir, og smekklausir með eindæmum, með Hustler plaköt á veggjunum. Nokkur þúsund svörtustu og smekklausustu sauðirnir – ef ég væri sýslumaður væri ég líka búinn að fá nóg – þarna úti er smekkmaður sem missti af Kjarval því þú svaraðir ekki í símann þegar ég var að reyna að hafa af þér dagana!

„Hjá sýslumanninum í Reykjavík liggja fyrir nokkur þúsund kröfur um fjárnám sem ekki hefur tekist að ljúka þar sem fólk hunsar boðanir sýslumanns. Sýslumanninum finnst fortölur nú fullreyndar og í sérstöku átaki sem mun standa yfir næstu daga munu einkennisklæddir lögreglumenn handtaka fólk sem hefur ekki sinnt boðunum, hvar og hvenær sem í það næst.“

Á baksíðunni er því bætt við að fólk verði sótt á heimili og vinnustaði, en ekki leitt út í járnum nema það taki upp á því „að slást“. Ég verð að viðurkenna að ég beinlínis man ekki eða veit ekki hvort ég á mál hjá sýslumanni núna, þau detta inn og út, ég reyni að búa ekki á lögheimili mínu til að dagarnir drukkni ekki í sýndarheimi innheimtubréfa – eina skuldin sem bíður nú greiðslu, það ég muni, er við lífeyrissjóð, vegna skylduaðildar að alþjóðafyrirtækjum. Framtíðarég heimta að samtímaég fjárfesti í vinnu barna í þriðja heiminum. Bregðist ég  ekki nú þegar við þeirri kröfu minni, sendi ég á mig lögfræðinga og að lokum lögregluna. Bregðist ég við með mótþróa eða offorsi verð ég leiddur burt í járnum.

Þá er betra að vera hinu megin sæstrengs, þar sem kaffibollinn kostar eina evru og grasið er, í marsmánuði, bókstaflega grænna. Nafli minn kallar. Eiríkur Guðmundsson og RÚV munu sjá um baráttuna gegn fasismanum á meðan, ásamt framannefndu áhugafólki um forhúðarflex og ástir. Og nýtrúlofuðum. Næsta ágúst verður hópgifting á Kastrupflugvelli.

Ég lofa að blogga aldrei aftur um fréttir. Og segja aldrei aftur blogga.

Muflur, kaffi og bukkake á Vg

Einu sinni var haldin ritgerðasamkeppni á vegum japanska sendiráðsins um raunveruleg eða hugsanleg tengsl Íslands og Japan, verðlaun voru tveggja vikna ferð héðan þangað. Ég skrifaði um vöntun erótískrar hefðar á Íslandi, sem mætti bæta úr með innflutningi, hvernig við gætum lært af aldagömlum bindinga-, pyndinga- og niðurlægingarhefðum Japana.

Ég komst ekki til Japan, enda var þetta vanhugsað, ég ungur og óstöðugur. Ósæmissía á Cantat-3 sæstrenginn er betri hugmynd. Bukkake er ekki upprunnið í fornum japönskum giftingarsiðum, til að óska brúðinni frjósemi, hrísgrjónasiðurinn Vestræni á ekki rætur sínar þar. Bukkake var fundið upp á 8. áratugnum, af japönskum kvikmyndagerðarmönnum sem var bannað að sýna reistan reður í myndum sínum. Hins vegar var hvergi minnst á sæði, og því fór sem fór. Tillaga Steingríms J. gengur enn lengra og gæti orðið til að þessi þjóð uppgötvaði loks … erótík? Kynlíf? Hvaða orð er til yfir þetta á íslensku sem er ekki einhvern veginn væmið og vemmilegt, annað en einfaldlega klám? Ég veit ekki til þess að mín kynslóð elskist, hún ríður. Og horfir á klám.

Líta má á myndbandið hér sem einarða stuðningsyfirlýsingu við tillögu Steingríms J. og svo fjölmargra annarra um bætta klámmenningu Íslendinga:



Húsinu mínu verður annars breytt í hótel á næstunni, ég flyt af Vg á miðvikudag/fimmtudag, fer til útlanda á föstudag og þarna á milli, í einn, tvo eða þrjá daga, bjóðast ókeypis mubblur heima hjá mér. Og kaffi. Og ég er með bækur og eldhúshellur í láni frá einhverjum ykkar. Smekkmenn og -konur, að hika er sama og hrapa, lítið við.

26.2.07

Morðingjar heimsins og myrkraverkaher

Það þarf að gæta að því að þetta birtist alltaf einhvers staðar, við og við. Böðvar Guðmundsson, í söng Silju Aðalsteinsdóttur:

Vöggukvæði róttækrar móður

Enn syng ég gamalt stef við þinn sængurstokk í kvöld
er sólin rennur langt að fjallabaki
um þá sem sitja sléttir og slóttugir við völd
og sleppa aldrei neinu fantataki.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu reyna að draga úr þér kjarkinn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að á mörgum þeirra höggvist sundur barkinn.

Þeir eiga glæstar hallir þeir eiga lúxusbíl
þeir eiga meir en nóg til hnífs og skeiðar
þeir kæfa okkur í táragasi og kalla okkur skríl
þeir koma okkar vandræðum til leiðar.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu eflaust pína þig til dauða
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að úr mörgum þeirra vætli blóðið rauða.

Svo segi ég að lokum fyrst sólin hnigin er
og svefnsins engill strýkur þér um hvarma
að margan góðan drenginn þeir myrtu þar og hér
og margur hlaut að dylja sína harma.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
myrða okkur líka einhvern veginn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að af mörgum þeirra væri skjátan flegin.

23.2.07

Eitt eilífðardúndur með titrandi tár

Aðsókn að Hvalveiðunum þrefaldast í hvert sinn sem Þórdís minnist á þær á sínu bloggi. Ég kann að meta þetta, kærar þakkir.

Ég var annars að reyna að hafa uppi á skyrauglýsingum sem birtust hér um árið, þar sem ungar stúlkur með rjómaskinn sleiktu út um á meðan hvítt skyrið flæddi um vanga þeirra … svona talandi um Bændasamtökin. En auglýsingarnar virðast hafa verið teknar úr umferð, og kannski var ég bara að ímynda mér þetta.

Annars á maður ekki að vera að blogga um fréttir. Meiri eilífð, minni tíðindi. Hér kemur texti myndasögunnar, eitt eilífðardúndur með titrandi tár, góða helgi öll.

---

Áliðið.
Það er
of seint.

Á íslensku vantar orð
yfir grunntón heimsins.

Klúður.
Mistök.
Þrot.

Harla gott
þýðir: Þetta mistókst.
Við erum mistókst
ekkert nema illska alla daga
dagar okkar taldir
og munum þó hírast hér
þar til jörðin kólnar
eða hitnar
þar til við tökum að höggvast á
og Bush einn verður eftir
murkandi líf úr einkaþotu
og gróðurhúsaáhrifin

drepandi alla í Abu Ghraib. Og gróðurhúsaáhrifin drepandi Paris Hilton og kýlandi fötur alls staðar. Og gróðurhúsaáhrifin drepandi fuglaflensu og drepandi Sjíta og Súnníta og drepandi Hamas og Fatah og gróðurhúsaáhrifin drepandi böðlana sem hengdu Saddam Hussein og drepandi Michael Jackson og gróðurhúsaáhrifin drepandi barnaníðingana og gróðurhúsaáhrifin drepandi börnin og alla, gróðurhúsaáhrifin takandi upp hnífa og skerandi á kvið, gróðurhúsaáhrifin drepandi fuglana og mennirnir drepandi hver annan deyjandi úr þorsta, og gróðurhúsaáhrifin svíðandi bush nema George, sem verður með dætrum sínum í einkaþotu eða geimstöð og mun með Dick og þeim stúlkunum og kannski einhverjum vinum og vandamönnum sjá til þess að mannkyn geti snúið aftur … hún mun rísa úr hafinu, klónjörð, með klónmönnum og konum og hver einasti litningur í hverri einustu frumu hvers eins og einasta þeirra verður 100% Bush, 100% hita- og brennisteinsþolinn Bush, Bush börn og Bush konur og Bush menn, Bush strákar sem verða skotnir í Bush stelpum, eignast litlar Bush fjölskyldur og ala þær upp á sviðinni jörð Texas, borðandi hunda eða háhyrninga, einhverja aðra skepnu sem meikaði þetta. Hugsaðu þér, svona er framtíðin og þó mun ekki krókstafur lögmálsins falla úr gildi, en hvað með Feurbach spyr Eva Bush Adam Bush sem ypptir öxlum og reynir að átta sig á hugtakinu varningsblæti, sagan endurtekur sig ekki en hún rímar mun hégómafullur rithöfundur segja og brosa að sjálfum sér, fá geðveikt deja vu en muna ekki um hvað, heldurðu að það sé bara einhver taugaboð eða tákn um eitthvað?
Heldurðu að þetta séu bara einhver taugaboð eða tákn um eitthvað?

Heldurðu
að þetta séu bara einhver taugaboð
eða tákn um eitthvað?

(Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki er það svona banal naífur pólitískur kveðskapur skilurðu, lesendabréf í formi ljóða eitthvað sem er ekki neitt eða hvers vegna í andskotanum það er ekki ekki þetta er ekki eða þú ert ekki … þó þér liggi eitthvað á hjarni hjarta meina ég skilurðu það er Það er eitthvað, æ, misskilningur allt … menntaskólalegt, mig langar að sjá eitthvað fullorðins eitthvað um er þetta kannski allt búið? er kannski heyrðu er þetta eðla!? þetta er eðla! Dísa, koddu með myndavélina, það er eðla hérna á barnavagninum, hún hreyfir sig ekki, sjáiði, grafkyrr, eins og stytta, græn stytta fljót, Dísa fljót … nei hún er farin! Jæja. Jæja, hva … nei, jæja. Skiptir ekki máli. Skiptir ekki máli, sagði ég. Já en þessi texti, æ, ég … það er bara engin … kannski ætti að leggja niður þessa tungu. Þessa tungu niður.)

Á upprunamálum Biblíunnar verður Bush skrifað Bsh sem er líka skammstöfun fyrir The British Society for Haematology, samfélag breskra blóðsjúkdóma, taugaboð eða tákn um eitthvað – og Bosch und Siemens Hausgeräte og við vitum öll hvað þau framleiddu á sínum tíma, er það ekki? svo ekki sé minnst á Bundesamt für Seeschifffahrt und Hydrographie og Backstreet Heroes sem er vefrit um mótorhjól og ungar konur á nærfötum, don't get me fucking started!

Allt sem ég geri geri ég af eigingirni og hégóma
og myndi fara í brjóstastækkun ef það meikaði nokkurn sens
og allt hitt, bótox í barmana, allt …

Allt sem ég geri geri ég af eigingirni og hégóma
sýndarréttarhöld
falskar játningar

betur fer þá á því hinu
að tala um aðra:

djöfulsins drulluheimski hávaðasamtími, hvæsi ég í kór við alla,
það heyrist ekki einu sinni til sýndarréttarhaldanna
sagðirðu sýndarbrjóstahaldanna sagðirðu klám?

þetta eru login orð
það er lykkjufallið sem talar:
ég er ekki viss, segir það,
um að nokkurt ykkar
verðskuldi annað líf

athugið: þetta sagði lykkjufall

22.2.07

Klám og gæska

Ég lýsi mig sammála Rafauganu, hér um bil í einu öllu, með fyrirvara um það þó að ég er meiri femínisti en hann.

Það er eitthvað verulega uggvænlegt við það þegar allir – og nú ber að skilja 'alla' sem 80% eða hærra hlutfall þeirra sem segja meiningu sína á opinberum vettvangi, undir nafni – eru sammála. Þegar bændasamtökin, Vilhjálmur Þ., Geir Haarde, biskup, iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins, eru á einu máli með 'róttækum femínistum' finn ég ekki bara fyrir tortryggni heldur vottar fyrir skelfingu. Allir voru sammála um að vilja ekki klámframleiðendur til Íslands. Og allir unnu. Þannig.

Það lágu í loftinu nokkuð spennandi fyrirætlanir um að koma konum sem ekki leika í klámi á forsíður tímarita, slá einhver heimsmet, vekja athygli á femínisma á meðan hrútspungarnir væru á landinu. Og einhverjir gerðu ráð fyrir að sletta skyri. Þetta hefði verið gott, eitthvað í ætt við það þegar Palestínumaðurinn knái settist niður og snæddi kvöldverð með hórum og innheimtulögfræðingum. Það er, hóparnir hefðu þó í öllu falli mæst. Ef það að meina fólkinu aðgang að landinu er ekki mannréttindabrot að lögum er það í öllu falli mannréttindabrot í anda.

Húmanismi er góð hugmynd og gengur í grundvallaratriðum út á að við, manneskjur, glötum aldrei rétti okkar til að mæta hvert öðru í samræðu. Meira að segja morðingjar mega skrifa bækur. Niðurstaða Bændasamtakanna var aðskilnaður heima. Enda hefði það áreiðanlega skaðað ímynd fyrirtækisins að taka á móti svona fólki.

Burtséð frá því má nú horfa á hugtakið 'femínismi' hverfa með ljóshraða upp í heim mýtunnar, þar sem það verður inntakslaus aðgangsmiði að þátttöku í pólitík og samræðu, allavega fram að næstu kosningum. Það er einmitt þá sem hugtak verður brúklegt í hvaða augnamiði sem er og mun vafalaust nýtast Birni Bjarnasyni vel á komandi misserum að ræða um kvenréttindi til að verja strangari gæslu og eftirlit með fólki á landamærum og innan þeirra.

Hugmyndafræði sem ætlar sér að vera frelsandi ætti látlaust að skoða sjálfa sig undir ljósi anarkisma. Eða villuljósi … þegar gildishlaðið einkunnarorð einhverrar hugmyndafræði verður aðgöngumiði að heiminum má ætla að verið sé að beita því til annars en uppreisnar. Munum að meira að segja kristni var einu sinni frelsandi afl undirokaðra. Saga kirkjunnar og páfastóll er hættan sem allir vel meinandi menn þurfa að hafa í huga.

Ég vona annars að Björn braggist eftir veikindin. Mér finnst hann um margt kjánalegur en það er trúlega fyrst og fremst vegna þess að hann er fæddur til valda.

21.2.07

Vegna þess að í vinnunni á maður að vinna

Q. To whom should you raise your objections about workplace flirting?

A. If you feel comfortable discussing the subject with the colleagues themselves, start there. Approach the two privately and tell them how you feel. Specify the behavior that upsets you, and politely ask them to stop. Finally, have them acknowledge your request, so you know they understand it.

Myndasagan um gróðurhúsaáhrifin og Bush

Ef ég legg einhvern tíma í þetta form aftur, lofa ég því að gera það snyrtilegra, minna pönk, meiri fegurð, en þetta hér varð til í nótt … lof sé ókeypis hugbúnaði. Já, þetta er einum of og já þetta er helvíti menntaskólalegt en jæja … fyrst myndasagan, svo bíómyndin:

Passíusálmarnir

Það er von á heimspekingi til landsins, það eru fréttirnar sem ég hef lumað á. Varðhundi kerfisins, frjálshyggjumanni frá Slóveníu. Þeir lesendur Hvalveiðanna sem dvelja nú erlendis ættu ef til vill að breyta páskaflugpöntunum og koma undir lok mars, sá 28. væri ekki úr vegi.

20.2.07

Varðhundur kerfisins

Sigurjón Þórðarson, þingmaður, veitti mér á dögunum nafnbótina varðhundur kerfisins og lét af því tilefni þessi orð falla:


„Frjálslyndi flokkurinn er lykillinn að því að fella ríkisstjórnina. Varðhundar kerfisins hafa áttað sig á því að sú hætta stafar af Frjálslynda flokknum.

Það er því ljóst að ráðandi öfl tjalda til öllu til þess að koma höggi á flokkinn. Ítrekað höfum við orðið varir við að það væri verið að snúa út úr málflutningi flokksins. Fréttablaðið undir stjórn fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins splæsti einni síðu í stórundarlega grein eftir Hauk Má Helgason heimspeking.“

Vitaskuld

er ég

hrærður.

19.2.07

Gary Younge um horfurnar

"History does not repeat itself," Mark Twain once wrote. "But it does rhyme."

Brot úr viðtali við auðmann

Ég veit það ekki … þegar allt kemur til alls finnst mér ég misheppnaður. Ekki misheppnaðri en annað fólk, sjálfsagt, og það er ekki þessi tómleikatilfinning sem sumt fólk heldur að tilheyri miklum auði. Ég er góður í viðskiptum og hef ákveðið gaman af. En það er, jú, eiginlega, holur hljómur í alheiminum. Ég er enn að reyna að átta mig á því til hvers er ætlast af mér, og ég verð víst að viðurkenna að meira að segja í viðskiptum mínum, kannski ekki síst þar, er ég rekinn áfram af ákveðnum ótta … ótta sem er eins og bergmál af Mikla hvelli eða Kreppunni miklu, hver veit – um að ef til vill verði ég einn daginn dæmdur. Ég held að óttinn við þetta sé ráðandi afl í mannlegu samfélagi – en fólk bregst á ólíkan hátt við honum. Sumir ákveða að vinna sér ekkert til saka. Ég ákvað – og vitaskuld er ég ekki að tala um meðvitaða ákvörðun, ekki þannig að einn morguninn hafi ég litið í spegilinn og ákveðið taktík gagvart guðdómnum – en eftir á að hyggja finnst mér að megi tala um ákvörðun. Ég ákvað að þegar dagurinn rennur upp sé eins gott að geta keypt sér leið fram hjá kviðdómi og dómara. Það er þetta sem ég á við … hvatirnar að baki því sem ég geri, öllu mínu ævistarfi, virðast mér svo lúalegar.

18.2.07

Könnun um lestur Hvalveiða

Hvalveiðarnar voru lesnar á eftirtöldum stöðum síðustu vikuna:
Akranes
Barcelona
Beijing
Brooklyn
Brussel
Cherryville
Columbus
Copenhagen
Den Haag
Flóagaflshverfi
Garðabær
Helsinki
Hvammur
Hveragerði
Innrihólmur
Istanbul
Kálfatjörn
Kópavogur
Lima
Madrid
New York
Paris
Rabat
Reykjavík
St. Pétursborg
Stóra-Vatnsleysa
Uppsalir
Vín
Vogar
Zumárraga

Tala gesta er um 100 og á þá enginn að vera tvítalinn – ég er fullur þakklætis, og óska ykkur öllum frjósemi, farið og uppfyllið jörðina.

Annars get ég sagt þetta um ykkur: þið slæpist í vinnunni til að lesa hvalveiðarnar, sem er gott. Ykkur þyrstir í þær eftir hlé helgarinnar og lesið ötullegast á mánudögum. Langalgengasta skjáupplausn ykkar er 1028x768 punktar. Einhver býr þó við knappan kost og les í 800x600 punkta upplausn. Einn leit hér við eftir að gúgla 'Klámþing á Íslandi', einn við leit að 'Tjarnarborg', annar leitaði að textum halla og ladda og enn einn að sögninni 'fetishera'. Eina leitarvélin sem þið notið er Google. Helmingur ykkar er eitthvað að hanga og smella á forvitnilega hlekki … beita sér á netinu eins og sjónvarpssjúklingar beita fjarstýringu. Aðeins þrír smelltu á 'Stelpur sem fíla klám' í vikunni, . Einn eða tveir virðast hafa borið sig eftir því að hlusta á upplestrana efst í lista hlekkja og enn hefur enginn gerst áskrifandi að þeim, sem er synd og skömm, og ég ræð af þessu, get mér þess til, að upp til hópa hafið þið á tilfinningunni að eitthvað vanti, festið ekki fingur á það, haldið áfram að gægjast fyrir næsta og þarnæsta horn. Mæli með Grafi grafi grafi, það gæti verið einmitt „það“.

Írak

og auðvitað er ekki hægt að fullyrða að þetta fólk hefði ekki drepist hvort eð er.

Ég luma á svo spennandi fréttum sem ég veit ekki hvað ég á að gera við. Sef á þeim eina nótt í viðbót, kannski.

17.2.07

Verða betri í að ljúga og verða betri í að segja satt

Þetta ætti að vera yfirstíganlegt. Fail: bregðast, þrjóta, ganga til þurrðar, vanta, skorta, bila, gefa sig, mistakast, misheppnast, vanrækja, láta hjá líða, verða gjaldþrota, fara á höfuðið, falla á prófi, standast ekki, fella á prófi. Skv. ensk-íslensku. Sagnirnar eru til, eða einhvern veginn hægt að nálgast málið þeim megin.

Fyrsta skýring á failure, nafnorðinu, er hins vegar: það að eitthvað bregst. Síðan kemur: brestur, uppskerubrestur, þrot, skortur, vöntun, brestur, birgðaþrot, birgðaskortur, bilun, hnignun, afturför, það að misheppnast, misheppnað fyrirtæki, eitthvað sem gengur illa eða fer út um þúfur, mislukkaður maður, maður sem e-ð gengur illa hjá, vanræksla, það að láta e-ð ógert, það að láta undir höfuð leggjast, gjaldþrot, fall á prófi.

Ég vil bæta við klúður. Brestur hafði mér raunar ekki dottið í hug fyrr en ég fletti því upp og ef til vill kemst brestur næst meiningu orðsins í samhenginu: 'this deep sens of failure in my generation', næst meiningu þess þegar einhver lítur svo á að 'failure' - þrot, brestur, klúður, mistök, ömurð - sé grunntónn tilverunnar, að minnsta kosti þessa áratugina, en hugsanlega til eilífðar.

Þessi sjónarhóll er ekki sérdeilis tækur á Íslandi - eða hefur einhver lesið eða séð viðtal við íslenskan listamann sem leyfir sér að halda því fram að miðillinn sem hann vinni í sé meingallaður og geri sem slíkur listamanninum ókleift að koma því frá sér sem hann ætlar? Hvað þá íslenskan listamann sem leyfir sér að halda því fram að sjálfur sé hann meingallaður - ekki sem persóna, ekki sem maður, ekki breyskur - heldur sem listamaður, og hafi enn ekki tekist neitt af því sem hann ætlaði. Þætti einhverjum slíkt röfl við hæfi - eða myndu lesendur/áhorfendur ekki einfaldlega taka listamanninn á orðinu og líta á hið virðingarverða innra vonleysi hans sem utanaðkomandi áfellisdóm, hugsa: já, þetta er glataður listamaður. Ææ.

Ég var að horfa á svo inspererandi viðtal við Carmelo Bene, ítalska kvikmyndahetju frá 7. áratugnum, þar sem hann bölsótast mæðulegur í 40 mínútur yfir ágöllum kvikmyndaformsins. Segist aldrei hafa séð kvikmynd, ekki nokkru sinni, nema þá ef vera skyldi Ulysses eftir Joyce. En það væri náttúrulega bók. Og svo framvegis. Kieslwoski, leikstjóri sem óneitanlega markaði spor í kvikmyndasöguna og skildi við miðilinn öðruvísi en hann tók við honum, viðhafði svipuð orð þegar hann var að gera annað hvort Bláan eða Tvöfalt líf Veróniku. Hann sagðist nú vera á toppi sinnar getu og vissi að hann væri með bestu þálifandi leikstjórum, hann vissi hvað hann væri að gera og hverju hann vildi skila, en grunaði að það myndi ekki takast, einfaldlega því miðillinn réði ekki við það. Og hefði hann nokkru sinni grunað hvað kvikmyndagerð væri ömurleg, þá hefði hann aldrei hafist handa við hana.

Mikið væri gaman ef lengri hlé væru gerð á rekstri fyrirtækisins Ísland og fólk gæti leyft sér að tala saman, heilu daga, vikurnar, árin og ævirnar, án þess að finnast því skylt að taka þátt í hópeflingu, peppi, markaðssetningu og ímyndarsköpun Þjóðarinnar inc. Já, ég er að biðja um andartök, jafnvel langdregin andartök, utan mýtanna.

Maður óttast nefnilega að meðlimir handboltalandsliðsins séu á köflum langtum heiðarlegri í nálgun sinni á leiki en listamenn um afrek sín. Getur verið að heiðarleiki sé einfalt fall í öfugu hlutfalli við hagvöxt?

16.2.07

Blammeríngar II

Listir eru lausn undan súperegó.

-

Ekkert er lausn undan súperegói. Heimurinn er gerður úr súperegói og er aðeins illska alla daga.

-

Ég hef það fínt.

Málamiðlun um blammeríngar og hin hýru vísindi a la Dennett og svo áfram

Listir eru rannsókn á möguleika tækis.

Mín kynslóð er yfirstandandi rannsókn á möguleika nettengdra fartölva.

Er rannsóknum á möguleikum prentvéla lokið?

-

Þetta er rangt og einmitt þess vega er prentvélin rétt að skríða inn. Listir eru brúkun tækni sem hefur verið leyst af hólmi og er ekki lengur fyrst og fremst gagnleg.

-

Listir og tækni? Ertu hálfviti? Þetta er hvort tveggja út í hött – listir eru leiðangur um landslag sálar.

-

En þær koma upp um að þetta landslag er ekki landslag einstaklings, fyrst og fremst, heldur kynslóðar eða tímapunkts í mannkynssögunni, með því að grípa fleiri en listamanninn einan. Þess vegna er list uppljóstrun um misfellur í hugmyndum tímans um sjálfn sig.

-

Kjaftæði! Hún kemur upp um að kynslóðir og tímapunktar koma málinu ekki við með því að enduróma gegnum söguna og vera eilíf.

-

Já, er það? Hefurðu lesið einhvern góðan grískan harmleik nýlega, af ómiðluðum unaði og upplifun?

-

Já, það hef ég gert.

-

Listir eru frystir.

-

Æ, hættu að láta eins og ekki sé hægt að segja neitt.

-

Listir eru kysstir.

-

Hættu þessu.

-

Rósir eru rauðar, víólur fjólubláar, ég nauða og nauða um hvað þið eruð kúabólufláar.

-

Láttu ekki eins og það sé ljóðrænn þráður í þér. Við erum að reyna að segja eitthvað. Listir eru efniviður fyrir sjónvarpsþætti eins og Mósaík. Mósaík er hættur, ergo: listin er dauð.

-

Víðsjá …?

---

Mig langaði eiginlega fyrst og fremst bara að blogga fyrstu tvær línurnar hérna uppi – ég held í alvörunni að það geti verið afar forvitnilegt að nálgast listsköpun hræðilega kalt og þetta er tæk nálgunarleið – uppfinningamaður eða fyrirtæki eða stefnumót við annan menningarheim fæðir af sér framandi og ókunnugan hlut sem ættbálkurinn reynir að hrista eitthvað úr – reynir að komast að því að hann sé líka lifandi. Það er svo ægilegt að hafa eitthvað dautt í kringum sig. Og við erum öll að rannsaka fartölvur þessi árin. Og ég vildi gjarna láta þetta gott heita, láta það liggja þarna sem staðhæfingu, setja það í header á blogginu jafnvel, koma nú, fórna sér! – „Listir eru rannsókn á möguleikum tækis“ – en er hræddur um að þá haldi rómantískir vinir mínir og ég sjálfur jafnvel að ég sé einhvers konar fæðingarhálfviti. Enda ekki það að þetta er jafn lummuleg setning og allar aðrar sem hafa „listir“ að frumlagi.

Setning með „listir“ að frumlagi hefur klisju að andvarpi.

Ef maðurinn sem skrifaði svargrein til mín í Fréttablaðið í dag hefur gúglað mig og les þetta er ég forvitinn að vita hvort hann er kristinn bókstafstrúarmaður. Ekki að greinin öll gefi það endilega til kynna, en aðfararorðin opna sannarlega möguleikann.

Þar var „fasisti“ andlag í setningu sem hafði mig að frumvarpi. Heimsku að frumvarpi, heiminn að andvarpi.

---

Klámið er að koma, klámið er að koma … syngist við djínglið í jólalest Kókakóla.

15.2.07

Fréttir

Klámþing. Á Íslandi. 4.–11. mars. Hundrað klámframleiðendur ætla á skíði á Akureyri. Það verður alveg áreiðanlega fullkomlega óþarft að segja neitt um þetta. Meira að segja Baugsmálið mun sjálfsagt gleymast.

Ég er kannski að fara að kaupa pínulitla íbúð. Ekki ljóðrænn þráður í mér í dag, bara auðkennislykill og bókarlaus bók.

12.2.07

Ekki sandur, fjall

Eða sandfjall …363 tonn af seðlum týndust á dögunum. Ég mæli annars með því að eitthvert íslensku dagblaðanna leggi sjálft sig niður, gangist við því að í raun og veru þýðir „fréttastofa“ þýðingamiðstöð – og gefi út íslenska þýðingu á Guardian dag hvern.

Bremer's financial adviser, retired Admiral David Oliver, is even more direct. The memorandum quotes an interview with the BBC World Service. Asked what had happened to the $8.8bn he replied: "I have no idea. I can't tell you whether or not the money went to the right things or didn't - nor do I actually think it's important."

Q: "But the fact is billions of dollars have disappeared without trace."

Oliver: "Of their money. Billions of dollars of their money, yeah I understand. I'm saying what difference does it make?"


Auðjöfrar, munið: Írak er fullt af ónýttum tækifærum!

11.2.07

Við, frjálshyggjumenn

Í Fréttablaðið skrifar Sverrir Jakobsson:

Það vakti nokkra furðu um árið þegar þýðandi söngvamyndarinnar Moulin Rouge þýddi enska orðið „Bohemians" með íslenska orðinu „frjálshyggjumenn". Fáir áhorfendur gátu séð tengslin á milli hinna kátu listamanna og skemmtikrafta sem myndin fjallar um og jakkafataklæddu pabbadrengjanna sem hafa einokað hugtakið hér á Íslandi.

– ég er einmitt að horfa á þessa mynd á Sirkus TV og þýðingin virðist halda sér yfir í sjónvarpið – konsekvent. Frjálshyggjumenn, frjálshyggjuandi … það er eitthvað pótensíal í þessari þýðingu, hvort sem er að yfirlögðu ráði eða óvart – opnandi skjönun, sannarlega. Ef til vill er rétt að taka slysið á orðinu, já, gott ef ég legg ekki til að ég og vinir mínir köllum hver annan frjálshyggjumenn héðan í frá, til rómantískrar upphafningar, í stað hins orðsins, sem augljóslega er sletta og því lýti á góðu málfari. Frjálshyggjumenn eða Bæheimingar að öðrum kosti.

Love is like oxygen.
Love is a many splendored thing,
Love lifts us up where we belong,
All you need is love!
Nicole:
Please, don't start that again
Ewan:
All you need is love!
Nicole:
A girl has got to eat!
Ewan:
All you need is love!
Nicole:
She'll end up on the street! (sigh)
Ewan:
All you need is looooove!
Nicole:
Love is just a game.
Ewan:
I was made for loving you baby,
You were made for loving me.
Nicole:
The only way of loving me baby,
Is to pay a lovely fee.
Ewan:
Just one night,
Give me just one night.
Nicole:
There's no way,
Cause you can't pay.
Ewan:
In the name of love!
One night in the name of love!
Nicole:
You crazy fool,
I won't give in to you.
Ewan:
Don't, leave me this way.
I can't survive, without your sweet love,
Oh baby, don't leave me this way.
Nicole:
You'd think that people would've had enough of silly love songs...
Ewan:
I look around me and I see it isn't so, oh no.
Nicole:
Some people wanna fill the world with silly love songs
Ewan:
Well what's wrong with that?
I like to know.
Cause here I go... again...
Love lifts us up where we belong!
Where eagles fly,
On a mountain high!
Nicole:
Love makes us act like we are fools.
Throw our lives away,
For one happy day.
Ewan:
We could be heroes...
Just for one day.
Nicole:
You, you will be mean.
Ewan:
No, I won't.
Nicole:
(sigh) And I, I'll drink all the time.
Ewan:
We should be lovers...
Nicole:
We can't do that.
Ewan:
We should be lovers!
And that's a fact.
Though nothing, would keep us together.
Ewan:
We could steal time...
Ewan & Nicole:
Just for one day.
We could be heroes,
Forever and ever,
We could be heroes,
Forever and ever,
We can be heroes...
Ewan:
Just because I... will always love you...
Nicole:
I...
Ewan & Nicole:
...Can't help loving...
Ewan:
...You...
Nicole:
How wonderful life is,
Ewan and Nicole:
Now you're in the world...

Frjálshyggja er það, heillin. Ný frjálshyggja!

Strax í dag!

Hver kannast ekki við þetta:

þú ætlar að fá þér brauðsneið,

hart, vont.

Snilldin við þennan kassa er

að þú kemur úr búðinni

stingur brauðinu í,

ýtir á einn takka,

kassinn lofttæmir sig

og brauðið helst ferskt í marga daga.

Stökkbreytt útgáfa af Zizek-bloggfærslum síðasta mánaðar birtist í Fréttablaðinu í dag, miðað við að í dag sé þegar sunnudagur …

Þetta nuddbelti lætur þér líða eins og þú sért með eitt þúsund fingur að nudda þig.

Þegar þetta belti er notað skal hafa þá meginreglu að vera í mjög þægilegum fatnaði

þannig að það snerti ekki bert hörundið.

Og ég held að mér hafi heppnast síðasta ætlunarverk kvöldsins: nú ætti að vera hægt að smella á hlekk hér hægra megin á síðunni til að gerast áskrifandi að Samson C01U míkrófóninum mínum. Sé allt rétt kóordinerað á tölvu þinni má jafnvel tala um beintengingu okkar Hr. Samsons við ipodinn þinn, sem þú getur víst með réttum búnaði tengt beint við hlaupaskóna þína … ég vil vera með þér í blíðu og stríðu.

Gleymum ekki orðsifjunum, krakkar.

Hringdu núna og eignastu þetta frábæra hnífasett. Upplagt fyrir þá sem vilja grennast og styrkjast á sama tíma.

10.2.07

Lost

Ég var að hafna einu skemmtilegasta boði sem mér hefur borist: að fara til Akureyrar fyrsta mars til að flytja erindi um losta. Ég væri þá í fyrsta sinn svonefndur sérfræðingur að sunnan, sérfræðingur í losta. En tími. Faktor. Ýmislegt.

Helsti lostaspesíalisti sem ég þekki er einmitt frá Akureyri en dvelur eftir fremsta megni annars staðar.

Alþjóðahúsið, morgunsár, hádegi.

8.2.07

Vinstri vinstri vinstri … eða Soja-Ísland, draumalandið, hvenær kemur þú?

Hvers vegna heyrist meiri gagnrýni vestrænna vinstrimanna í garð eigin stríðsherra en annarra? Því þeir eiga að heita fulltrúar okkar … mér finnst þetta nokkuð augljóst en pantaði mér samt bókina frá þessum Cohen, sem allir eiga víst að lesa til að hætta þessum linnulausa stuðningi við íslamska einræðisherra og ofsatrúarmenn.

Ég var að lesa viðtal á vef Framtíðarlandsins og þá kom þetta í hugann … vitaskuld er Framtíðarlandið skárri kostur en Sjálfstæðisflokkurinn, einmitt núna, vitaskuld er náttúruvernd mikilvæg – og maður gengst jafnvel við sameiginlegum upphafsreit, þó að allt í einu megi hann ekki heita vinstri … það fælir víst of marga frá. Gott og vel, norrænir menn hættu einhvern tíma að tala um klungur og tóku að segja „rós“ í staðinn og alltíeinu varð öllum ilmurinn ljós. Fínt. En síðan les maður viðtal:

„Þjóðin og atvinnulífið eru búin að sýna hvers lags afl býr í því sem ekki þarf að eyðileggja neitt land til að nýta. Horfum t.d. á þann árangur sem bankarnir hafa náð, gríðarlega góð uppgjör sem eru árangur af starfi þess hæfileikaríka og vel menntaða fólks sem þar vinnur. Hefurðu komið inn í álver? Maður verður hálf miður sín. Það er fjarlæg hugsun að maður vilji búa afkomendum sínum að vinna í því umhverfi.“

– og grunar allt í einu að kannski finnist Andra Snæ þetta líka eitthvað öfugsnúið. Að draumsýnin sé bankar í stað álvera og einmitt bankar í stað álvera.

„Ég veit að það hentar ekki öllum að vinna í hátækni eða fjármálaheiminuum – en við eigum eftir að kanna svo margt þar. Góður árangur þar á mjög stuttum tíma gefur tilefni til að kanna þá möguleika betur. Þar munu líka verða til tengd störf í framtíðinni.“

Álver eða jakkaföt og sojalatte. Hvort viltu? Svona, hvort viltu!?

Það er freistandi að gerast stórtækur, gífuryrtur talsmaður stóriðju. Leyfist mér að benda háttvirtum varaþingmanni Reykjavíkurkjördæmis norður á að stóriðja á Íslandi er ekki aðeins vistvænn kostur, ef á heiminn er litið og einkum með tilliti til gróðurhúsaáhrifa, heldur býður og landið upp á infrastrúktúr og ikea-verslanir til að tryggja því verkafólki sem í álverunum starfa mannsæmandi kjör og aðbúnað?

Þeim sem vilja ekki láta verkafólk trufla sig við latte-drykkju býðst hlutur í einkaþotu á visa-raðgreiðslum … og verkafólkinu sjálfu býðst sambærilegur hlutur gegn eilífðarskuldbindingu til þátttöku í íslensku bankakerfi, tíu þúsund kynslóðir fram í tímann.

Það sem ég er að reyna að segja: maður óttast meir og meir að umhverfisverndin snúist fyrst og fremst um ofvaxinn metnað efnaðrar millistéttar til innanhússarkitektúrs. Að Vala Matt sé á bakvið þetta allt saman.

Meðan ég man

Fyrir þá sem halda að femínismi sé tepruskapur, blygðunarkennd og bann við nautnum: Stelpur sem fíla klám.

Ljóð til að lesa upp á þingi þegar Frjálslyndir reyna að segja eitthvað

Grafi grafi grafi grafi grafi kaldhæðni grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi ókunnugar raddir muldur grafi grafi grafi grafi grafi grafi með lokuð augun grafi grafi grafi grafi grafi grafi þó ekki væri nema bein Eva? nei Lucy grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi nýtt ljóðform grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi raf demantur eða eitthvað grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi fingur á lyklaborði alltaf sömu leið grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi hola grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi jarðvegur grafi grafi grafi uppljómun samstilling ókei allt grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi í læ grafi grafi grafi grafi grafi með lokuð augun breytir engu grafi dimmt grafi allt grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi hvers vegna aftur? grafi grafi grafi grafi grafi varstu að segja eitthvað grafi grafi grafi grafi grafi það er grafi enginn grafi annar grafi grafi hérna grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafi grafit grafi grafi og árfram grafi grafi grafi grafi grafi áfram grrafi grafi grafi skekkja grafi grafi grafi síðasta berg grafi haftið grafi grafi grafi grafi

skáldinu fannst sem eitthvað læddist aftan að sér og það setti að því ugg en það náði ekki að gera úr honum hugsun áður en fyrr en varði grafi í síðasta hinsta sinn loksins því þegar þá tættist það sundur í bornum sem ítalska verktakafyrirtækið átti og var ekki gert til að serða fjallkonur heldur tröllskessur og hvernig hefði það átt að gruna

væri það bara slímhúð í leggöngum eða yrði æi

aðeins illska alla daga

Daginn skal héðan í frá nefna vingul en nóttina var.
Daginn skal nefna er en nóttina lín.
Daginn skal nefna dyramottu í banka, nóttina opna varlega.
Daginn skal nefna ámót, nóttina sss, komdu,
þig vinu,
mig ha

Af þingi

Þegar er farið að handtaka á Keflavíkurflugvelli þekkta hryðjuverkamenn. (– Það er þessi málflutningur sko, heyrist utan úr sal) – Já þú vilt fá semsagt þekkta hryðjuverkamenn í landið hérna, og vilt kannski bara bjóða þeim heim til þín?

Það birtist grein frá mér í Fréttablaðinu næstu helgi, sem upphaflega var um Zizek, en á endanum fyrst og fremst um Frjálslynda og þetta allt … mér finnst eins og hún þarfnist uppfærslu daglega en er búinn að sleppa henni, held ég.

Framtíðarlandið ekki fram, ágætt, þá er ennþá séns á vinstristjórn. Hver ætlar að bjarga Samfylkingunni? Og hvernig?

5.2.07

Saklausi litli Freud

Þetta verður lagað eins og annað, en einmitt núna stendur á mbl.is: Ítalskir fótboltaleikvangar verða ekki opnaðir almenningi á ný fyrr en öryggisráðstafanir hafa verið gerðar, þetta sagði Giuliano Amato, innanríkisráðherra Ítala að loknum neyðarfundi um íralska knattspyrnu.
Og mann grunar að þessi saklausa prentvilla, um íralska knattspyrnu, sé sprottin úr undirmeðvitund sem gerir ráð fyrir að allir neyðarfundir heimsins hljóti að vera um annað hvort Íran eða Írak eða Íral ...

Ég verð annars að lofa Rafaugað fyrir nýtt fitubrennsluátak. Verulega góðir sprettir.