Mig hefur dreymt margt síðustu nætur – og síðasta sena síðasta draums var að ég rétti að vini mínum, sem hafði um stundarsakir breyst í órangútanapa, bók Freuds, The interpretation of Dreams og ráðlagði honum að lesa. Hann ljómaði allur af tilhlökkun, mannapinn, en þá runnu á mig tvær grímur og ég velti því fyrir mér hvort ég ætti fyrst að ljúka við að lesa hana sjálfur. Meta, ha? Við vorum annars í eyðimörk og vinkona mín var flúin úr græna eyðimerkurjeppanum, því órangútaninn var svo uppáþrengjandi.
Reyna að finna þessa bók, hafa hana með í vinnuna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli