– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
24.11.07
Hvernig segir maður squirt á íslensku?
Þessi titill er bara popúlismi … ég meina: Lengi lifi vísindin, frjálst fræðasamfélag og sú skynsemi sem er söm í öllum sálum og hirðir hvorki um stétt, stöðu né kyn:
Þegar dagar peningahagkerfisins verða taldir mun ekkert heyrast meir um nærbuxur Britneyjar Spears

Auðvitað er þetta efni í fínt ljóð. Og ljóðviljaðir mega nú þegar líta á þetta sem slíkt. Það má líka finna hundrað önnur úrræði til að vera einfaldlega yfir þetta kjaftæði hafinn. En það er fáránlegt ástand að hver einasti meðlimur 300 þúsund manna málsamfélags þurfi að finna sér upphafningar- og flóttaleið burt frá fjölmiðlum sínum og þykjast yfir samræðu „þjóðarinnar við sjálfa sig“ hafinn. Því langar mig bara að biðja fjölmiðla að hætta að vera svona andstyggilega trívíal, forheimskandi og móðgandi fyrir það samfélag sem við tilheyrum hvort sem okkur líkar betur eða verr, og fara aftur að skipta máli. En leggja sig að öðrum kosti niður.
Ef þetta er einum blaðamanni að kenna gerir hann eða hún sennilega meira gagn á atvinnuleysisbótum. Hugsanlega má ráða bót á flestu böli okkar daga með því að gera atvinnuleysisbætur eftirsóknarverðari kost. Kalla þær til dæmis frístundagreiðslur. Og hækka þær. Það ríkir einhver misskilningur í þessu peningahagkerfi, um hvað „fólk vill“. Fullum blaðamönnum á börum verður tíðrætt um það, þeir segjast vera að birta það sem „fólk vill“. Ef þátttaka í peningahagkerfi væri gerð að hobbíi fárra frekar en kvöð allra, einhvers konar tölvuleik, gæti meirihlutinn sem stæði utan bankakerfisins farið að gera eitthvað verðmætara, á meðan fulli minnihlutinn léki sér að því að rétta hver öðrum peningaseðla á Eve Online fyrir að gera eitthvað sem fólkið vill, til dæmis birta frétt eftir frétt eftir frétt eftir frétt um hvaða konur eru í nærbuxum og hverjar ekki.
Vitaskuld mun koma að því. Sameiginleg lágmarksbjartsýni (raunverulega langlægsti samnefnari) allra þeirra sem fara fram úr á morgnana er sú sannfæring að heimsku mannanna séu takmörk sett. Í millitíðinni má kannski heimta að sálgreining verði niðurgreidd fyrir blaðamannastéttina. Og allir syngja með:
23.11.07
Nei, þetta var ekki óvart. Og nei, ekki þetta heldur.
Sá misskilningur veður uppi meðal manna sem hafa tekjur sínar af auglýsingum, að höfði auglýsingar til hóps sé það eiginlega bara óvart. Þetta er eitt af því sem ég vildi gjarna að hægt væri að særa út í eitt skipti fyrir öll, með því einfaldlega að nefna það: nei, auglýsingar eru ekki gerðar óvart.
21.11.07
Frægasti heimur allra tíma
Fólk verður nú hratt og örugglega frægara og frægara: hvert mannsbarn fékk aðeins um 100 flettingar á Google fyrir tveimur árum, en nú hefur meðaltal flettinga á hvert mannsnafn náð yfir 10 þúsund. Heimurinn allur er þar með orðinn hundrað sinnum frægari en hann var fyrir aðeins tveimur árum síðan, og miklu miklu frægari en þegar mælingar hófust. Það er hreint ekki líku saman að jafna.
Þegar peningahagkerfinu lýkur verð ég reiðubúinn
Ég bíð spenntur eftir þessu símtali: „Sæll, Haukur, þetta er fulltrúi grundvallarráðsins. Peningahagkerfið virðist ekki ætla að ganga upp, getur þú hjálpað okkur að finna upp betra skipulag? Við megum engan tíma missa.“ Ekki mun standa á mér, ég hef um fátt annað hugsað frá því ég fékk fyrst leiðbeiningar um hvernig maður svarar ef einhver bankar og krefst þess að hitta foreldra manns eða fá sjónvarp þeirra með sér burt. „Já,“ mun ég svara, „hlustaðu nú og skrifaðu hjá þér því þetta segi ég aðeins einu sinni: Hver manneskja má aðeins eiga það land sem hún getur sjálf ýtt bílnum sínum um frá dögun til miðaftanbils á jafndægrum …“.
20.11.07
Gengi útlenskra nauðgunarfórnarlamba
„Flugmaðurinn er sakaður um heimilisofbeldi gegn stúlkunni en hún hefur mikið látið fyrir sér fara síðan hún kom hingað til lands í september á síðasta ári.“
Segir Vísir í frétt hérna. Er það bara ég, eða má lesa þá afstöðu úr frásagnarmátanum að blaðamaður sé „með flugmanninum í liði“? Er einhver önnur forsenda fyrir því en sú að stúlkan er útlensk? Við vitum öll að heimur fréttanna er annar en sá sem, raunverulegar manneskjur lifa í dag frá degi – má skilja þetta svo að í hliðarveröld frétta(ma)nna séu ekki lengur bara til erlend nauðgaragengi sem leggi undir sig miðborgina um helgar, heldur gengi nauðgarafórnarlamba í þokkabót?
Annars er hitt jafn skrítið, að í þessari löngu, löngu frétt virðist alveg fljótandi hver segir frá: fréttamaður, flugmaður, stúlkan frá Venezúela, skýrsla héraðsdóms … ég get mér þess til að þetta sé vegna þess að fréttin sé í flýti copy-peistuð upp úr dómsgögnum eða slíku – þá væri skýring, en ekki afsökun, fréttamannsins sú að þessi texti allur sé framleiddur „hinu megin vits og greindar“, eiginlega hafi tölvan gert þetta, það er: þetta sé ekki heimska, heldur gerviheimska.
19.11.07
Forsíðufrétt New York Times um íslenska framúrstefnu
Íslensk erfðagreining sendir frá sér avant garde fréttatilkynningu, en það er sem fyrri daginn og við manninn mælt að á Íslandi er engin þekking eða skilningur á framúrstefnu. Þetta er ekki bara sci-fi, þetta er cyber-punk.
13.11.07
Lítið ljóð um smættun í barneignamjaðmir
Þá benda rannsóknirnar til þess, að börn sem unglingsstúlkur eignast, standa sig ver [!] á gáfnaprófum en önnur börn og er það rakið til þess, að mæður þeirra höfðu ekki nægilega mikið af omega-3 fitusýrum í mjöðmunum þegar þær gengu með börnin.
8.11.07
90 ára afmæli réttlætis, frelsis, jafnréttis og bræðralags
Árni Daníel Júlíusson skrifar frábæra grein til að fagna 90 ára afmæli rússnesku byltingarinnar:
„Á okkar dögum liggja hvers kyns mannréttindi, stjórnmálaréttindi og félagsleg réttindi undir árásum. Sigurför nýfrjálshyggjunnar heldur áfram, og grímulaus heimsvaldastefna Bandaríkjanna og bandamanna þeirra veður um heimsbyggðina. Það er þörf á að spyrna við fótum. Rússneska byltingin blés á sínum tíma fólki í brjóst vonir um að tímar óréttlætis og kúgunar væru að baki, og tímar réttlætis, frelsis, jafnréttis og bræðralags stæðu fyrir dyrum. Hún gjörbreytti valdahlutföllum í heiminum og leiddi í raun og veru til víðtækra umbóta og gífurlegra framfara hvað varðar rétt, aðbúnað og lífskjör almennings. Sú arfleifð verður aldrei máð út og heldur áfram að vekja skelfingu hjá valdastéttum heimsins. Arfleifð og áhrif rússnesku byltingingarinnar er fyrir þeim ófreskja, skrímsli sem var magnað upp, draugur sem gengur ljósum logum og hefur reynst ómögulegt að kveða niður. Fyrir þeim sem notið hafa og njóta ávaxtanna af rússnesku byltingunni er hún frelsistákn, vonarneisti í óréttlátum heimi sem aldrei mun slokkna á ný.“
4.11.07
Blorgunmaðið
Moggabloggið minnir mig meir og meir á kjallarann þar sem þeir hengdu Saddam Hussein. Mig langar svo að tala um hnignun.
Víkingar gera það virkilega gott á Filipseyjum – virkilega … mmmsmjatt!
Æ, ég hætti við að segja eitthvað um krata, kapítal, Filipseyjar ... orðin voru of gömul. Enn er ekki hægt að segja jöfnuður án þess að hlæja eða gretta sig. Sem er ekki við hæfi svo það heyrist bara ekki neitt. Þess vegna er hér vídeó.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)