And Björk of Course í Borgó, fyrir löngu. Eftir Þorvald Þorsteinsson, en ég man ekki hver leikstýrði. Anna, í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar í Iðnó fyrir nokkru. Pönkaraleiksýning í Berlín, þar sem akróbatar fylltu upp í tímann sem sagann náði ekki að kovera – verkið var um hægrisinnaða stjórnmálamenn sem lentu í maga hvals. Sylvía Nótt, sem enn er fullnægjandi þó að maður nenni ekki endilega að fylgjast með henni, hún er að klára það sem hún hóf … sýnir siðferðilega festu í skilningi Kierkegaards og Lacan, ómórölsk, jafnvel andmórölsk, en ethical í hinum trúarlega skilningi. Allar eiga uppákomurnar sameiginlegan háska og gáska, og að vera ofurmeðvitaðar um heiminn sem þær eru unnar inn í. Allar aðrar sýningar sem ég man, að meðtöldu því, vitaskuld, sem heitir „well-made“ í Bretlandi, eru einfaldlega of dannaðar.
Adorno var klár, og aðgreining hans milli hámenningar og lágmenningar meikar sens, hvaða orð sem maður kýs að nota yfir fyrirbærin: lágmenning er tepruleg en klúr, hámenning er háskaleg en kann sig.
Er að reyna að rifja upp eitthvað fleira útlenskt sem hefur kikkað fyrir mér … manni finnst eilítið vandræðalegt að játa það, nú á dögunum eftir framúrstefnuna, dögunum eftir framtíðina, en hefðbundin form eru bara ekki krassandi. Lausnin á þreytu hinnar stöðugu enduruppfinningar er ekki fólgin í flótta inn í liðna daga upphafs, miðju og endis. Því miður. Hélt það um hríð.
Ekki að ég hafi séð nándar nærri allt sem farið hefur á svið á Íslandi, ekki að ég sé góðvinur leikhússins. En mig langar að fara að kenna leikhúsinu að einhverju leyti um það, frekar en bara sjálfum mér. Það er ekki upp á mitt menningarstig að klaga, heldur leikhússins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli