Þetta eitt: Ég er ekki meðlimur í ungliðahreyfingu stjórnmálaflokks, ég er ekki einu sinni meðlimur í stjórnmálaflokki – en ég fór samt í ráðhúsið til að sýna stuðning við kröfu sem þar var sett fram í krafti réttmætrar reiði, svo augljóslega réttmætrar að allir þeir sem hún beinist að skammast sín niður í tær og fóru með veggjum. Það er mikilvægt að koma þessu að til að mbl.is, Egill Helgason og aðrir hægrisinnaðir miðlar komist hvorki upp með að afskrifa mótmælin sem hagsmunapot né skrílslæti.
Nú er hugsanlega merkilegur tímapunktur í sögu lýðræðis á Íslandi. Sá möguleiki er opinn eins þó öll dagblöð landsins séu undir ritstjórn sjálfstæðismanna.
Lýðræði gerist þar sem fólk kemur saman. Hófsöm lætin í ráðhúsinu eru nákvæmlega það sem Vesturlönd eru stoltust af á tyllidögum. Svona heyrist í lýðræðinu. Lýðræðið er ekki veggjatítla.