31.1.07

Í guðanna bænum, enga kaldhæðni!

Þar sem sumir sjá bara vandamál sjá aðrir lausnir. Írak. Land tækifæranna.

Vandinn við heimspekinám, svona praktískt, hvað hversdagslegar forsendur lífsins varðar, er að það er sérmenntun einmitt í hinu, að sjá vandamál þar sem aðrir sjá lausnir. Þetta er voða gott fyrir mannsandann og stundum vonar maður að þetta geti reynst gott fyrir sitthvað fleira … hversdagslegra? Hvað er hversdagslegra en mannsandinn? – jæja, en frá degi til dags, þegar maður vill koma sér úr sporunum, þá er alltaf einhver helvítis Zenó í manni.

Næsta stig kapítalismans: þegar fátækasti verkalýður þriðja heimsins sér um kaup og sölu hlutabréfa fyrir hönd eigendanna. Á ljósmyndum virðast reyndar kauphallir Vesturlanda og skóverksmiðjur þriðja heimsins ekki svo ólíkar …

Engin ummæli: