Díalektík heitir á íslensku þráttir, ég held að þýðingin sé eftir Þorstein Gylfason. Hljómur íslenska orðsins ber í sér drifkraft skyldan því upprunalega, ég kann vel við það. Og þráttir hafa vissulega með þrætur að gera.
Útskýrum hvað Zizek vill meina að Hegel hafi sjálfur viljað meina með þráttum með því að ráðast fyrst á hinn allra algengasta misskilning um fyrirbærið. Thesis, antithesis og synthesis þýði ég sem stöðu, andstöðu og niðurstöðu, berist ekki betri tillaga. Mér finnst þessi harla góð.
Hinn algengasti misskilningur um hvernig þráttir virka er að tvær andstæðar hugmyndir takist á þar til þær ná jafnvægi í einhvers konar málamiðlun, eða einhvers konar þriðju leið – allar neikvæðar skírskotanir orðalagsins ráðgerðar. Þessi hugmynd um þráttir rímar vel við austurlenskar hugmyndir um jin og jang, allt austurlandakukl vesturlandabúa, Aristóteles og svo framvegis – það er afar snúið að orða nýja hugmynd svo að hún rífi sig frá gömlum og rótgrónum (það er meira að segja snúið að orða 200 ára gamla hugmynd svo að hún rífi sig frá 3-4000 ára gömlum vana).
Jin og jang koma málinu ekki við, og ekki lending í jafnvægisástandi málamiðlunar tveggja andstæðra afla. Staðan er ríkjandi ástand. Andstaðan er neitun á ríkjandi ástandi. Niðurstaðan er neitun þessarar neitunar – það er, neitunaraðgerðin er endurtekin, sama skrefið er einfaldlega stigið aftur – en neitun neitunar er ekki söm einfaldri játun. Tveir mínusar eru, í framvindu sögunnar, ekki sama og plús.
Það sem meira er: niðurstaðan er ekki endanleg niðurstaða – þráttaferlið heldur áfram. Það má hæglega neita neitun neitunar neitunarinnar.
Athugið – og að þessu má víkja aftur síðar – að kommúnistaávarpið felur ekki í sér neina lýsingu á samfélaginu eftir byltingu, heldur aðeins greiningu og höfnun á ríkjandi ástandi.
Heimfærum þetta hingað og þangað. Jesús segir eitthvað í ætt við: Sá sem hatar ekki móður sína og föður, getur ekki fylgt mér. Zizek útskýrir á grundvelli þrátta: Ríkjandi ástand eru hefðarvensl fjölskyldunnar, vald föðurins. Neitun þess – andstaðan – felst í að hata föðurinn sem föður, hafna stöðu hans, segja skilið við hann. Neitun neitunarinnar er aftur að elska föður sinn, eftir að hafa fyllilega sagt skilið við sjálfan sig og hann sem þátttakendur í venslum feðraveldisins. Elska hann sem náunga.
Ekki jafn upphafið dæmi: Staða: Íslendingar búa í moldarkofum, borða kindur, tala við kindur og lesa vídalínspostillu. Andstaða: Iðnvæðing, flutningur í borgir, uppbygging atvinnuvega – tilkoma siðmenningar. Niðurstaða (neitun neitunarinnar): Borgarbúarnir verða rómantíkerar, upphefja sveitirnar, dreymir um kyrrðina í dalnum, eignast sumarbústað, ganga á fjöll. Borgarbúinn sem heimsækir sveitin á sumrin vegna fegurðar fjallanna og hreinleika loftsins er í sveitinni á allt annan hátt en langafi hans, jeppalausi bóndinn. Annað tilbrigði: staða: akuryrkja liðinna alda. Andstaða: iðnvæðing landbúnaðar. Niðurstaða (neitun neitunar): lífræn ræktun, sem hvorki væri til sem hugtak né tæknilega möguleg án undanfarandi iðnvæðingarferlis.
Í raun má sjá allar frásagnir sem hvíla á formgerðareinkennum goðsagna – allar svaðilfarir hetju – sem þráttir: þegar hetjan kemur heim úr svaðilförinni er hún ekki á heimaslóðum á sama hátt og fyrir svaðilförina. Skrímslið/hringurinn/svarti riddarinn/hryðjuverkamaðurinn ógnaði þorpinu – veitti stöðunni andstöðu. Þegar hann hefur verið yfirbugaður er ekki einfaldlega snúi til fyrra horfs – eitthvað sakleysi hefur glatast, hetjan er heima hjá sér á allt annan hátt eftir en áður, þó ekki sé nema vegna þess að nú er hún hetja.
Og Himnaríki er ekki nákvæmlega Eden, einmitt af sömu sökum – eða Himnavistin verður ekki nákvæmlega söm dvölinni í aldingarðinum forðum. Og svo framvegis.
Þráttir hvíla semsagt á því meginatriði að tveir mínusar séu ekki plús. Þær eru leið til að sjá heiminn, tegund hugsunar, þar sem orðum manns er ekki ætlað að lýsa staðreyndum heimsins eins og þær eru, heldur taka þátt í framvindu hans.
Enn eitt dæmi: Þegar stjörnufræði samtímans segir: nei, sólin er ekki í miðjunni, eru hún hvorki að gera málamiðlun við Kepler né leita aftur til miðalda, heldur endurtekur hún einmitt neitun Keplers, gengur skrefinu lengra. Saga vísindanna er jafn díalektísk og allt annað, veröldin er vals, við erum sennilega stödd í moll. Næst: Ha?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli