17.1.07

Get ekki þagað lengur

Nú hætti ég þessari uppgerðarhógværð og bendi alþjóð á að fyrsta grein íslenskra fjölmiðla um blogg var, að því er ég best veit, skrifuð í Morgunblaðið sumarið 2001, hún var heil opna og höfundur var ég, þá sumarblaðamaður á Daglegu lífi. Ég tók viðtal við Salvöru Gissurardóttur, Sigga Pönk og Stellu og Kristján. – Kristjáni þykir trúlegt að íslenskir bloggarar séu um 70 talsins. "Það eru alltaf einhverjir að bætast við," segir Stella "en fáir sem halda út svona lengi."

1 ummæli:

Olla Swanz sagði...

...og hver benti þér á þau kristján og stellu????