stilla hjartans strengi í fimmundir.
Ólöf Arnalds lætur bráðum frá sér plötu sem ég nýt þeirra óheyrilegu forréttinda að hafa fengið að hlýða á síðustu vikur, óútgefna. Mann langar að tala kristilega, um náð og mildi … þið vitið það kannski ekki ennþá, en þið eruð að bíða eftir þessu. Í andakt. Ég hef ekki beðið um leyfi til að láta þessi textabrot hingað, og má það áreiðanlega ekki … en til að gefa mér örstutt hlé frá prófarkalestri oftáðurnefnds sölubæklings um tengivagna fyrir dráttarvélar leyfi ég mér það samt:
Ég hef ekki alla tíð
notið láns að vera fundvís
verið auðtrúa en
stundum undirförul samt.
Fetað hef ég margan stíg.
Setið lengur en ég undi,
ekki viljað stoppa
fyrr en staðnæmdist við þig.
Þegar allt kemur til alls
verður allt annað að engu.
Þegar allt í mér mætir öllu í þér
má ég vera hjá þér lengur?
1 ummæli:
Þetta selur alveg lágmark tvo tengivagna ...
Skrifa ummæli