Ég ætla að leyfa mér að skrifa eftir minni og hafa ekki áhyggjur af því hvað birtist hvar enn sem komið er – þvi má þá bæta við seinna ef þurfa þykir.
Meðal þeirra fræðimanna sem gera tilkall til að kallast hugsuðir eða heimspekingar í þeirri merkingu sem er ekki bara fagheiti heldur felur í sér einhvers konar tign eða vottun á ágæti, virðist vera við lýði keppni um hversu einn maðurinn getur verið í heiminum. Þegar ég, liðlega tvítugur, þóttist viss um að Friedrich Nietzsche hefði þannig séð hitt naglann á höfuðið í flestum stærri atriðum sem varða það að vera og verða maður, var mér boðið á stefnumót við lútherskan guðfræðing, til að svara í sameiningu nokkrum spurningum fyrir Vísindavefinn. Guðfræðingurinn mætti mér á heimili sínu, kjallaraíbúð í grennd við einkar undarlega kirkju, í svörtum buxum, svartri skyrtu og brúnu leðurvesti, „hokinn af fræðum“ hugsaði ég, horaður, með eld í augunum, og bauð mér inn í stofu, gegnum ganga sem gáfu til kynna að húsið væri reist úr bókum … óþarfur útúrdúr en mér þótti þetta allt nokkuð tilkomumikið. Hann bauð mér upp á bleksvart kaffi, þessi djöfullegi guðfræðingur, og settist svo niður með mér. Spurningunum sem borist höfðu vefnum var flestum auðsvarað, en ég gætti þess að flýta mér hægt, dvelja nógu lengi til að telja í mig kjark til að spyrja einhvers í ætt við: Hvernig er hægt að vera guðfræðingur eftir Nietzsche? Og allt annað. Er það ekki vingulsháttur að trúa á einhvern Guð, þegar raunin og áskorun tilverunnar er sú að maðurinn er alveg einn í heiminum. Og eitthvað í þessa veruna tókst mér að spyrja, og var umsvifalaust sleginn út af laginu fyrir það að spurningin sló guðfræðinginn ekki út af laginu. Hann hallaði sér fram á við og útskýrði fyrir mér: Það er nefnilega það skelfilega. Nietzsche segir að maðurinn sé einn í heiminum og það er svo sem nóg – að hvort sem maður horfi inn eða út blasi ekkert við nema botnfylli af myrkri. Í heimsmynd Lúthers gildir þetta líka, maðurinn er einn og þegar hann mænir ofan í brunninn mætir honum ekkert nema myrkur – en það er jafnvel verra en svo, því handan við botnlausan myrkurbrunninn sem þú starir niður horfir auga til baka – og það er auga sem dæmir þig. Þú ert einn í heiminum, en þú sleppur ekki jafn létt frá því og Nietzsche hélt.
Með afar vel þegnum og yndislegum undantekningum á við Martin Buber, er þetta leiðarstef, ekki bara þeirrar heimspeki sem kallar sig existentíalisma, heldur nær alls sem rekið hefur á vörður mínar um tilvist mannsins frá því daginn með guðfræðingnum. Enda er þá rætt um „manninn“ en ekki „mennina“ – þar taka félagsvísindi og stjórnmál við, og leyfa okkur ekki að sleppa svo auðveldlega að vera ein í heiminum (en taka þátt í slagnum um að „sleppa okkur ekki billega“).
Sálgreining í meðförum Zizeks sleppir engum billega. Í lunga þess sem hann skrifar beitir hann sálgreiningu í pólitísku og samfélagslegu samhengi – og hefur það lykilatriði frá Lacan, að löngunin er að stofni til löngun annars, og sjálfið er afurð hennar. Það er enginn maður einn í heimi Zizeks. Hins vegar –
Hins vegar hefur Zizek á einhverjum stöðum vikið stuttlega að hugmyndum um „Siðfræði sálgreiningarinnar“ – þá oftar en ekki til að svara spurningum siðfræðiþyrstra.
Áður en lengra er haldið er rétt að minnast á að þrátt fyrir að hafa verið forsetaframbjóðandi fyrir hönd frjálslyndra lýðræðissinna, liberal-demókrata, eftir fall sósíalismans í Slóveníu um 1990, leggur Zizek í ritum sínum allt frá þeim tíma varla meiri fæð á nokkurt annað stjórnmálaafl eða hugmyndafræði, og er einkum fráhverfur siðfræðivæðingu þeirra mála sem réttilega eru eða ættu að vera pólitísk. Þannig má auðveldlega halda því fram að það sem á eftir fer leiki ekki sérdeilis veigamikinn þátt í heimspeki Zizeks – eða í öllu falli ekki á þann máta sem kannski virðist liggja í augum uppi. En víkjum þá að siðfræði sálgreiningarinnar.
Aðspurður um hvort hægt sé að leggja fram einhverja siðfræði á grundvelli sálgreiningar byrjar Zizek á að greina mjög skýrt og skilmerilega á milli þess sem á ensku nefnist morality og hins sem heitir ethics. Við skulum tala um velsæmi og siðfræði.
Velsæmi felst þá í hlýðni við settar reglur – ekki bara borðsiði og kurteisisvenjur heldur eru þar með taldar ströngustu grundvallarreglur þess sem allajafna er kallað siðferði. Þú skalt ekki mann deyða.
Siðfræðileg hegðan – og nú er þetta orðalag alls ekki fullnægjandi, en látum það duga – siðfræðileg breytni er sú sem sprettur ekki af fylgispekt við reglur, ekki einu sinni „viðurkenndar og sanngjarnar leikreglur samfélagsins“, heldur af skilyrðislausri skuldbindingu við grundvallaratriði sem einstaklingurinn getur aðeins sett sér sjálfur, og á sér ekki rætur í tilskipan nokkurs herra, hvorki raunverulegum né ímynduðum. Siðfræðileg breytni, útfrá forsendum sálgreiningar, í túlkun Zizeks, er laus undan tilskipunum yfirsjálfsins.
Tragískar hetjur á við Antígónu gefa dæmi um slíka siðfræðilega breytni – sem fer fram úr því sem ríkjandi siðferði kallar eftir og brýtur jafnvel beinlínis á því. En einmitt þess vegna eru líka til dæmi um siðfræðilega trúfestu eða breytni sem enginn þátttakandi okkar samfélags eða annarra væri fús að lofa. Þó að Zizek finnist Sade sjálfur hafa svikist um, getur sadísk breytni verið fyllilega siðfræðileg í þessum skilningi, sé hún nógu konsekvent. Sade sveikst um með því að vísa til skyldu – líkt og Eichmann og aðrir nasistar gerðu síðar, og voru þess vegna ekki siðfræðilega heil illmenni. Siðfræðilega heilt illmenni er þó mögulegt – vegna þess að forsendur siðfræðilegrar breytni eru eingöngu formlegar. Á forsendum sálgreiningar er ekki hægt að veita siðfræðilegri breytni nokkurt inntak – enginn er þess um kominn að segja hvað grundvallaratriðið ætti að vera. En því ber að sýna hollustu – eins þó að vitaskuld megi ekki nota sögnina „ber“ hér, því hún felur aftur í sér hlýðni við einhvers konar yfirboð.
Eins og einhverja rennir ef til vill þegar í grun um mætast Kant og Kierkegaard á þessum punkti – og er það mál Zizeks að sem róttæk túlkun á Kant sé þetta einmitt rétt túlkun á honum.
Hvað sem líður notkun hugtakanna – og við skulum gæta þess að bindast ekki íslenskum þýðingum orðanna of rammlega, því „siðfræðilegt“ hefur aðrar skírskotanir en „ethical“ – er í það minnsta ljóst að þeir vekja almennt hrifningu manna sem eru fastir fyrir, líkt og sumir meðlimir Sjálfstæðisflokks og aðrir meðlimir Vinstri grænna virðast kunna betur hverjir við aðra en við ýmsa meðlimi Samfylkingar, sem er þá freistandi að nefna frekar móralskan flokk en siðfræðilegan.
Þó svo hin siðfræðilega krafa eigi ekki einföld, gegnsæ og augljós vensl við pólitísk skrif Zizeks, samræmist hún þó vel því máli hans að kenning sé þá aðeins áhugaverð að henni sé fylgt eftir til hlítar – málamiðlanir og moð eru leiðinlegri og ófrjó í samanburði, eins þó að slíkur samsetningur geti hugsanlega betur samræmst upptalningu staðreynda í heiminum.
Sem leiðir okkur þá að endurnýjun Zizeks á sannleikshugtakinu – í næstu færslu.
3 ummæli:
Hei, þetta er gaman. Gott að þú ert ekki hættur.
Annað sem mér datt í hug, er að þessi hugmynd Ziseks um velsæmi og siðferði rímar við kvikmyndir dagsins í dag sem reyna að kommentera á einhvern hátt á heimsástandið. T.d. Children of Men (sbr.þennan dóm) þar sem kvikmyndagerðarmennirnir fjalla um framtíðina með því að vísa í ýmislegt slæmt í nútímanum (Abu Ghraib, Guantanamó, Homeland Security, o.s.frv.) án þess þó að hafa skýra hugmynd um af hverju hlutirnir séu svona og af hverju þeir gætu þróast í þá átt sem birtist í Children of Men. Myndin væri því móralskt verk, en ekki siðfræðilegt í þessu samhengi (sem virðist líka vera gagnrýnispunkturinn í dómi Walsh).
Hæ – já, hm … snúið. Góður dómur, annars. Ég er reyndar ekki viss um að ég sé sammála honum, því mér finnst umrædd mynd verulega góð. Það er hins vegar takmörkun kvikmynda – og ég er ekki viss að hve miklu leyti þetta er takmörkun „myndarinnar“ sem slíkrar og að hversu miklu takmörkun framleiðsluferlanna eins og þau eru í dag, semsagt Hollywood-dreifing, stjörnur, peningar, hátíðir og svo framvegis – að þær eru betri í sensasjónalisma en greiningu. Það er þeirra forte, og kannski eðlileg verkaskipting. Kannski þarf einfaldlega að lesa bækur til að fá hitt. Hvaða kvikmynd veitir annars sterka og djarfa innsýn í dýnamíkina milli félagslegs óréttlætis og framleiðsluferla? Það eina sem ég man eru stakar napurlegar athugasemdir persóna í myndum Mike Leighs, frekar en myndirnar sem slíkar sem eru einmitt vel heppnaður sensasjónal félagslegur realismi
Hvað varðar heimsmynda sem er dregin upp, og dóminn sem myndin fellir eða hótar að fella, um samtímann, þá er kannski freistandi að fella Cuaron í sama flokk og Lucas Moodysson eftir Lilja 4ever og a Hole in my Heart – sem er kannski líka flokkur Andra Snæs – sem mætti kalla „siðfræðilegt velsæmi“. Semsagt, menn sem urðu fyrir áfalli yfir því að veröldin samræmist alls ekki þeirri heimsmynd sem úthverfin veita þeim í bernsku, og sýna því áfalli siðfræðilega hollustu og rækt í gegnum feril sinn sem listamenn. Slíkum verkum held ég að hætti til að vera naíf – en í því liggur líka styrkur þeirra, því hið siðfræðilega, í þessum skilningi, sem þessi tryggð við grundvallaratriði, er alltaf naíf.
Skrifa ummæli