Þetta verður lagað eins og annað, en einmitt núna stendur á mbl.is: Ítalskir fótboltaleikvangar verða ekki opnaðir almenningi á ný fyrr en öryggisráðstafanir hafa verið gerðar, þetta sagði Giuliano Amato, innanríkisráðherra Ítala að loknum neyðarfundi um íralska knattspyrnu.
Og mann grunar að þessi saklausa prentvilla, um íralska knattspyrnu, sé sprottin úr undirmeðvitund sem gerir ráð fyrir að allir neyðarfundir heimsins hljóti að vera um annað hvort Íran eða Írak eða Íral ...
Ég verð annars að lofa Rafaugað fyrir nýtt fitubrennsluátak. Verulega góðir sprettir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli