24.1.07

Laun heimsins eru ekki vanþakklæti

Ég var að fá símtal. Bréf í Kópavogi. Stjórn ritlaunasjóðs þakkar mér fyrir að sækja um en því miður. Bendir mér á næsta umsóknarfrest. Ég sit annars í Reykjavíkurakademíunni og þýði sölubækling fyrir tengivagna, er í miðjum skelskrokksvagni með ábreiðuvindu. Ég verð þá bara hérna. Bið að heilsa heiminum, sjáumst að ári.

Laun heimsins eru mútur.

Engin ummæli: