17.4.07

Við skírðum bara úr vatni


Héðan í frá mun ég bara birta stolið efni af paprikublogginu. Þar er skírt úr eldi.
Bráðum kemur út bókin Handsprengja í morgunsárið. Bíðið bara. Hún skírir með brennisteini. Kápan ein tekur flestum íslenskum ljóðabókum fram. Sumar ástarinnar er í uppsiglingu, öld vatnsberans, stund hvítu kúarinnar. Og loks næsta stig kapítalismans: opnaðar verða svitabúðir í fátækum löndum þar sem fátæk börn vinna 16 klukkustundir á sólarhring við að kaupa og selja hlutabréf fyrir hönd vestrænna lífeyrisþega.

Fara annars ekki tölvur að verða betri í áhættugreiningu og hlutabréfaviðskiptum en menn, svo þetta fari úr böndunum, hrynji loksins og við getum farið að gera eitthvað annað en níðast á ókunnugum?

Spái byltingu fyrir 2050.

Engin ummæli: