Fyrir nokkrum dögum fluttu fjölmiðlar frétt af háhýsi, turni, sem Baugur mun reisa í Bergen og verður þeim Bergenum, þeim Bjargbúum, Óperuhöllin í Sydney, verður þeim Eiffelturn og Hallgrímskirkja. Fréttaskýring mbl.is hljóðar svo:
Fúll fnykur sem engar skýringar hafa fundist á liggur yfir miðborg Bergen og mörgum úthverfum, að því er Bergens Tidende greinir frá. Hefur heilbrigðisyfirvöldum ekki tekist að finna ástæður ólyktarinnar sem einn lesenda blaðsins lýsti sem blöndu af sorplykt og síldarbræðslu.
Upplýsingafulltrúi borgarinnar hafði samband við heilbrigðisyfirvöld, sem höfðu í dag enga skýringu fundið á fnyknum, sem fór að finnast í gærkvöldi og morgun. Yfirmönnum vatnsveitu borgarinnar og fráveitukerfis hefur ekki heldur tekist að finna skýringar.
Haft er eftir veðurfræðingnum Magnus Anglevik að mælingar á til dæmis svifryki og koltvísýringi væru eðlilegar.
---
Annars: iðjusemi er dyggð, dagurinn var góður, nú er mál að linni
því eybúinn talar jafnan um heimkynni sín
eins og hillingar séðar utan af hafi
þangað til menn verða sjóveikir að hlusta
og hann finnur aldri leiðina heim
utan at fara kring knøttin
– Úr Eybúasögu Þorgeirs Þorgeirsonar. Á íslensku og færeysku. Allt sem ég hef séð í Leshúsi er dáldið gott. Hann var fyrsti kvikmyndagerðarmaður landsins og trúlega er rétt að nefna hann fyrsta bloggarann líka. Síðustu 15 ár ævi sinnar barðist hann fyrir því að fá fellt út s í nafni sínu, og heita Þorgeirson en ekki Þorgeirsson í Þjóðskrá. Davíð Oddsson sýndi honum að lokum mildi, veitti honum lausn með einhverju tilmælabréfi, eftir að málið rataði fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ef ég man þetta rétt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli