5.4.07

Hún Guðrún

ÞG hitti naglann á höfuðið. Höfundur ljóðbrotsins sem birtist hér á síðunni um daginn er einmitt Guðrún Steinsdóttir. Ljóðið í heild sinni hljóðar svo og birtist í Lesbók 1999:

---

STRÍÐIÐ VIÐ DAGANA

dagarnir vakna

nudda skýjaflókana úr augunum

grípa um sólargeislana í mjaðmabeltunum

henda sér fram af fjallshlíðum

smeygja sér inn um skráargöt

skríða út úr húsasundum



um morgunþætti útvarpsstöðva

og tíst smáfugla í görðum

berast hernaðarleyndarmál

á dulmáli



mennirnir vígbúast ristuðum brauðsneiðum

ávaxtasafa og skjalatöskum

kveðja konur og börn

og ganga mót vígreifum dögunum



baráttan er hörð;

dagar hverfa gleymdir á vit ára sinna

og menn hverfa gleymdir í duftið

fyrir fótum daganna;

og þrátt fyrir árþúsunda þjálfun

mæðast stríðsaðilar fljótt;

mennirnir sligast undan lífsbaráttunni

og vígbúnaðarkapphlaupinu

líkt og dagarnir

sem verða vart nema skugginn af sjálfum sér



Það er því enginn sem andmælir

þegar sáttasemjarar nætur

koma á vopnahléi um stund



nema tunglið

sem heldur uppi skæruhernaði

---

Þeir sem ekkert hafa við tíma sinn að gera, eða eiga það stöðugt og traust samband við fáránleika tilverunnar að þeim finnst ekki áríðandi að taka eitt fram yfir annað, þegar kemur að tíma og uppfyllingu hans, velta fyrir sér hvort tengsl séu á milli Guðrúnar þessarar og hennar Mengellu, en þeir fylgja málinu ekki endilega stíft eftir, enda fyrst og fremst alveg sama. Þá hafa einhverjir velt fyrir sér hvers vegna ekki spyrjist til bókar frá Guðrúnu, þar sem hún virðist hafa náð alllangt í list sinni þegar árið 1999, þarna virðist verðlaunaskáld í mótun, jafnvel ný fyndin kynslóð.

Engin ummæli: