21.4.07

Times New Woman, Times Nero Roman, Rhymes to Shaman, gaman gaman gaman!

Ég spái fimm hæða byggingu á lóðir húsanna sem brunnu. Þagni fólkið munu steinarnir fagna, sagði Jesús, og þannig lyktar bruninn af peningum: ef enginn kveikir í húsunum kveikja þau í sér sjálf, til að rýma fyrir hagvexti. Klúbbur og hótel. Tek á móti veðmálum.

Don't stop me now, I'm having such a good time. Ég ætla að skrifa mastersritgerð í kennslufræði, um mikilvægi blóðfórnarinnar til styrkingar á innviðum hópa í grunnskólastarfi – nei, djók! I'm having a ball.

Hvað segir maður við kunningja sinn sem ef til vill ber mesta ábyrgð á fimm prósenta fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins eftir „vel heppnaðan landsfund“? Nei, í alvörunni. Hvað segir maður við hann ef stjórnin heldur fyrir vikið velli í kosningum? Don't stop me now syngur kapítalið og sagan brennur utan af okkur, veggjum fækkar óðum í Reykjavík, við viljum opin rými til að ljósmyndararnir komist fyrir, flestir líta betur út með langri linsu.

Ég minni ykkur á, kæru landsmenn, að byltingunni verður ekki sjónvarpað. Í stað hennar sýnum við þátt um vinsælustu söngkonu Dana … Sumarið 2007 verður hins vegar áreiðanlega efni í beinar útsendingar og heimildamyndir, the summer of love. If you wanna have a good time, just give me a call. Heimili mitt tekur börum fram. Í flestu.

2 ummæli:

Elvar sagði...

þú ert svo vel að þér, þú veist með dönsku söngkonuna og auglýsingin með kvín laginu. Þú ert enþá í útlöndum ekki satt?

Haukur Már sagði...

Hæ – nei, ég er semsagt á landinu. Annars væri ég örugglega að blogga um íbúð Angelinu Jolie og Brad Pitt við Torstraße í staðinn.