„Það voru Bretar og Þjóðverjar og Frakkar og trúleysingjar að selja álver og banka og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta var óhuggulegt.“
Nei, þetta sagði enginn í sjónvarpinu í kvöld. En þetta heyrðist:
„Það voru Tyrkir og Grikkir og svertingjar og múslimar þarna að selja kebab og pylsur og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta var óhuggulegt,“ – ræðumaður rammíslenskur karlmaður á fundi Frjálslynda flokksins um 'málefni útlendinga' í kvöld, fyrir framan myndavél Ríkissjónvarpsins. Sjá 10-fréttir.
Össur Skarphéðinsson hitti naglann nefnilega hvorki á höfuðið né skrokkinn heldur barði beint í puttana á vinstrihönd þegar hann sagðist, í Kastljósi í gær, ekki mótfallinn því að Frjálslyndir tækju 'þessi mál' til umræðu, hann væri bara ósammála staðreyndunum sem þeir legðu fram. Reyndin er að það er ekkert við staðreyndirnar að athuga: heimurinn er fullur af Tyrkjum og Grikkjum og svertingjum – og múslimum! – Það er hins vegar í ummælum eins og þeim sem er vitnað til hér að ofan sem Frjálslyndir koma upp um hverjar hvatir eru að baki málflutningi þeirra. Þær heita rasismi eða xenófóbía og eru rangþýddar sem útlendingahatur. Þarna hatar enginn útlendinga. En þarna eru margir að beina hver annars fortíðarþrá í farveg andúðar á innflytjendum.
Það sem ber að gera: hnattvæða verkalýðsbaráttu, andspænis hnattvæddu kapítali. Boða trúleysi um peninga. Það sem ber ekki að gera: níða manneskjur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli