25.4.07

Ekki halda aftur af mér, það er svo gaman!

Húslestur dagsins: Naomi Wolf um skrefin tíu til fasisma.

Mikilvægasti lærdómur dagsins: gríska orðið skhole, sem á íslensku verður skóli, þýðir upprunalega frí.

Kaldhæðni vorra daga: Íslensku olíufyrirtækin eru nýnáðuð vegna tæknivillu í málsókn fyrir býsna stórvirk rán sem allir vita að þau hafa lagt stund á; í Írak geysar olíupartí sem sér ekki fyrir endann á enda kunna menn sér ekki hóf fyrstu daga frelsisins og þónokkur slatti fólks virðist á því að himinn og jörðu gætu farist á næstunni einkum vegna óhóflegrar olíunotkunar en íslenskt olíufyrirtæki auglýsir, eftir yfirtöku á pylsusala sem þótti tilefni til nafnbreytingar: Don't stop me now. I'm having such a good time. I am having a ball.

Don't wanna stop at all.

Gott fólk: það er einhver að fokka í okkur, eina spurningin er hvort hann er til, í hefðbundnum skilningi, eða ekki.

Spurning dagsins (hin spurningin): hafa aðrir orðið varir við þessa djúpu lægð sem er víst yfir landinu?

Engin ummæli: