Það er nú svo. Hið staliníska æði er runnið af okkur Godot sem sitjum í mestu spekt og setjum saman kvæði. „Engum þóttu ljóðin góð …“ – Godot er að þýða viðtöl við helstu þjóðlagahöfunda 20. aldar – eða hvað nefnir maður folksong á íslensku? Sjálfur hef ég setið og hriflað fyrir þartilgert vefrit um kynlífshandbækur frá JPV útgáfu. Höfundurinn er víst í heimsókn á Íslandi um þessar mundir, ég verð að viðurkenna að ég hef töluvert minni áhuga á að hitta hana eftir lestur en ég hefði kannski haft fyrir. Þó ekki sé nema vegna blætissmits sem átti sér stað þegar ég las um stefnumót Dave Eggers við kynlífsráðgjafa, í bók hans sjálfs – þeim tókst ekki að sofa saman svo hann hefur frá engu að segja, en var allur á nálum í aðdragandanum. Svo ég hefði getað reynt að vera allur á nálum, hefði ég ekki lesið bækur konunnar. Og raunar er nóg að skoða myndirnar. Í grundvallaratriðum er hér stutt við þá geldingu sem hefur átt sér stað á síðasta áratug, ef til vill tveimur, með kringluvæðingu kynlífsins. Hér er ekkert sem kæmist ekki á plakat í Kringlunni.
Hvernig getur verið vitnað í fagran dóm úr The Guardian á baksíðu þessarar bókar? Stundum skil ég ekki hvernig bókadómar virka. Alls ekki.
Ég er ekki þræll, ég er þjónn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli