Sólskinsfólkið sama bók og Áhyggjudúkkur? Hm … mér brá einmitt svo við lestur að sjá hversu frábrugðin hún er. Ha, Hreinn?
Þekkja ekki allir allt sem múm hefur gefið út? Að einhverju leyti fannst mér munurinn sambærilegur við fyrstu alþjóðaútgáfu múm – Yesterday was dramatic … – og síðan minimalíska diskinn sem gefinn var út í Þýskalandi nokkru síðar. Fyrsta platan var full af hljóðum og tónlistarmennirnir virtust hafa leikið sér að því að setja allt inn sem þeim þótti fallegt, næsta plata var eins og unnin ofan frá niður: skipulag og strúktúr sem fyllt væri í, aðeins með því allra nauðsynlegasta, „the bare necessities“.
Þó hljómuðu vitaskuld báðar eins og múm.
Þorgeir Þorgeirsson skrifaði á vefinn sinn um Björk að hún hefði verið að syngja sama lagið fyrir heiminn frá því hún var 13 ára. Eitthvað í þá veruna. Og bætti við að með þessu vildi hann engan móðga, bestu rithöfundar skrifuðu bara sömu bókina aftur og aftur – Kafka hefði ekki skrifað nema eina bók, sama gilti um Dostojevskí, Hemingway … taratí, tarata.
Hvað er ég að segja? Er ég svo upprifinn af rithöfundinum Steinari Braga að í fyrsta lagi er nýja bókin allt öðruvísi en sú fyrsta, og í öðru lagi er frábært að þær séu báðar eins?
Ég er sucker, það er tilfellið … en vil þó meina að nokkuð sé hæft í hvoru tveggja.
Spyrjið sjálf ykkur: Ef aðeins einn rithöfundur ætti að fá að koma bókum sínum til næstu kynslóðar, en aðrar bækur yrðu brenndar, hver ætti það að vera? Þetta er einn mögulegur og ágætur prófsteinn á mikilvægi bókmennta. Segjum að Höfundur Íslands, sem ég hef enn ekki lesið, sé góð bók. Væri vit að fleyta henni áfram en Sjálfstæðu fólki ekki?
Myndum við kannski öll enda á Biblíunni eða Tractatussnum? Hljótum við að fleyta áfram höfuðritum, eða eru frávikin mikilvægari: Er Kjötbær Kristínar Eiríks ef til vill verðmætara framlag til næstu kynslóðar en Biblían?
Ef til vill væri áhugaverð tilraun að leyfa heilli kynslóð ekki að lesa neitt nema Kafka. Veslings börnin …
---
Hm … hefur einhver fundið peninga nýverið? Ég leit á atvinnumiðlunarvef Evrópu og sá að í Svíþjóð er hugbúnaðarfyrirtæki að leita eftir Íslendingi í Technical Support deildina. Sá fyrir mér að þannig gæti ég stigið inn í fyrirtækjakúltúr samtímans og skrifað áhugaverða, áleitna og launhæðna skáldsögu um raunveruleikann sjálfan, ég gæti verið á staðnum, og loksins lært hvernig alvöru heimurinn er. Svo ég sendi þeim tölvuskeyti, rétt til að spyrja hvort staðan væri ennþá laus. Staðan er vissulega laus en ég efast sterklega um að ég muni nokkuð frekar aðhafast. Mun frekar halda áfram kvalitatífum og spekúlatífum rannsóknum á raunveruleikanum.
Vissuði að í höfuðstöðvum ESB í Brussel er sturta á hverri skrifstofu. Flestir starfsmenn fara hins vegar í sturtu heima hjá sér, svo heil deild starfsmanna sér um að ganga á milli hæða og skrúfa frá krönunum til að koma í veg fyrir ryð og stíflur.
Þetta er raunveruleikinn, að óathuguðu máli. Ég er í höfn í augnablikinu, ætla út í fótbolta með krökkunum og senda svo sms skilaboð á meðan ég kasta mæðinni. Mæðunni.
Þeir rithöfundar sem nota forskeytið tísku- til að gysast að eða gera lítið úr úrvinnslu á orðfæri samtímans eru asnar. Frekari orðum er eiginlega ekki á þá eyðandi. Þeir borði skyrið sem á er slett.
Í öðrum fréttum: Godot er kominn. Meira um það síðar.
2 ummæli:
Ekki lesið sólskinsbörnin (og ekki heldur áhyggjudúkkur) en hvað björk varðar þá er ég alveg sammála að hún sé alltaf að syngja sama lagið, þ.e. þetta er alltaf soldið svipuð melodía sem er í gangi. en hún kann að velja sér hjálparkokka og þar liggur kannski snilldin. það er kannski erfiðara að fá hjálparkokka í skáldsögugerð svo það er erfiðara að fela að melódían hefur kannski ekki breyst mikið.
Ha Hreinn? Á ég að svara hér? Kannski meira um það á rafauganu á næstunni. En mér finnst einmitt töluverður munur á þeim tveimur múm-plötum sem þú nefnir þarna! Þú hefur nú blindast af öllu sólskininu neinei, neinei en mér finnst í alvöru Sólskinsfólkið vera taka 2 í tilraun Steinars Braga til að skapa/sýna á tiltekinn hátt. Sólskinsfólkið er klárlega betri, en ég á eftir að finna upp rök til að geta talað um þetta, ég byggi þetta allt á óljósri tilfinningu.
Já, tískan maður og rembingurinn ha ha.
Skrifa ummæli