Þá að síðustu, til að fullgera hækuna, þriðja mbl-fréttin þennan morguninn:
Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, gekkst undir rannsóknir á sjúkrahúsi í Washington í gærkvöldi, eftir að hafa fundið til andþrengsla, en hann hefur átt við hjartasjúkdóm að stríða og er 63 ára að aldri. Í ljós kom að ekkert alvarlegt amaði að honum og var honum leyft að fara heim að loknum rannsóknunum.
Talsmaður Hvíta hússins, Ken Lisaius, segir að Cheney hafi ákveðið að fara á George Washington háskólasjúkrahúsið að ráði lækna. „Hann er búinn að vera með slæmt kvef, sem gæti vel útskýrt andþrengslin. En hann tók enga áhættu og lét líta á þetta, eins og allir með svipaða sjúkrasögu ættu að gera.“
Engin ummæli:
Skrifa ummæli