Og ég rís úr veikindunum eins og dögg að nóttu, eilífðardögg á eilífðarsmáblómi, ég er þetta titrandi tár!
Það var kvefpest. Að óathuguðu máli er lungnabólga enn ekki útilokuð en berklar þykja nánast fjarstæðukennd útskýring. Entist samt lengur en ég á að venjast … raunar fékk ég vin í heimsókn þegar ég var að stíga úr veikindunum fyrir tæpri viku og ákvað þá að beita trixi sem ég minntist úr menntaskóla og drekka úr mér veikindin. Það virðist ekki duga eftir tvítugt. Það virðist eiginlega bara vera jafn mikil firra og sumir geta kannski sagt sér sjálfir. Nú segi ég mér það sjálfur: Veikur dvelur maður heima. Veikur hugsar maður vel um sig og forðast eitur.
Hm, allir búnir að sækja um rithöfundalaun? Ég er enn á báðum áttum … held að raunsætt séu innan við mælanlegar líkur á að maður fái úthlutun án þess að hafa gefið út skáldsögu hjá viðurkenndu forlagi, en finnst mér hins vegar ekki stætt á því að reyna ekki … peningar gera margt auðveldara.
Hm, Godot er væntanlegur á morgun. Með parmeggiano en það verður bið eftir ítölsku jakkafötunum sem hann hafði lofað mér, einhverjar greiðslur hafa verið að tefjast …
gott og vel, ég segi ekki að ég sé fyllilega heill heilsu. Ætla að leggjast í mók.
H.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli