14.11.04

Hermenn finna lík sem þeir telja vera af vestrænni konu

Fyrirsögn og þetta hér að neðan fengið af mbl.is (14.11.2004 10:05) – þetta er semsagt fréttasyrpa af ljóshærðu líki:

Bandarískir landgönguliðar fundu í dag limlest lík konu sem þeir telja vera af vestrænum uppruna á götu í miðborg Falluja. Líkið lá á götunni, hulið blóði drifnu klæði. Hermennirnir óttast að það sé tengt sprengigildru og ætla að láta hunda þefa eftir sprengiefnum. Liðsforingi í Bandaríkjaher segir „80% öruggt“ að um sé að ræða lík konu frá Vesturlöndum, þótt ekki sé búið að rannsaka það nema lauslega.

Vitað er um tvær vestrænar konur sem rænt hefur verið í Írak. Margaret Hassan, 59 ára yfirmanni CARE hjálparstofnunarinnar í Írak, var rænt 19. október og Teresa Borcz Khalifa, 59 ára Pólverja, var rænt í síðasta mánuði. Ræningjar beggja höfðu m.a. krafist þess að erlent herlið yfirgæfi Írak.

Engin ummæli: