Jájá … lítið um færslur á meðan ég starfa fyrir Finnann … hún minnir mig á persónu úr múmínálfunum, en hver gerir það ekki? Hm … lítið um allt á meðan. Er að reyna að hrifla um bækur frá JPV á Kistuna, en Ágúst Borgþór er alltaf búinn að lesa þær á undan mér.
Hvar getur maður annars nálgast smásögur eftir Ágúst Borgþór? Ég hef aldrei séð þær. Það er kominn tími á að staðfesta eða hrekja fordóma manns fyrir honum – ég veðja á að þeir verði staðfestir og sögur hans reynist: afar vandaðar, vel uppbyggðar, allt á réttum stað en skyggnist hvorki í áður óþekkta afkima sálarlífs né samfélags, né reyni það, né sýni neitt með alveg nýjum hætti né ætli það, og hvorki sé að finna þar raunverulegt myrkur né gáska – nema þá ef til vill í fyrri smásögum, þar finnst kannski gáski sem höfundur lítur þá nú á sem byrjendabrag og hefur sniðið af sér með þar til gerðum skáldhefli. Svona hljóma fordómar mínir í garð Ágústs Borgþórs, því svona finnst mér hann hljóma á netinu. Ég held líka að hann sé með hræðilega ofvaxinn píslarvættiskomplex, sem hann hefur þá fundið varanlega útrás fyrir í varnarstöðu sinni fyrir smásöguna. En hver er ekki með píslarvættiskomplex?
Ég er með Kierkegaardkomplex, fyrst og fremst. Bendi fólki á daginn út og inn að hugmyndir þeirra og túlkanir séu meira og minna hálfköruð kristni. Benti síðast Hjörleifi Finnssyni á að túlkun hans á Dogville Triers væri í raun kristileg, við beinið. Þetta er stórskemmtilegur leikur. Mæli samt ekki með dec.hi.is – krossgátutúlkunarfræði.
Við Godot erum annars í essinu okkar og hún segir að ég sé kynþokkafyllri en annars þegar ég vinn. Fyrir aðra og fyrir peninga. Þannig leiða konur menn í glötun, báðir aðilar kampakátir.
Er búið að leggja niður Nýhil? Og nei … hm … greini ástandið betur á næstunni. Trúlega. Lofa þó engu. Jú, trúlega.
3 ummæli:
Ég held að þú megir búast við athugasemdum frá Ágústi, heyrst hefur að hann gúgli sig daglega.
Ég hélt að sögurnar gengju út á að hann tantraði sig daglega...
Bókasafnið er svarið. Hillurnar þar sem A og Á eru. Ég skal taka saman dálítinn lista yfir það sem helst gæti höfðað til þín:
Síðasti bílinn: Fyrsta sagan, "Saknað".
Í síðasta sinn: Þú gætir fílað sögurnar "Í síðasta sinn", "Batavegur" og "Brot úr forsögunni."
Hringstiginn: "Viðvaningar" og síðasta sagan í bókinni (man ekki hvað hún heitir)
Sumarið 1970: Tékkaðu á "Hverfa út í heiminn". Hún virðist kannski ekki vera að þínum smekk en það fíla hana eiginlega allir sem lesa hana.
Tvisvar á ævinni: Ætli ég velji ekki "Sektarskipti" handa þér.
Góða skemmtun.
p.s. þeir sem hneykslast á sjálfhverfu bloggi og "sjálfsuppgoogli" virðast vera þeir sem blogga um sjálfa sig og googla sig sjálfir upp reglulega.
Skrifa ummæli