Eru fréttirnar hér að neðan úr sama ranni runnar og samskipti Íslands og Bandaríkjanna um þátttöku svertingja í hernaðarstarfi á Íslandi: Eftir að nokkuð veður verður í bandarískum fjölmiðlum vegna þess að Bandaríkin hafa sinnt þeim óskum íslenskra stjórnvalda að senda enga svertingja til Íslands, vegna sérstakra aðstæðna, biður íslenska ríkisstjórnin hina bandarísku, að ljúga bara að þetta sé ekki tilfellið. Svo segir Valur Ingimundarson:
Ekkert gerðist í málinu fyrr en í febrúar 1963, þegar Penfield var aftur uppálagt að taka málið upp við íslenska ráðamenn. Þar rakst hann á vegg: Yrði blökkumönnum hleypt til Íslands mundi það mælast mjög illa fyrir vegna „hættunnar“ á nánu samneyti við íslenskt kvenfólk, blóðblönduninni, auk þess sem búast mætti við því að viðbrögð íslenskra karlmanna yrðu hörð.
Uppgjör við umheiminn, kilja, Vaka-Helgafell 2002, s. 72
Eða úr sama ranni og afstaða bókarinnar Barist fyrir frelsinu, sem er raunar líka gefin út af Vöku-Helgafelli 2002, og hefur verið seld til Danmerkur að auki. Á kápu segir:
Barist fyrir frelsinu er ótrúleg hetjusaga íslenskra mæðgna. Guðríður Ingólfsdóttir hóf ung sambúð með Egypta, sér eldri manni, sem virtist hafa samlagast lífinu á Vesturlöndum vel. Í fyrstu lék allt í lyndi en með tímanum og einkum eftir að þau eignuðust börn kom annað andlit eiginmannsins í ljós - andlit heittrúarmannsins.
Heittrúarmaðurinn var n.b. eiturlyfjasali, eins og ekki þykir vert að greina á kápu.
Ég spyr vegna þess að fréttina af vestræna líkinu hef ég ekki séð á forsíðum erlendra vefmiðla, svo hér virðist að einhverju leyti um sjálfstætt fréttamat að ræða, en ekki með öllu óvirka endursögn frá Reuter.
Æli hver sem betur getur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli