14.11.04

Líkið sem fannst í Falluja er af konu með ljóst, sítt hár

Fyrirsögn og eftirfarandi af mbl.is:
Líkið, sem bandarískir landgönguliðar fundu á götu í Falluja í morgun, er af vestrænni konu með sítt ljóst hár. Það er afar illa leikið; allir útlimir afskornir, háls skorinn og iður úti. Vitað er um tvær vestrænar konur sem rænt var í Írak; Margaret Hassan og Pólverjann Teresa Borcz, en sú síðarnefnda er ljóshærð.

Ber að skilja þetta sem svo að bandarískir landgönguliðar hafi fundið eitt lík í Írak, það hafi komið þeim allóþægilega í opna skjöldu, rannsókn standi yfir og komið hafi í ljós að líkið var af vestrænum uppruna?

Eða er Morgunblaðið í alvörunni að endurflytja frétt af vestrænu líki, í ljósi þess eins að það er vestrænt lík og þannig, ólíkt flestum hinum líkunum í Falluja, í frásögur færandi? Getiði ekki falið skömm ykkar aðeins betur, strákar? Getiði ekki allavega þóst einhvern veginn reyna að dylja svona fréttamat?

Engin ummæli: