Jæja … gott og vel og jæja … hm … Rafauga segist ekki hafa ekkert að segja, ég hef ekki heldur ekkert að segja, þannig lagað … bof. Langt því frá. Í fréttum er þetta helst: Godot stefnir á að koma þann 17 þessa mánaðar. Hann er búinn að kaupa flugmiða. Framhald þeirrar sögu verður sjálfsagt rakið í næsta Reykjavík Grapevine, því fyrirmyndarblaði. Stay tuned.
Ný hilla í eldhúsinu er til sannkallaðrar fyrirmyndar og gerir eldhúsið bjartara en ofvaxna bókahillan sem ég hafði troðið upp á borð, bjartara og ánægjulegra ídvalar.
Námslán annarinnar er uppurið. Atvinnuleysi í Frönsku Pólynesíu virðist algjört. Langtum vænlegra virðist að stofna fyrirtæki en leita vinnu. Vöruframboð í borginni er hins vegar all nokkuð.
DSL tenging ætti að opna á morgun.
Veður hefur verið með afbrigðum venjulegt síðustu daga.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli