Morgunblaðið:
George W. Bush hlaut flest atkvæði í fjallaþorpinu Dixville Notch í New Hampshire-ríki, en þar hefur atkvæðagreiðsla hafist á undan öðrum kjörstöðum í bandarísku forsetakosningunum. Kosning hófst upp úr miðnætti og greiddu 26 atkvæði.
CNN:
Election Day 2004 is officially under way, with dozens of New Hampshire residents casting their traditional midnight votes. The rest of the nation will go to the polls starting later this morning. In what could be a sign of things to come in a neck-and-neck White House race, residents of Hart's Location, New Hampshire, gave President Bush and challenger Sen. John Kerry 15 votes each.
Kl. 10:20 að þýskum tíma. Gleðilegan kjördag atkvæðalausu félagar!
1 ummæli:
Ég sé einhvernveginn fyrir mér að þetta hljóti að vera mjög fyndið. Sumsé þrjátíu manns samankomnir til að kjósa, ásamt kannski fimmtán börnum þeirra sem hafa ekki kosningarétt - og Jóa sem kýs aldrei. Einn þeirra er talningamaður. Einn er kjörstjóri. 5 eru í kjörnefnd. Allir kjósa í beinni röð, það getur ekki tekið meira en 5-6 mínútur. Svo eru tvær mínútur í talningu. Bingó: Úrslit!
Það er Survivor-blær af þessu. En skv. þessum fréttum er Bush sumsé með rúmlega 28 atkvæði, en Kerry með tæplega 28 atkvæði. Þetta verður spennandi, ég get varla beðið eftir að næsta atkvæði skili sér í hús.
Skrifa ummæli