18.2.07

Könnun um lestur Hvalveiða

Hvalveiðarnar voru lesnar á eftirtöldum stöðum síðustu vikuna:
Akranes
Barcelona
Beijing
Brooklyn
Brussel
Cherryville
Columbus
Copenhagen
Den Haag
Flóagaflshverfi
Garðabær
Helsinki
Hvammur
Hveragerði
Innrihólmur
Istanbul
Kálfatjörn
Kópavogur
Lima
Madrid
New York
Paris
Rabat
Reykjavík
St. Pétursborg
Stóra-Vatnsleysa
Uppsalir
Vín
Vogar
Zumárraga

Tala gesta er um 100 og á þá enginn að vera tvítalinn – ég er fullur þakklætis, og óska ykkur öllum frjósemi, farið og uppfyllið jörðina.

Annars get ég sagt þetta um ykkur: þið slæpist í vinnunni til að lesa hvalveiðarnar, sem er gott. Ykkur þyrstir í þær eftir hlé helgarinnar og lesið ötullegast á mánudögum. Langalgengasta skjáupplausn ykkar er 1028x768 punktar. Einhver býr þó við knappan kost og les í 800x600 punkta upplausn. Einn leit hér við eftir að gúgla 'Klámþing á Íslandi', einn við leit að 'Tjarnarborg', annar leitaði að textum halla og ladda og enn einn að sögninni 'fetishera'. Eina leitarvélin sem þið notið er Google. Helmingur ykkar er eitthvað að hanga og smella á forvitnilega hlekki … beita sér á netinu eins og sjónvarpssjúklingar beita fjarstýringu. Aðeins þrír smelltu á 'Stelpur sem fíla klám' í vikunni, . Einn eða tveir virðast hafa borið sig eftir því að hlusta á upplestrana efst í lista hlekkja og enn hefur enginn gerst áskrifandi að þeim, sem er synd og skömm, og ég ræð af þessu, get mér þess til, að upp til hópa hafið þið á tilfinningunni að eitthvað vanti, festið ekki fingur á það, haldið áfram að gægjast fyrir næsta og þarnæsta horn. Mæli með Grafi grafi grafi, það gæti verið einmitt „það“.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ. já ég -brussel- kíki alltaf öðru hvoru á þig, því þú átt það til einstaksinnum að skrifa soldið sniðuga hluti. þó finnst mér greiningin hálf ógnvekjandi og "stórabróðursleg" og íhuga ég að gefa töluna mína næsta einhverjum sem ég rekst á... en mun væntanlega ekki tíma því á endanum, gleyma ugg mínum, og kíkja aftur á "stundum eða oftarenekki skemmtilegu einkasíður kunningja" xx