Ég lýsi mig sammála Rafauganu, hér um bil í einu öllu, með fyrirvara um það þó að ég er meiri femínisti en hann.
Það er eitthvað verulega uggvænlegt við það þegar allir – og nú ber að skilja 'alla' sem 80% eða hærra hlutfall þeirra sem segja meiningu sína á opinberum vettvangi, undir nafni – eru sammála. Þegar bændasamtökin, Vilhjálmur Þ., Geir Haarde, biskup, iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins, eru á einu máli með 'róttækum femínistum' finn ég ekki bara fyrir tortryggni heldur vottar fyrir skelfingu. Allir voru sammála um að vilja ekki klámframleiðendur til Íslands. Og allir unnu. Þannig.
Það lágu í loftinu nokkuð spennandi fyrirætlanir um að koma konum sem ekki leika í klámi á forsíður tímarita, slá einhver heimsmet, vekja athygli á femínisma á meðan hrútspungarnir væru á landinu. Og einhverjir gerðu ráð fyrir að sletta skyri. Þetta hefði verið gott, eitthvað í ætt við það þegar Palestínumaðurinn knái settist niður og snæddi kvöldverð með hórum og innheimtulögfræðingum. Það er, hóparnir hefðu þó í öllu falli mæst. Ef það að meina fólkinu aðgang að landinu er ekki mannréttindabrot að lögum er það í öllu falli mannréttindabrot í anda.
Húmanismi er góð hugmynd og gengur í grundvallaratriðum út á að við, manneskjur, glötum aldrei rétti okkar til að mæta hvert öðru í samræðu. Meira að segja morðingjar mega skrifa bækur. Niðurstaða Bændasamtakanna var aðskilnaður heima. Enda hefði það áreiðanlega skaðað ímynd fyrirtækisins að taka á móti svona fólki.
Burtséð frá því má nú horfa á hugtakið 'femínismi' hverfa með ljóshraða upp í heim mýtunnar, þar sem það verður inntakslaus aðgangsmiði að þátttöku í pólitík og samræðu, allavega fram að næstu kosningum. Það er einmitt þá sem hugtak verður brúklegt í hvaða augnamiði sem er og mun vafalaust nýtast Birni Bjarnasyni vel á komandi misserum að ræða um kvenréttindi til að verja strangari gæslu og eftirlit með fólki á landamærum og innan þeirra.
Hugmyndafræði sem ætlar sér að vera frelsandi ætti látlaust að skoða sjálfa sig undir ljósi anarkisma. Eða villuljósi … þegar gildishlaðið einkunnarorð einhverrar hugmyndafræði verður aðgöngumiði að heiminum má ætla að verið sé að beita því til annars en uppreisnar. Munum að meira að segja kristni var einu sinni frelsandi afl undirokaðra. Saga kirkjunnar og páfastóll er hættan sem allir vel meinandi menn þurfa að hafa í huga.
Ég vona annars að Björn braggist eftir veikindin. Mér finnst hann um margt kjánalegur en það er trúlega fyrst og fremst vegna þess að hann er fæddur til valda.
1 ummæli:
þeim var ekki meinað að koma inn í landið.
Hótel saga vildi bara ekki leyfa þeim að gista.
Skrifa ummæli