16.2.07

Málamiðlun um blammeríngar og hin hýru vísindi a la Dennett og svo áfram

Listir eru rannsókn á möguleika tækis.

Mín kynslóð er yfirstandandi rannsókn á möguleika nettengdra fartölva.

Er rannsóknum á möguleikum prentvéla lokið?

-

Þetta er rangt og einmitt þess vega er prentvélin rétt að skríða inn. Listir eru brúkun tækni sem hefur verið leyst af hólmi og er ekki lengur fyrst og fremst gagnleg.

-

Listir og tækni? Ertu hálfviti? Þetta er hvort tveggja út í hött – listir eru leiðangur um landslag sálar.

-

En þær koma upp um að þetta landslag er ekki landslag einstaklings, fyrst og fremst, heldur kynslóðar eða tímapunkts í mannkynssögunni, með því að grípa fleiri en listamanninn einan. Þess vegna er list uppljóstrun um misfellur í hugmyndum tímans um sjálfn sig.

-

Kjaftæði! Hún kemur upp um að kynslóðir og tímapunktar koma málinu ekki við með því að enduróma gegnum söguna og vera eilíf.

-

Já, er það? Hefurðu lesið einhvern góðan grískan harmleik nýlega, af ómiðluðum unaði og upplifun?

-

Já, það hef ég gert.

-

Listir eru frystir.

-

Æ, hættu að láta eins og ekki sé hægt að segja neitt.

-

Listir eru kysstir.

-

Hættu þessu.

-

Rósir eru rauðar, víólur fjólubláar, ég nauða og nauða um hvað þið eruð kúabólufláar.

-

Láttu ekki eins og það sé ljóðrænn þráður í þér. Við erum að reyna að segja eitthvað. Listir eru efniviður fyrir sjónvarpsþætti eins og Mósaík. Mósaík er hættur, ergo: listin er dauð.

-

Víðsjá …?

---

Mig langaði eiginlega fyrst og fremst bara að blogga fyrstu tvær línurnar hérna uppi – ég held í alvörunni að það geti verið afar forvitnilegt að nálgast listsköpun hræðilega kalt og þetta er tæk nálgunarleið – uppfinningamaður eða fyrirtæki eða stefnumót við annan menningarheim fæðir af sér framandi og ókunnugan hlut sem ættbálkurinn reynir að hrista eitthvað úr – reynir að komast að því að hann sé líka lifandi. Það er svo ægilegt að hafa eitthvað dautt í kringum sig. Og við erum öll að rannsaka fartölvur þessi árin. Og ég vildi gjarna láta þetta gott heita, láta það liggja þarna sem staðhæfingu, setja það í header á blogginu jafnvel, koma nú, fórna sér! – „Listir eru rannsókn á möguleikum tækis“ – en er hræddur um að þá haldi rómantískir vinir mínir og ég sjálfur jafnvel að ég sé einhvers konar fæðingarhálfviti. Enda ekki það að þetta er jafn lummuleg setning og allar aðrar sem hafa „listir“ að frumlagi.

Setning með „listir“ að frumlagi hefur klisju að andvarpi.

Ef maðurinn sem skrifaði svargrein til mín í Fréttablaðið í dag hefur gúglað mig og les þetta er ég forvitinn að vita hvort hann er kristinn bókstafstrúarmaður. Ekki að greinin öll gefi það endilega til kynna, en aðfararorðin opna sannarlega möguleikann.

Þar var „fasisti“ andlag í setningu sem hafði mig að frumvarpi. Heimsku að frumvarpi, heiminn að andvarpi.

---

Klámið er að koma, klámið er að koma … syngist við djínglið í jólalest Kókakóla.

Engin ummæli: