Einu sinni var haldin ritgerðasamkeppni á vegum japanska sendiráðsins um raunveruleg eða hugsanleg tengsl Íslands og Japan, verðlaun voru tveggja vikna ferð héðan þangað. Ég skrifaði um vöntun erótískrar hefðar á Íslandi, sem mætti bæta úr með innflutningi, hvernig við gætum lært af aldagömlum bindinga-, pyndinga- og niðurlægingarhefðum Japana.
Ég komst ekki til Japan, enda var þetta vanhugsað, ég ungur og óstöðugur. Ósæmissía á Cantat-3 sæstrenginn er betri hugmynd. Bukkake er ekki upprunnið í fornum japönskum giftingarsiðum, til að óska brúðinni frjósemi, hrísgrjónasiðurinn Vestræni á ekki rætur sínar þar. Bukkake var fundið upp á 8. áratugnum, af japönskum kvikmyndagerðarmönnum sem var bannað að sýna reistan reður í myndum sínum. Hins vegar var hvergi minnst á sæði, og því fór sem fór. Tillaga Steingríms J. gengur enn lengra og gæti orðið til að þessi þjóð uppgötvaði loks … erótík? Kynlíf? Hvaða orð er til yfir þetta á íslensku sem er ekki einhvern veginn væmið og vemmilegt, annað en einfaldlega klám? Ég veit ekki til þess að mín kynslóð elskist, hún ríður. Og horfir á klám.
Líta má á myndbandið hér sem einarða stuðningsyfirlýsingu við tillögu Steingríms J. og svo fjölmargra annarra um bætta klámmenningu Íslendinga:
Húsinu mínu verður annars breytt í hótel á næstunni, ég flyt af Vg á miðvikudag/fimmtudag, fer til útlanda á föstudag og þarna á milli, í einn, tvo eða þrjá daga, bjóðast ókeypis mubblur heima hjá mér. Og kaffi. Og ég er með bækur og eldhúshellur í láni frá einhverjum ykkar. Smekkmenn og -konur, að hika er sama og hrapa, lítið við.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli