Sigurjón Þórðarson, þingmaður, veitti mér á dögunum nafnbótina varðhundur kerfisins og lét af því tilefni þessi orð falla:
„Frjálslyndi flokkurinn er lykillinn að því að fella ríkisstjórnina. Varðhundar kerfisins hafa áttað sig á því að sú hætta stafar af Frjálslynda flokknum.
Það er því ljóst að ráðandi öfl tjalda til öllu til þess að koma höggi á flokkinn. Ítrekað höfum við orðið varir við að það væri verið að snúa út úr málflutningi flokksins. Fréttablaðið undir stjórn fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins splæsti einni síðu í stórundarlega grein eftir Hauk Má Helgason heimspeking.“
Vitaskuld
er ég
hrærður.
1 ummæli:
Hvað er hægt að segja? Ert'ekkjað fokkings grínast? Er orðæðan kannski ekki 30 árum á eftir heldur 300?
Skrifa ummæli