Forhúðarflex og sumar ástarinnar, jú. Frétt dagsins er hins vegar á baksíðu Morgunblaðsins – í ljósi sjöhundruð billjónfaldrar metafkomu bankastofnana verður nú skorin upp herör gegn skuldurum. Sýslumaður er búinn að fá nóg, hann hefur margreynt að ná á þetta fólk, það „beitir öllum brögðum,“ svarar til dæmis ekki í símann, bregst ekki við bréfum frá tölvukerfum, gleymir jafnvel að vinna sér inn tekjur í dagsins önn, sumir eru áreiðanlega drykkfelldir, aðrir beinlínis latir, margir er ég viss um að eru klámfíklar, þetta eru svörtustu sauðirnir, segja þeir, og smekklausir með eindæmum, með Hustler plaköt á veggjunum. Nokkur þúsund svörtustu og smekklausustu sauðirnir – ef ég væri sýslumaður væri ég líka búinn að fá nóg – þarna úti er smekkmaður sem missti af Kjarval því þú svaraðir ekki í símann þegar ég var að reyna að hafa af þér dagana!
„Hjá sýslumanninum í Reykjavík liggja fyrir nokkur þúsund kröfur um fjárnám sem ekki hefur tekist að ljúka þar sem fólk hunsar boðanir sýslumanns. Sýslumanninum finnst fortölur nú fullreyndar og í sérstöku átaki sem mun standa yfir næstu daga munu einkennisklæddir lögreglumenn handtaka fólk sem hefur ekki sinnt boðunum, hvar og hvenær sem í það næst.“
Á baksíðunni er því bætt við að fólk verði sótt á heimili og vinnustaði, en ekki leitt út í járnum nema það taki upp á því „að slást“. Ég verð að viðurkenna að ég beinlínis man ekki eða veit ekki hvort ég á mál hjá sýslumanni núna, þau detta inn og út, ég reyni að búa ekki á lögheimili mínu til að dagarnir drukkni ekki í sýndarheimi innheimtubréfa – eina skuldin sem bíður nú greiðslu, það ég muni, er við lífeyrissjóð, vegna skylduaðildar að alþjóðafyrirtækjum. Framtíðarég heimta að samtímaég fjárfesti í vinnu barna í þriðja heiminum. Bregðist ég ekki nú þegar við þeirri kröfu minni, sendi ég á mig lögfræðinga og að lokum lögregluna. Bregðist ég við með mótþróa eða offorsi verð ég leiddur burt í járnum.
Þá er betra að vera hinu megin sæstrengs, þar sem kaffibollinn kostar eina evru og grasið er, í marsmánuði, bókstaflega grænna. Nafli minn kallar. Eiríkur Guðmundsson og RÚV munu sjá um baráttuna gegn fasismanum á meðan, ásamt framannefndu áhugafólki um forhúðarflex og ástir. Og nýtrúlofuðum. Næsta ágúst verður hópgifting á Kastrupflugvelli.
Ég lofa að blogga aldrei aftur um fréttir. Og segja aldrei aftur blogga.
2 ummæli:
Ég er EKKI þessi svarti sauður sem þú talar um! Hef alltaf mætt til sýslumanns stundvíslega og leyft þeim að taka mig - árangurslaust fjárnám þrisvar sinnum. Doh! Hefði betur sleppt því að mæta!
ps. Annars tókst mér í morgun að begja útibústjóra hjá einum þessara billjónabanka með því að hóta að fara með mín bullandi hallaviðskipti annað -mitt eina auma vopn, en það beit!
.
Skrifa ummæli