Rannsóknarniðurstöður kvöldsins:
Google. Ekki fyrirbærið, ekki 'the Googleplex', þar sem ungir menn borða jógúrt og safna hári á hjólabrettum, heldur hluturinn sjálfur. Eða hluti hlutarins. Þetta er stærsta netþjónabækistöð fyrirtækisins enn sem komið er, ein af 12 alls, nýreist, í The Dalles í Oregon fylki Bandaríkjanna. The Dalles er 12 þúsund manna bær, það er á stærð við Akureyri, sem hingað til hefur unnið sér það eitt til frægðar að fyrsta sýklavopnaárás innan Bandaríkjanna átti sér stað þar árið 1984, þegar hryðjuverkahópur úr kommúnu í bænum, fylgismenn jógans Bhagwan Shree Rajneesh (fæddur Rajneesh Chandra Mohan Jain, en kallaði sig síðar Osho) eitruðu fyrir bæjarbúum með því að dreifa salmónellu í salatbari … til að hafa áhrif á kosningar.
Og víst lendi ég afvega. Eftirfarandi er haft eftir Osho á Wikipediu:
I am the most free person who has ever existed as far as saying anything is concerned. I can contradict myself in the same evening a hundred times. Because it is not a speech, it has not to be consistent. It is a totally different thing, and it will take time for the world to recognize that a tremendously different experiment was going on. … You are not making any effort; neither am I making any effort. I enjoy talking; it is not an effort.
Ekki spurðist aftur til sýklavopna í Bandaríkjunum fyrr en einhverjir sendu einhverjum anþrax þarna um daginn. Jógaleiðtoginn Osho dó árið 1990. Að hans sögn eitraði Reagan stjórnin fyrir honum. Til ljóðmælandans Osho spurðist ekki aftur fyrr en meðal svonefndra Nýhilskálda, upp úr aldamótum.
Jæja, aftur að Google. Nýreista netþjónabækistöðin í The Dalles þekur um tvo fótboltaleikvanga. Ástæða staðarvalsins er vatnsaflsvirkjunin sem heldur bænum gangandi. Umhverfisvernd.
- Osho hlýtur að vera sameiginlegur spámaður Nýhil, bloggheimsins, netsins og jafnvel fyrsta áratugar 21. aldar. „I am the most free person as far as saying anything is concerned.“
- Upphaflega fyrirætlun mín var að komast að því hvar tölvupósturinn minn er geymdur, annars vegar, og Google Earth hins vegar. Því að:
- Það er þessi saga frá Borges um kortið af ríki kóngsins í hlutföllunum 1:1. Og mig langaði að sjá hvað það tæki í raun mikið pláss. Og ekkja Borgesar er á leið til landsins. Núna virðist hins vegar miklu meira vera í húfi. Mig grunar að samtíminn sé allur í The Dalles. Ef
- einhver er fús að greiða mér fyrir ferðalag til The Dalles í leit að samtímanum má sá hinn sami skilja eftir athugasemd hér á síðunni og ég hef samband. Ef sáúhinnsamia er bókaforlag og finnst að blæjubíll í eyðimörk ætti að koma við sögu er það engin fyrirstaða, ég tek þá með mér skáld og kvikmyndagerðarmann.
Annars: Í komandi kosningum er ekki nóg að frelsa ástina. Við verðum líka að elska friðinn, hjarta lýðræðið, sigra vonina: Fögnum framtíðinni – dýpkum mennskuna!
Hér má sjá Osho segja tímabært að móðir Teresa stökkvi út í vatn.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli