21.12.04

Bóbó dómsó

Er að lesa útlendingalög í fyrsta sinn, í tilefni nýlegra ummæla dómsmálaráðherra á blogginu sínu. Mér finnst þetta skemmtilegt, í 21. gr.:

Óheimilt er að vísa frá landi eða úr landi útlendingi sem fæddur er hér á landi og hefur átt hér fast heimili óslitið síðan.

Ég er ekki búinn að finna skilgreiningu á útlendingi, en ef til vill gerir löggjafarvaldið sér svona vel grein fyrir að öll erum við útlendingar víðast hvar ...

57. Grein: Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef maður: ... af ásetningi með því að vekja, styrkja eða hagnýta sér ranga eða óljósa hugmynd, eða á annan ótilhlýðilegan hátt, tælir útlending til að koma til landsins í því skyni að setjast þar að.

Nú þarf ég að gæta mín hvað ég segi við Godot ... ég hef átt það til að ofmæra menningarlífið í Reykjavíkurborg.

Annars er merkilegt hvað er mikið svigrúm fyrir framkvæmdavaldið í þessari löggjöf -- er því þannig háttað með lög almennt? Hér er ráðherravaldinu heimilt að handtaka og sekta og leita hér og vísa úr landi þar, en aldrei áskilið. Hvalavölvan spáir að heimildunum verði beitt á fátæka þegna og dökka kynstofna en tengdafólki Bobby Fischer sýndur náungakærleikur í tilefni jóla.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rangar og óljósar hugmyndir. Ég sé ekki hvaða íslendingar gætu verið með hreinan skjöld í þessu máli. Gaf Parísarkynningin raunsæja mynd? Ég ákæri.

Kv, Hreinn

Nafnlaus sagði...

Nei, ég sé núna að lykilorðin eru aftast: AÐ SETJAST HÉR AÐ. Það er í lagi að tæla fólk til ferðamennsku.