Vissuð þið að Úkraínumaðurinn sem fæddist of seint of fjarri Selfossi til að teljast giftur í augum dómsmálaráðuneytis er útlægur frá Schengen svæðinu öllu í þrjú ár? Svona í alvörunni, er ekki eitthvað hægt að gera? Kann einhver frekari deili á fólkinu og hvar slagurinn er staddur í augnablikinu?
Af rúv.is, 16.12.2004:
23 ára Úkraínumanni var í vikunni vísað úr landi og hann sendur til síns heima þrátt fyrir að hann hefði haft hér dvalarleyfi sem námsmaður, væri giftur íslenskri konu og að móðir hans og stjúpfaðir væru búsett hérlendis.
Manninum hafði verið gert að gefa sig fram á lögreglustöð daglega. Í fyrsta skipti sem hann fór á lögreglustöð var hann handtekinn látinn gista fangaklefa yfir nótt og síðan sendur úr landi.
Maðurinn kom hingað til lands í september 2003 sem námsmaður og hafði hér skólavist. Hann fékk dvalarleyfi sem námsmaður. Hann stundaði atvinnu hér meðfram náminu. Þegar hann hætti námi var honum bent á að hann þyrfti að endurnýja dvalarleyfið. Maðurinn giftist þá sambýliskonu sinni.
En ný lög um að erlendir ríkisborgarar þurfi að vera orðnir 24 ára og tóku gildi 1. maí á þessu ári, komu í veg fyrir að honum væri hald í hjónabandinu. Lögin eiga að koma í veg fyrir málamyndahjónabönd.
Eiginkona mannsins hefur gengið hart fram í þágu manns síns og heldur baráttunni áfram. Þess vegna þykir sýnt að ekki sé um málamyndahjónaband að ræða. Eigi að síður var manninum vísað til Úkraínu. Með úrskurðinum fylgir sú tilskipun að hann má ekki sækja um dvalarleyfi hérlendis næstu 3 árin. Og það sem meira er að með úrskurðinum fylgir skráning sem útilokar hann frá því að komast inn á Schengen-svæðið jafnlengi.
1 ummæli:
Eftir því sem blöðin segja er þetta vafasamur karakter, jafnvel heróínsjúklingur (í alvöru). Þar með nýtur hann ekki lengur samúðar eða nokkurra mannréttinda. Við viljum engin vandræði hér heima, bara heimsmeistara eða í versta falli ólympíufara.
Kveðja, Hreinn
Skrifa ummæli