„Fyrst af öllu verður að hafa hugfast að það er ekki hægt að lofa því að siðfræðilegar hugleiðingar muni sjálfar leiða af sér boðorð um hið rétta líf, því lífið sjálft er jú svo skælt og bjagað að í rauninni getur enginn lifað því rétt og uppfyllt tilgang sinn sem manneskja. Ég myndi næstum ganga svo langt að segja veröldina þannig innréttaða að jafnvel sjálfsagðasta krafa um heilindi og velsæmi hlyti nauðsynlega að kalla á andmæli hjá nánast hverjum einasta manni.“
Theodor W. Adorno í Hug 2003 … textinn er raunar skrifaður nokkru fyrr. Þýðingin þjála er frá Stefáni Jónssyni.
Þannig er lífið.
Hugtök dagsins:
Synd
sekt
dáðleysi
efnahagur
svik og tryggð.
Jafnvel frelsi.
Hm … maður í heimsókn. Í gær fór fram sena sem enginn tók eftir nema ég. Sena sem hafði með það eitt að gera hverjir voru staddir á sama stað á sama tíma – minimal sena því hún samanstóð af engum samskiptum. Nærverunni einni. Svona eins og það væri sena að Kristján Jóhannsson og Eyrún Magnúsdóttir rækjust hvort á annað á bar. Nærveran ein minnir á og vísar til, birtir veruleika … helvítis sálarlíf.
Þegi yfir ýmsu. Jabbs. Hnita hringi. Köttur kringum. Einiberjarunn. Brennandi einiberjarunn.
Er pláss fyrir bullandi nýrómantík á bloggum? Eilífa endurtekningu á ama?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli